Spurningakeppni fyrirtćkjannaSandra Björg Stefánsdóttir

Ég vildi bara láta ykkur vita af því að það verður EKKI rætt um framistöðu míns liðs í spurningakeppni fyrirtækjanna Cool

Annars er bara ljómandi fín helgi á enda. Á föstudaginn skelltum við stelpurnar í Kvennaklúbbnum Kidda okkur á Food and Fun. Þýðingin á þeim viðburði er víst Fóður og Fjör sem mér finnst eiginlega alveg hörmulegt. Ég hugsa bara um svínafóður og fóðurbæti, nákvæmlega ekkert gómsætt við það. Okkar þýðing hefði verið miklu betir "Fæði og fjör", það er þó allavega jákvæðara. Afhverju vorum við ekki fengnar í þýðingar??? Wink En matuinn var alveg gómsætur, 5 rétta matur úr heimabyggð að hætta Dóra snillings. Það eru náttúrulega bara snillingar fæddir 30. ágúst 1983... Eftir matinn hlustuðum við á Gunnar Þórðar en hann var með tónleika á hótelinu. Þetta voru fínustu tónleikar, ég hefði samt alveg verið til í að þekkja einhver lög en kallinn tók Gaggó Vest í uppklappinu og þar með var honum fyrirgefið allt. Það lag minnir mig bara á fyrsta árs Hóla djamm á gamla Barnum á Króknum... þvílík snilld.
Af einhverjum ástæðum var Víkinni lokað upp úr miðnætti sem er náttúrulega bara fáránlegt en í staðinn var bara hrúgast til hans Sigga Óla í partý... miiiikkkkiiiiiððððð sungið og skemmt sér. Við Palli vorum líka komin á gott flug með viðskiptaáætlun fyrir Klifurhús Hafnar... Nú þarf bara að fara að ræða þetta með aðeins minna áfengi um hönd og sjá hvort það er ekki bara eitthvað til í þessu.
Auðvitað var myndavélin á lofti og það eru komnar myndir inn á myndasíðuna.

á laugardaginn fékk ég sé gesti frá Reykjavík, já eða eiginlega Þýskaland. Phil fjallógaur kom með bróður sinn og fékk að gista eina nótt á Dalbrautinni. Phil er jákvæðasti maður í heiminum og það er ekkert nema skemmtilegt að fá þannig fólk í heimsókn. Ég kíkti með þá í smá bíltúr og við fórum meðal annars upp í Ósland. Þar sá þeir einhver pínu lítil Norðurljós, ég deildi auðvitað með þeim öllum þeim fróðleik sem ég vissi og vissi ekki um þetta undur Wink 

Í gærkvöldi var svo spurningakeppni sem ég mun ekki ræða um eins og áður hefur verið komið inn á Cool

Nú fer að líða að páskum. Það eru þrjár fermingar í fjölskyldunni um páska helgina og þess vegna geri ég ráð fyrir að öll stórfjölskyldan í Reykjavík mæti á svæðið. Vonandi geta mamma, Þorbjörn, Solla og Haffi komið og verið hér í einhvern tíma. Það er svo gaman að fá fólk í heimsókn Smile Nú svo hef ég líka heyrt að það verði einhver böll á Höfn þessa daga og ég er viss um að henni systur minni mun ekki leiðast að skemmta sér með mér Wink

gott í bili
Sandy

HallóSandra Björg Stefánsdóttir

Sæl öll,
Það er nú aldeilis langt síðan síðast, ég veit. Stundum kemur bara tímabil í lífi manns þar sem mann langar ekki til að allir viti allt um mann. Og hvað eru margir menn í því Wink

Lofa nú engu um framhaldið en hér er allavega eitt blogg. Það hefur margt drifið á daga mína síðustu vikurnar. Blúshátíð var haldin hér í bæ og ég skemmti mér alveg endalaust vel. Reyndar var ég á báðum áttum um hvort ég ætti að vera hér á Höfn á Blúshátíð eða fara norður í Skagafjörðinn á árshátíð Hólaskóla. Þar var nefna nokkurs konar reunion hestakrakkanna frá því á fyrsta ári. Og þau mundu eftir mér þessar elskur og buðu mér með. En þó ég sé ekki fátækur námsmaður lengur fannst mér ansi svæsið að borga tæpar 50 þúsund krónur bara fyrir fargjaldið fram og til baka. Blúshátíð var sem sagt fyrir valinu og er ég alveg sátt við það. Mikið stuð og góð stemmning. Auðvitað tók ég nokkrar myndir sem eru inni á myndasíðunni.
á fimmtudaginn í síðustu viku var haldið Pub quiz hér á Kaffihorninu. Enn og aftur skemmti ég mér konunglega í góðra vina hópi. Ég hafði ekki hugmynd um hvernig svona færi fram en við Gulla ákváðum að skella okkur og vera saman í liði. Bjarni Ólafur og Júlli sátu með okkur á borði og þess vegna voru gerðar ýmsar ráðstafanir svo þeir sæju ekki svörin okkar. Þeir þurftu nú ekki að hafa neinar áhyggjur af sínum svörum því það var ekki nokkur leið að skilja skriftina þeirra Cool

Um síðustu helgi skellti ég mér svo í bæinn að skoða nýju fínu íbúðina hennar Sollu og hans Haffa. Hún var alveg svakalega flott. Mér fannst nú parketið með því flottara sem ég hef nokkru sinni séð, en Solla sagði að það þýddi að ég væri strákur...!!!! Því aðeins strákar taka eftir svoleiðis hlutum...
Við systur skelltum okkur líka á tónleika hjá B.Sig. Þeir komu á blúshátíð en því miður missti ég af þeim þar því ég var á Mugison (sem er ógislega Hottttt) En B.Sig voru ótrúlega góðir. Svei mér þá ef þeir eru ekki bara með betri live hljómsveitum sem ég hef séð.

Nú er ég aftur á leiðinni suður á málþing um heilsuferðaþjónustu. Lítill fugl hvíslaði því að mér að fyrrum bekkjarsystkini mín á Hólum verði á svæðinu og þess vegna hlakka ég ótrúlega til að fara. Sennilega fæ ég svo heimsókn frá Reykjavíkinni á fimmtudaginn en hann Phill fjalló spurði um daginn hvort hann fengi gistingu í eina nótt ásamt bróður hans þegar þeir ferðuðust um svæðið. Hef nú ekki heyrt í dúddanum í þessari viku en meðan hann hefur ekki afboðað komu sína þá reikna ég með að þeir mæti Smile

Þið megið gjarnan láta í ykkur heyra og segja mér hvort það sé ástæða til þess að halda lífi í þessu bloggi eða ekki...
óver and át
Sandra

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur