Hć hó hóSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er nú orðið dálítið langt síðan ég skrifaði síðast. Margt hefur gerst eins og gefur að skilja. 
Síðasta sýning skemmtifélagsins breyttist í eitt heljarins teiti heima hjá Svöfu Mjöll þar sem við skemmtum okkur konunglega að sjálfsögðu. Helgina eftir það héldum við öll saman á Smyrlabjörg þar sem þessu frábæra tímabili var "slúttað". Flestir gistu tvær nætur. Fyrra kvöldið var engin skipulögð dagskrá bara gaman saman eins og okur einum er lagið. Á laugardeginum voru Anna Kristín, Emil og Júlli búin að skipuleggja leiki, t.d. fórum við nokkur í yfirgegnilega stóra súmó glímu búninga og slógumst úti á túni... Ótrúlega gaman og mikið stuð eins og sjá má á myndunum. 

Nú svo fór ég líka til Reykjavíkur þar sem við Þorri kynntum NEED verkefnið okkar á alþjóðlegri NPP ráðstefnu. Það vildi svo skemmtilega til að hún Pálína mega beib var akkúrat í heimsókn á Íslandi á þessum tíma og þess vegna hittumst við nokkrir Hólanemendur heima hjá Gunna og Önnu Möggu. 
Ég er alveg að komast í rosa gott jólaskap. Er búin að setja upp seríur í glugga fyrir löngu auðvitað, nú svo gerði ég aðventukrans á mánudaginn og bakaði eina smákökusort 
Jæja gott í bili
Sandra
