Sýning nr.4Sandra Björg Stefánsdóttir

Skemmtilegt hjá skemmtifélaginu

Þá er fjórðu og næst síðustu sýningu Popp og Kók lokið. Reyndar var sýning á laugardaginn tæknilega séð númer 6 hjá okkur þar sem það voru skólasýningar á fimmtudag og föstudag. Fyrst Heppuskóli og svo FAS. Litlu ormarnir í Heppuskóla (sem eru reyndar alls ekkert lítil mörg hver) voru í svo geðveikislegu stuði að ég á bara ekki orð. Við vorum búin að undirbúa okkur undir alveg steindauða sýningu en krakkarnir sungu svoleiðis með og stóðu uppi á stólum og ég veit ekki hvað og hvað. Þannig að þegar kom á sýningunni á laugardaginn vorum við vel æfð á nýjan leika og höfðu sumir á orði að þetta hefði sennilega verið besta sýningin okkar svona tónlistarlega séð.
Reyndar gerðist svolítið á sýningunni sem enginn gat séð fyrir um. Þannig er mál með vexti að ég syng lag númer tvö í sýningunni, þegar ég kom inn á sviðið sé ég að hann Aron (annar gítarleikarinn) var hvergi sjáanlegur og því var ekki hægt að byrja lagið. Strákgreyið hafði þá slitið streng... Ég stóð því uppi á sviði eins og illa gerður hlutur og reyndi að segja eitthvað við fólkið eins og "Eru ekki allir í stuði?" og "Vesen á þessum gítarleikurum alltaf hreint" Eða ég held það allavega... ég man þetta ekki alveg. En það góða við þetta var að vegna þess að þetta kom fyrir þá fann ég ekki fyrir stressi í laginu sem ég er annars alltaf hálf taugaveikluð yfir því mér finnst það eitthvað erfitt. Fyrst ég lifði þessar sekúntur af þá er nokkuð ljóst að ég lifi allt af á þessu sviði...!
Þetta var bara frábær sýning og hún var meira að segja tekin upp. Hann Þorri var með kameruna á lofti allan tímann og gerði góða hluti. Nú er bara að bíða og sjá hvort við erum virkilega eins frábær og við höldum að við séum... hehe
Eftir sýninguna fórum við þó nokkur heim til Helgu Rúnar ásamt nokkrum Jöklafræðingum sem voru hér í bænum á ráðstefnu... Helgu munar ekki um að smala saman góðum hópi í teiti.. Nú svo var að sjálfsögðu haldið upp á hótel og dansað af sér skóna. Eftir það allt saman héldum við heim til Maríönnu og enn var haldið áfram. Sko ókey ég veit að þetta lítur illa út eeennnn.... þetta er bara smá törn sem endar um næstu helgi. Þá verður ekki aftur svona rosa djamm fyrr en hugsanlega að ári þegar næsta sýningartímabil hefst. Ég trúi eiginlega ekki að þetta sé að verða búið, mér finnst við nýbúin að vera í meðferð hjá Heru.

Annars er bara lítið að frétta, er núna að undirbúa ráðstefnu fyrir NEED, eða öllu heldur NPP sem haldin verður í Reykjavíkinni í næstu viku. Við Þorri verðum þar með bros á vör og kynnum verkefnið okkar í bak og fyrir. Vonandi get ég líka hitt hana Pálínu ofur pæju en hún var að tjá mér að hún hafi ákveðið í morgun að fara til Íslands á morgun... hún er svo hljót að hugsa og framkvæma þessi elska... heheh

Jæja gott í bili
Sandy kveður

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur