Dagurinn í dagSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er þorrablóti Hafnarbúa lokið en það var haldið síðasta laugardag. Við dömurnar í kvennaklúbbnum Kidda mættum í okkar fínasta pússi til hennar Gullu um kl. 18. Nokkru seinna drifum við okkur niður í íþróttahús og þar tóku á móti okkur eintómir sjóræningjar. Í fyrstu fattaði ég ekki þemað, fannst þetta bara rosalega flott en þegar skemmtiatriðin hófust þá kviknaði á ljósaperuni hjá ljóskunni Söndru. Trailerinn frá pirates of the carabbean var blastað uppi á tjald og inn á var búið að klippa mynd af Skinney og Þóri. Eftir það var spilað lag sem var eitthvað á þá leið að sjóræningjarnir hefðu ekkert í íslensku víkingana Magga svarta og Ingvald mikla... eða eitthvað álíka. Skemmtiatriðin í heild sinni voru líka frábær. Mjööög fast skotið á marga en flestir áttu þetta alveg skilið og meiri hlutinn er fólk sem getur alveg gert grín af sjálfum sér. Þetta var bara alveg fínasta skemmtun.
Í kvöld eldaði ég í fyrsta sinn á æfinni gæsabringur. Ég er ekki einu sinni viss um að ég hafi smakkað svoleiðis fyrr en í kvöld enda er ég ekki sérstaklega mikið fyrir villibráð. Hann Gústi samstarfsmaður Þorbjörns í Foss gaf honum nokkrar bringur sem við reyndum að kokka í kvöld. Þetta var svo mikið kjöt að ég ákvað að bjóða Fákaleiru settinu báðumegin götunnar að borða með okkur. Auðvitað tók ég mikinn séns en var búin að vista númerið á Ósnum inn í símann ef það þyrfti að panta pizzur í massavís. Þetta slapp allt fyrir horn og flestir fengu sér meira að segja tvisvar, þannig að ég er sátt.
Eftir matinn fór ég á fund með Evrópu unga fólksins... þar er mjög spennandi verkefni að fara í gang. Ungt fólk hér í sveitarfélaginu að vinna með enn yngra fólki til að virkja sem flesta í samfélaginu. Fá ungt fólk til að vilja gera eitthvað, taka þátt í því sem er í boði og reyna þannig að auka líkur á að fólk beri sterkar taugar til samfélagsins, vilji búa hér og skapi sér atvinnutækifæri í framtíðinni. Að sjálfsögðu er þetta á algjöru grunn stigi ennþá en mér finnst þetta spennandi og tala nú ekki um ef ég fæ að vinna dálítið með krökkum.
Um næstu helgi er svo Fjallamennsku námskeið nr. 1. Það verður vonandi ótrúlega gaman. Hef reyndar ekki séð neina dagskrá ennþá og veit því ekki hvort það stendur til að gista á fjöllum eða hvort við komum hingað heim á nóttunni. Kemur allt saman í ljós.
Jæja þá er þetta orðið gott í bili
Yassou
Sandra
desember - janúarSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja góðir hálsar, nú eru liðnir nokkrir sólarhringir frá því að ég skrifaði síðast og eru margar ástæður fyrir því. Hins vegar ætla ég ekkert að hrella ykkur með því að fara út í þá sálma heldur frekar segja ykkur frá því sem á daga mína hefur drifið.Eins og flestir aðrir Íslendingar hélt ég jólin hátíðleg í lok desember. Ég skelli mér suður á bóginn og dvaldi í góðu yfirlæti á hótel mömmu, bæði yfir jól og áramót. Fljótlega eftir hátíðirnar snéri ég aftur hingað austur því vinnan bíður víst ekki baun.
Það má kannski orða það þannig að það sé brjálað að gera hjá Sandy því síðustu vikuna haf ég bara ekki verið eitt kvöld heima hjá mér og það sem verra er þá hef ég ekki heldur verið á Leirunni. Ég hef komið mér í hinar ýmsu nefndir og verkefni og er þar að auki orðinn meðlimur í Kvennakór Hornafjarðar sem hann Heiðar stýrir af sinni alkunnu snilld.
Nú er að hefjast verkefni hér á Höfn sem snýst um að fá ungt fólk til að taka meira þátt í því sem er að gerast í samfélaginu og fá það til að átta sig á því að einstaklingarnir sjálfir geta vel haft áhrif á það sem er að gerast og mun gerast í framtíðinni. Reyndar er verkefnið mjög óformað ennþá en við erum búin að hittast 3-4 sinnum og láta hugann fljúga. Ég sit svo í nefnd ásamt nokkrum yfirgengilegum snillingum sem er að skipuleggja Blúshátíð. Það gengur náttúrulega eins og í sögu! Bið ykkur öll vinsamlegast um að taka frá FYRSTU HELGINA Í MARS (4. - 7. mars) því þá mun hátíðin eiga sér stað.
Þá hef ég skráð mig í fjallafélag Hornafjarðar, sem er reyndar nýtt félag, n.t.t. stofnfundur í kvöld. Þar með kemst ég vonandi á fullt í fjallamennskuna sem mig hefur nú lengi dreymt um. Fyrsti liðurinn í því er fjallamennska I og II sem eru námskeið á vegum Landsbjargar. Fyrra námskeiðið er eftir rúma viku og það seinna eftir um 3 vikur. Ég hlakka mikið til.
Framundan er svo ráðstefna á Írlandi á vegum NEED en það er fjórða og síðasta ráðstefnan. Mig hefur alltaf langað til Írlands þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig stemmarinn er á þessu heimili.
Annars er það aðallega að frétta héðan af Dalbrautinni að hann Þorbjörn er fluttur til mín. Reyndar tímabundið enda ætla ég að vona að mamma taki við honum aftur þegar dvöl hans hér lýkur. Þannig er mál með vexti að hann var fenginn hingað austur í smá verkefni hjá Foss, hér mun hann því verða amk. fram að mánaðarmótum. Nú get ég því loksins farið að taka til hendinni í eldhúsinu en eins og ég hef marg oft sagt þá nenni ég alls ekki að standa í því að elda fyrir mig eina (en vil ég meina að það sé eina og skársta ástæðan fyrir því að ég hef gert mig fullkomlega heimakomna á Fákaleiru 8c... fyrir utan þá staðreynd að heimilisfólkið þar er svo frábærlega yndislegt).
Jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili... kíkiði svo endilega á myndasíðuna mína, ég er mun duglegri að setja inn myndir en að blogga.
Ciao í bili
Sandra
