Hć hó hć hóSandra Björg Stefánsdóttir
Komið þið sæl öll sömul 
Fyrir um hálfum mánuði síðan komu Solla sys og amma hingað til mín og voru hjá mér í nokkra daga. Það var voðalega notalegt að fá þær hingað til mín og við brölluðum margt skemmtilegt, fórum meðal annars út á Horn og inn að Hoffelsjökli. Amma rifjaði upp að samkvæmt einhverjum eignarsamningum frá því í Miðsitju þá áttu þau einhverjar ítölur úti á Horni... Heheh greinilegt að einhvetíman í eld gamla daga var samgangur milli landshluta hvað þetta varðar
Við stoppuðum einnig á Þórbergssetrinu og við Jökulsárlón þegar þær skvísurnar héldu suður. Ég fylgdi þeim að Skaftafelli en snéri þá aftur austur. 
Verslunarmannahelginni var svo eytt uppi í Lóni. Þar var elítan saman komin. Mamma og Þorbjörn mættu á húsbílnum og með fjórhjólið ásamt Siggu og Smára og Helgu og Herði. Þannig að á Fókaleiru lóðinni við Grænu Höllina var margt um manninn eins og alltaf í kring um þau Rögnu og Heiðar. Við skemmtum okkur alveg endalaust vel, ég fékk að fara með gamla settinu í heljarins fjórhjólaferð á laugardeginum. Það var alveg frábært. Nú svo var að sjálfsögðu brenna og skemmtanahald langt fram eftir morgni þar sem Bjössi og Frikki fóru alveg gjörsamlega á kostum. Ég tók margar myndir af þeim félögunum en því miður eru þær ekki allar birtingarhæfar á veraldarvefnum.
Nokkrar má þó finna á myndasíðunni minni 



Á sunnudaginn héldum við Ragna og Heiðar í mikla menningarferð um mýrarnar... þetta byrjaði þannig að við Ragna vorum að velta því fyrir okkur hvernig ölkelduvatn væri og hann Heiðar vildi ólmur sýna okkur ölkelduna inni í Nesjum. Þá var ekki aftur snúið og við heimsóttum Borgarklett, Þurrubrú, Heinabergssvæðið, "Smartafoss" og loks Árbæ þar sem við gæddum okkur á ljúffengum ís. Frábær dagur í alla staði. 
Ég ákvað að taka mér sumarfrí í gær og í dag og nýtti gærdaginn í alsherjar útivist. Um morguninn fór ég í sund og synti alveg eins og ólimpíufari (einmitt....) og fór svo í göngu upp Bergárdalsheiðina í blankalogni og amk 18 stiga hita!!!
Svo fór ég bara aftur í sund til að skola af mér svitann.... svona á að gera þetta!
Nú fer að líða að því að Skemmtifélagið fari af stað aftur. Næstu viku ætla ég að vera í Reykjavíkinni og svo byrja bara æfingar. Hún Hera kemur austur og verður aftur með söngnámskeið helgina 28-30 ágúst og þá fer allt á fullt. Nú svo á ég líka afmæli bráðum og það er aldrei að vita hvað verður gert þá 
Jæja gott í bili kæru vinir
Sandra
