3ja sýning Popp og KókSandra Björg Stefánsdóttir

Mynd frá Sollu skvís


Jæja þá er sýningu þrjú lokið hjá Skemmtifélaginu en það þýðir að við erum rúmlega hálfnuð. Nú eru tvær laugardagssýningar eftir og tvær skólasýningar eftir. Svo er það slútt á Smyrla strax þar á eftir eða um miðjan nóvember. Næsta vika verður góð þar sem það verður sýning fimmtudag, föstudag og svo auðvitað laugardag.

Ég er búin að átta mig á því að áhorfendur skipta bara öllu máli þegar kemur að svona skemmtunum. Nú eru eins og áður sagði búnar þrjár sýningar af Popp og Kók, á frumsýningunni var ég ekkert sérstaklega ánægð með mína frammistöðu því ég fylltist af einhverju óútskýranlegu stressi sem gerði það að verkum að ég gat eiginlega ekki sungið. Þar af leiðandi fannst mér sýningin ekkert sérstök þó svo að auðvitað hafi verið geggjað stuð eins og alltaf. Sýning tvö var svo vægast sagt sérstök, áhorfendur voru slakir og sennilega bara að njóta þess að horfa og hlusta á okkur. Það var svo gott sem enginn sem stóð upp eða söng með. Þannig að sú sýning var allt öðruvísi en maður á að venjast. Svo kom að sýningunni í gær. Allir voru á nálum því nú er svínaflensan í hámarki og mikið um veikindi en það var bara einn aðili sem var veikur í gær og það var hann Eymundur trommari. Undir venjulegum kringumstæðum væri það alveg ótrúlega slæmt að missa trommarann en þar sem við erum í Mekka tónlistarinnar á Höfn Hornafirði þá gátum við kippt inn nýjum trommara með litlum fyrirvara sem skilaði sínu 100% og eiginlega miklu meira en það. Hann Biggi Reynis í Parket kom sá og sigraði þetta kvöldið.
En aftur að áhorfendunum, þau voru í svo miklu stuði að það er engu lagi líkt... Gugga og Steini (sem ég leigi hjá) sátu fremst og þau voru svo eeeeeeendalaust hress og brostu hringinn og sungu með aaaaallan tíman. Þar af leiðandi fannst manni vera besti söngvari í heimi og þorði að sleppa sér fullkomlega. Mér skilst að ég sé svo óendanlega meðvirk í þessum efnum svo eflaust hefur það spilað vel inn í. Reyndar var salurinn fullur af svona hressu fólki, Ragna, Inga og Halldór, Sigga og Steini og Bára voru þarna með klapplið fyrir okkur Heiðar. Ballið á eftir var svo að sjálfsögðu eitt það besta í sögunni og ég er svo fegin að ég hafði dregið fram pollíönu skónna mína því annars hefði ég ekki getað staðið í fæturna. Elsku besta Ragna mín sagði mér í gær að ég ætti að vera ég sjálf því það væri stelpan sem allir elskuðu og ekki að breyta mér fyrir einhverja aðra. Þess vegna er ég ánægð með að hafa verið ég sjálf og í mínum skóm en ekki killer hælum og svaka skvísa því ég er bara ekki þannig. Ragna var reyndar kannski ekki akkúrat að tala um skófatnað í þessu samhengi en samt...

Hvað vinnuna varðar þá vorum við á Háskólasetrinu í samvinnu við Ríki Vatnajökuls með málþing um sjálfbæra ferðaþjónustu - umhverfis og skipulagsmál í síðustu viku. Það gekk mjög vel, fengum marga frábæra fyrirlesara úr öllum áttum og héldum svo vinnuhópa þar sem niðurstöður verða nýttar við gerð Sjálfbærni stefnu Ríkisins. Við vorum á heildina séð mjög ánægð með málþingið. Einn af fyrirlesurunum var Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins. Hann hafði meldað sig á ráðstefnu hjá okkur í fyrra en afboðaði sig á síðustu stundu því það var um það leiti sem hann datt inn í pólitíkina. Nú kom hann austur sem skipulagshagfræðingur og það sem fyrirlesturinn hans var góður. Síðasta árið hef ég oft pirrað mig á honum sem stjórnmálamanni, finnst hann ekkert sérstaklega skemmtilegur sem slíkur, en þarna á miðvikudagsmorguninn féll ég alveg fyrir honum aftur. Hann á bara að vera í þessu, fyrirlesturinn hans var áhugaverður, vel skipulagður, á mannamáli og skildi mann eftir með fuuuuullt af spurningum um efnið. Gæti séð hann fyrir mér sem kennara í háskóla einhversstaðar og ég er viss um að hann yrði allra vinsælasti kennarinn í þeim skóla.

Jæja ætli þetta sé ekki að verða gott í bili...
Minni á myndir á myndasíðunni og svo að sjálsögðu væri vel þegið ef þið mynduð kvitta..!

Bless kex ekkert stress...

Sandy kveður...

Frumsýning og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég að spá í að blogga smá í tilefni að því að nú er aðeins farið að róast um á þessu heimili.
Síðustu vikur hafa verið alveg geðveikislegar, brjálað að gera bæði í vinnu og utan vinnu... fullt af skemmtilegu fólki og lítill svefn...! Þannig á þetta að vera Smile
Í fyrsta lagi var tólf manna hópur að fara á vegum NEED verkefnisins til Noregs á ráðstefnu, þetta var samskonar ráðstefna og ég fór á úti í Finnlandi í vor. Alveg viss um að þau skemmtu sér konunglega. Eins og gefur að skilja fór ég ekki með í þetta skiptið en engu að síður hélt ég utan um alla skipulagninguna eins og áður.

Æfing Popp og kók


Aðal málið síðustu vikurnar hefur nú samt sem áður verið annað en vinnan. Jú mikið rétt.... POPP OG KÓK.... Skemmtifélagið frumsýndi showið síðasta föstudag. Það hafa verið æfingar öll kvöld og allar helgar undanfarnar vikur og eins og í fyrra hefur þetta verið óendanlega skemmtilegt. Þetta árið voru margir nýjir sem tóku þátt og líka einhverjir gamlir sem voru samt ekki með í fyrra. Þannig að enn og aftur kynntist ég helling að nýju fólki og finnst það ekki leiðinlegt.
Solla sys saumaði á mig búning... rosa flottur... tók reyndar nokkra klukkutíma í að mana sjálfa mig upp í að mæta í honum á æfingu en það hafðist á endanum Cool Ég fékk nokkrum sinnum að heyra það á æfingum að ég yrði að vera meira sexy og daðra við áhorfndur fyrir allan peninginn... það tók smá tíma að ná því en þegar Solla sendi mér svipu til að leika mér þá fór þetta allt að smella... heheh... þið getið þá rétt svo ímyndað ykkur hvernig mér leið á generalprufunni þegar áhorfendur voru allt saman 4-6 ára börn í bænum...!!! Þetta var svo vandræðlegt og pínlegt að ég held að ég hafi aldrei skammast mín eins mikið Wink

Æfing popp og kók


Frumsýninginn gekk samt ágætlega, fyrir utan aðeins of mikið stress í fyrra laginu... seinna lagið gekk alveg ágætlega og svo ég tali nú ekki um djammið sem fylgdi frumsýningunni...
Eitthvað er hálsinn á mér samt búinn að gera uppreisn því ég hef ekki komið upp orði síðan á laugardagsmorgni. Í dag hef ég þess vegna reynt að segja ekki orð (auðvitað ekki tekist nógu vel) og vona að þetta verði allt komið á morgun. Einhver sagði að ég væri kannski komin með svínaflensuna ógurlega en ég held ekki, hef ekki tíma í þannig núna Smile

Frumsýningarpartý


Solla skvís kom og var hjá mér í viku, hún fór heim í morgun með Nönnu og Frikka. Því miður var ég ekki eins mikið með henni og ég hefði viljað vegna æfinga en það er bara svona. Mamma og Þorbjörn komu svo á fimmtudaginn og voru um helgina. Mættu að sjálfsögðu á frumsýningu hjá stelpunni sinni Smile
Framundan eru svo fjórar sýningar næstu fjóra laugardaga, skipulagning 2ja daga ráðstefnu á Höfn eftir rúma viku, landsfundur í NEED ofl...
Kreisí að gera hjá Sandy í Firðinum Fagra.
Endilega kommentið þið og kíkiði á myndasíðuna mína.

Ætli þetta sé ekki gott í bili
yassou
Sandy

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur