Frumsýningu lokiđ og Írland framundanSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er frumsýningu á Söngur um lífið lokið og þvílík skemmtun. Ég held svei mér þá að sýningin í ár sé best af þessum þrem sem ég hef tekið þátt í, mér líður að minnsta kosti þannig.Það sem var þó öðruvísi í þetta skipti var að salurinn var rúmlega hálfur af fólki sem ég þekkti ekki. Nei reyndar þetta er ekki satt því í Bítlashowinu þá þekkti ég náttúrulega nánast ekki neinn því ég var svo nýflutt. En það var samt sem áður pínulítið skrítið að þekkja ekki flesta sem sátu fremst. Það bendir þó til þess að við séum að gera góða hluti, fyrst aðkomufólk hópast á sýningarnar okkar. Reyndar er komið upp nokkurskonar lúxus vandamál" en þrátt fyrir að uppselt sé á allar sýningar þá er enn alveg gífurlegur fjöldi á biðlista, raunar svo mikill að við næðum ekki að tæma listann þó við myndum bæta við sýningu. Þetta er nú bara skemmtilegt og ákvörðun um framhaldið verður tekin á morgun.
Eftir frumsýningu dansaði ég svo mikið í fína prinsessukjólnum frá Sollu að ég gat eiginlega ekki stigið í fæturna á sunnudeginum, en það mætti nú líka kalla hálfgert lúxusvandamál. Bjartmar og Hansína buðu svo í frumsýningarpartý eftir sýningu og eins og áður voru konunglegar veitingar á borðum, sem voru að sjálfsögðu vel þegnar því Skemmtifélagsmeðlimir glorhungraðir.
Nú eru aðeins þrír dagar í næstu sýningu sem hún mamma ætlar að koma á. Að sjálfsögðu verður hún jafngóð og fyrsta sýningin, ef ekki bara betri.
Það eru svo bara fimm dagar að ég og 16 aðrir förum til Írlands. Ég fékk góðar fréttir í dag, en hún Sigrún Inga bumbulína fékk fararleyfi frá ljósmóðurinni þannig að þetta verður frábær vika í alla staði, hugsanlega síðasta skiptið sem við munum gista á hóteli saman þar sem það er stutt í að skvísan yfirgefi Háksólasetrið. En ég vil ekki hugsa um það strax.
Við erum sem sagt að fara til Írlands og verðum þar í heila sex daga. Dagskráin er vægast sagt spennandi, auk áhugaverðra fyrirlestra munum við fara í margar vettvangsferðir, t.d. skoðum við Cliffs of Moher (www.cliffsofmoher.ie/) en það verður draumur að rætast af minni hálfu. Nú svo er okkur lofað dá góðum slatta af "menningartengdri ferðaþjónustu" á kvöldin.... Spennandi í meira lagi.
Jæja gott í bili
Sandra
Sumariđ og Haustiđ 2010Sandra Björg Stefánsdóttir
Síðustu mánuðina hef ég oft spurt sjálfa mig að því hvort það sé eitthvað vit í því að vera að blogga, er ekki bloggið bara dautt? En í gær fékk ég tölvupóst frá samstarfsaðila á Húsavík þar sem hann vitnaði beinlínis í bloggið mitt. Einhvertíman hafði ég talað um ráðstefnu sem ég hafi verið gestur á og var mjög ánægð með. Þegar hann leitaði að umfjöllun um ráðstefnuna á netinu kom bloggið mitt einna fyrst upp. Fyndið mál.Fyrir utan það þá er enn stærri hluti af mínum nánustu ættingjum flutt erlendis og þó ég muni svo sannarlega nota skype heilan helling þá held ég að ég reyni að halda lífið í þessu bloggi mínu
Sem sagt snillingurinn hún Sólveig systir mín og hennar heittelskaði unnusti Hafþór eru flutt til Spánar, n.t.t. Barcelona. Solla kláraði klæðskerann hér heima í vor og saumaði meira að segja sveinsprófsstykkið mitt á mig, stóru systur sína. En nú er hún að hefja nám í fatahönnun í IED skólanum (http://www.ied.edu/barcelona/home). Þau munu því búa á Spáni næstu tvö árin. Þó ég efist alls ekki um að það verði frábærlega gaman hjá þeim á Spáni þá er ég eigingjörn og er strax byrjuð að sakna þeirra óendanlega mikið. En ég hugga mig við það að ég mun eiga eina best klæddustu systur í heiminum eftir tvö ár en hún var nú ekkert slor áður en hún fór

Sumarið var nú heldur betur gott hjá mér, ég fór í margar útilegur, prófaði að sigla á kayak og kleif Kristínartinda ásamt því að ég dreif mig til Finnlands til pabba og co. Það var nú alveg frábær ferð í alla staði og fátt betra en að láta stjana við sig og geta knúsað ormana mína eins mikið og ég vildi. Ég var hjá þeim í tæpan hálfan mánuð og við brölluðum heilmargt, fórum t.d. á Grænlenskt safn sem heitir Nanoq (www.nanoq.fi). Alveg frábært safn sem sannar enn og aftur að grasrótin skiptir öllu máli þegar svona starfsemi er til umræðu. Við fjölskyldan fórum líka í Mumin dalinn (http://www.muumimaailma.fi/in_english) því litla barnið ég hef dreymt um það frá því að ég var pínu lítil. Það var svo frábært í garðinum að ég á bara engin orð, ég mæli með því að allir sem mögulega geta heimsæki dalinn (ég var nota bene á undan Jóni Gnarr borgarstjóra að fá þessa hugmynd
) Ég keypti mér úr í garðinum sem ég geng með á hverjum degi til að geta rifjað upp þessa frábæru ferð í sumar eins oft og ég vil. Úrið er eldrautt og með mynd af Míu litlu 

Eftir dvölina hjá pabba fór ég yfir til Noregs og dvaldi hjá Pálínu og Snúbbunni í nokkra daga. Þær mæðgur stjönuðu við mig eins og ég væri konungsborin og ég hlakka mikið til að geta heimsótt þær aftur einhvertíman.
Nú eftir að hafa lifað eins og prinsessan á bauninni í allt sumar fór ég aftur í vinnu og þar hefur verið af nógu að taka. Við höfum staðið fyrir nokkrum ráðstefnum og sem dæmi má nefna frábæra ráðstefnu um fræðandi ferðaþjónustu í Kiðagili í september. Ég er svo hugfangin af starfi þeirra Svartárkotssystra að ég hvet alla til að skoða heimasíðurnar þeirra (www.svartarkot.is og www.kidagil.is). Við erum líka nýbúin að halda Ársfund Stofnana fræðasetra þar sem talað var um mikilvægi fræðastarfa á landsbyggðinni. Eftir rúma viku höldum við svo til Írlands á síðustu ráðstefnu NEED (www.need.is) verkefnisins. Við förum 17 talsins frá Íslandi og verðum enn og aftur langstærsti hópurinn. Ég hlakka mikið til enda eru Írarnir algjörir snillingar og umfjöllunarefni ráðstefnunnar mjög spennandi, fræðandi ferðaþjónusta.

En að félagslífinu... Á morgun frumsýnir Hið Hornfirska Skemmtifélag 9. sýningu sína. Þetta árið setjum við upp Söngur um lífið en sú sýning er tilnefnd Rúnari heitnum Júlíussyni. Við tökum lög frá öllum ferli hans, Hljómar, Trúbrot, Lónlí blú bojs, Áhöfnin á Halastjörnunni, GCD ofl... Þetta tímabil hefur verið svo óstjórnlega skemmtilegt að það nær engri átt, eins þessar sýningar hafa svo sem verið síðustu tvö árin (ég hef bara tekið þátt tvisvar áður). Eins konar lúxus vandamál hefur komið upp í tengslum við sýninguna í ár en það er nú þegar orðið uppselt á allar sýningarnar og þó nokkur fjöldi á biðlista. Við ætlum að frumsýna og taka svo stöðuna eftir helgi og sjá hvort við eigum að bæta við sýningum eða ekki


Sandy
