GLEĐIĐLEGT SUMARSandra Björg Stefánsdóttir
Komiði nú öll sæl og blessuð, tvö blogg á mánuði... er það ekki fínt
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.
Nú hefur heilmargt á daga mína drifið síðan síðast. Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna fermingarnar og páskana. Mamma kom til mín á mánudaginn fyrir páska og var því hjá mér í viku og það var alveg æðilsegt. Reyndar náði hún sér í flensu akkúrat þegar hún kom svo sennilega naut hún þess ekkert voðalega að vera hér. Við brölluðum heilmargt saman mæðgurnar. Á miðvikudeginum fyrir skírdag komu svo Solla, Haffi, Þorbjörn og Alexander Máni til mín og þá var líf og fjör á Dalbrautinni. Á föstudaginn langa bættist enn í hópinn þegar Sigrún, Fúsi, Kalli, Haukur og Perla komu. Því miður gat ég ekki boðið þeim neitt betra en stofugólfið en það er nú svo stórt að ég hefi getað hýst mun fleiri nægjusama gesti
Þetta kvöld voru 14 manns í mat hjá mér því ásamt næturgestunum komu Dana, Viðar, Bjössi, Mæja og Viðar Örn í mat. Ég skemmti mér konunglega og fannst alveg æðislegt að fólkið vildi koma og vera hjá mér, Söndru litlu. Auðvitað var mamma potturinn og pannan í eldamennskunni og stóð sig konunglega þrátt fyrir að hafa varla staðið í lappirnar vegna flensu. Við frændsystkynin skelltum okkur svo á páskaball með veðurguðunum og ég get svo svarið það, ef við erum ekki langskemmtilegasta fólkið í heiminun þá er ég hissa. Sungum Turn around í tíma og ótíma og Kalli snéri sér við og svo hlógum við eins og fábjánar og enginn skildi neitt í neinu. Hahahaha... Að sjálfsögðu var myndavélin með í för og myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna.
Nú á laugardeginum var svo aðalmál páskanna. Fermingardagur Önnu Regínu. Mér fannst ótrúlega gaman að fá að taka svona mikinn þátt í þessum degi frænku minnar. Hún var svo glæsileg að ég fékk nánast kökk í hálsinn. Veislan var svo skemmtileg og hlýleg og maturinn góður. En okkur var ekki til setunnar boðið því þau voru nú þrjú frændsystkinin okkar sem fermdust þennan dag. Sigga litla hjá Jóa og Viggu og Kiddi hjá Önnu Maríu og Sigga. Þannig að við vorum ekki beinlínis að farast að hungri þegar við komum heim um kvöldið.
Páskadagur leit svo dagsins ljós og þá var Sandran orðin lasin. Lá í bælinu í tæpa viku og sönglaði "Someone like you" með Kings of leon eins og einhver uppvakningur.
Um síðustu helgi skellti ég mér með Rögnu, Heiðari, Nóa og ferðafélaginu í göngu í Skaftafelli og að sjálfsögðu var það alveg frábært. Hún Regína gekk með okkur um Skaftafellsheiðina, (Lambhagi, rafstöðin, Sel, Sjónarsker, Svartifoss og Sjónarnípa) og sagði okkur skemmtilegar sögur á leiðinni. Ég fékk að sjálfsögðu tilfelli í tíma og ótíma enda komu upp minninar frá síðasta sumri í hverju skrefi.
Í gær var svo sumardagurinn fyrsti eins og menn vita og við Hornfirðingar opnuðum nýju glæsilegu sundlaugina okkar. Ofsalega er hún flott. Ég fjárfesti meira að segja í nýjum sundbol í tilefni dagsins
Við stelpurnar skelltum okkur út á lífið á síðasta vetrardegi eins og okkur einum er lagið. Fórum á lokasýningu leikhóps FAS og svo á Kaffihúsið þar sem Hulda Rós og Rökkurbandið voru með opna æfingu. Það er alltaf nóg að gera á Höfn, það get ég sagt ykkur. Á eftir lá leið í partý í græna húsinu sem ég ætlaði bara aldrei að finna þrátt fyrir að ég hafi gengið framhjá því nánast daglega frá því að ég flutti hingað. Gaman að þessu. Nú í kvöld liggur leiðin til Reykjavíkur því að á morgun er reunion Snælandsskóla krakkanna. Það verður vonandi mjög gaman enda ekki eins og maður hitti þetta fólk á hverjum degi

Þá er þetta komið í bili, vona að þið eigið góða helgi framundan og kíkiði endilega á myndirnar mínar þegar þið hafið lokið við að KVITTA...

yassou
Sandra
Páskar...Sandra Björg Stefánsdóttir
Jæja nú er alveg að koma páskafrí. Því miður náðist ekki að klára skýrslu um NEED verkefnið í dag svo ég verð að mæta fyrir hádegi á morgun og klára hana en að er allt í lagi því þegar skýrslan er búin er ég komin í frí
Mamma ætlar að brunahingað í sveitina til mín og svo koma Solla, Haffi og Þorbjörn þegar líður á vikuna. Hlakka ótrúlega til að fá þau öll. Enda ekki eins og það sé eitthvað lítið að gerast í stórfjölskyldunni, heilar þrjár fermingar, Anna Regína, Kiddi og Sigga... þeir voru samtaka í þessu frændurnir

Svo á Anna Regína afmæli á morgun, 14 ára pæja... ekki það hún er svo þroskuð pæja að hún gæti vel komið með mér á Víkina einhverja helgina... pott þétt fullorðinslegri en margar gellurnar þar. En ég efast um að ég fengi að stíga fæti inn í Fákaleiru 8c aftur ef ég tæki píuna með mér... En bara til að hafa það á hreinu þá var ég sennilega ekki nema 14 ára þegar Ragna fór með mig á öll böll bæjarins á Humarhátíð.. svo veriði bara viðbúin kæru hjón... aldrei að vita hvað gerist á næstu humarhátíð

Annars er það að frétta að næsta þriðjudag verður fyrsti fundur undirbúningnefndar Skemmtifélagsins... þá á að ákveða hvað við munum taka fyrir næsta haust og ég get bara ekki lýst því hvað ég hlakka til... MAÐUR LIFANDI!!! Þetta var náttúrulega ólýsanlega skemmtilegur tími síðasta haust og engin ástæða til að ætla að hlutirnir verði neitt öðruvísi núna... ég fæ bara fiðring í magann við tilhugsunina.
Jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili
Gleðilega páska og borðiði nú ekki yfir ykkur af páskaeggi.... hehe eins og það sé hægt!
ó já ég gleymdi einu... ég er búin að fá mitt fyrsta páskaegg þetta árið... ég var eitthvað að væla um að mig langaði svo í páskaegg en maður kaupir ekki svoleiðis sjálfur, eggin bragðast ekki eins vel ef maður kaupir þau sjálfur, það vita það allir. Allavega ég var að farast úr sjálfsvorkun inni á skrifstofu þegar hann Jóhann Bergur kemur færandi hendi með eitt stykki páskaegg... Ég átti engan veginn von á þessu og því smakkaðist eggið að sjálfsögðu betur en öll páskaegg sem ég hef nokkur tíman fengið.
Adios amigos
Sandy
