FjallamennskaSandra Björg Stefánsdóttir
Hæ hó öll,Þetta eru nú búnir að vera meiri dagarnair undanfarið. Á sunnudaginn var þvílík bongó blíða í sveitinni að hver einast hornfirðingur var úti að viðra sig... ásamt því að troða í sig bollum auðvitað. Nú á mánudaginn var haldið áfram að háma í sig bollum og í gær.... úfff ég fæ bara magakrampa að hugsa um það... Við Heiðar fórum til Guggu og Sigga og fengurm okkur saltkjöt og baunir. ÞAÐ SEM ÉG BORÐAÐI... ég gat bókstaflega ekki gengið upprétt fyrir götuna aftur, og þegar ég stóð upp úr sófanum í 8c til að fara heim svimaði mig... ég er ennþá södd...!!! En mikið lifandi skelfing er þetta gott

Í dag var svoooo ÖSKUDAGUR, og því var stanslaus röð af gríslingum að syngja og ég skemmti mér alveg konunglega. Engu að síður skemmti ég mér MIKLU betur fyrir hádegi því þá var ég á fjallafundi!!!! Jábbs... ég var með Einurunum stórkostlegu ásamt fólki úr ríki vatnajökuls, ferðafélaginu og þjóðgarðinum að skipuleggja fjallaferðamennsku í Hornafirði.... Hugsiði ykkur, skrá miður leiðir hér, setja upp klifurgeggi þar og jafnvel stofnsetja Fjallamennskusetur.... Mér þykir mjög vænt um NEED verkefnið og tel mig ótrúlega heppna að fá að vinna með það eeennnn fjallaferðamennska!!!! Það er yndislegt :)
Jæja þetta er gott í bili
Sandy
Lífiđ í hnotskurnSandra Björg Stefánsdóttir
jæja ætli ég hendi ekki inn smá færslu hér á bloggið... þetta gengur ekki, ég fer að verða jafn öflug og Solla og Pálína að blogga
Reyndar skilst mér að það lesi varla nokkur lifandi maður blogg lengur því allt fer nú fram á andlitsbókinni ógurlega, ég viðurkenni það vel að ég er orðin alvarlega háð þeirri vefsíðu. Held ég bloggi nú bara af því að hann karl faðir minn er svo ógurlega þrjóskur að hann neitar að fá sér feisbúkk... tel sjálfri mér trú um að hann fylgist með þessu bloggi og vil leyfa honum að gera það áfram
nei nei ég segi nú bara svona... við erum samt að tala um að hann faðir minn er enn með Nokia 3510... Hann hefur ákveðið að þetta sé besti sími í heimi og mun aldrei kaupa sér nýjan síma nema það sé útséð um það að ekki verði hægt að gera við þann gamla lengur. Fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hvernig sá forngripur lítur út þá er hér mynd af honum:
En jæja... hvað er að frétta?
Um síðustu helgi skellti ég mér til Reykjavíkur, jamms ég held það nú. Fór á málþing um Geopark sem var alveg einstaklega áhugavert og skemmtilegt.
Svo klifraði ég heil lifandis ósköp með henni Rannveigu skvísu. Það er alveg ótrúlegt hvað maður er fljótur að detta úr formi, þó svo ég reyni að gera allar mögulega æfingar heima hjá mér til þess að þurfa ekki að eyða dýrmætum tíma í að vinna aftur upp kraft og tækni o.s.frv.
Skemmtilegast af öllu var samt frænkukvöldið heima hjá Ingu Ósk. Ég hef bara ekki hlegið svona mikið lengi, við frænkurnar erum svo ótrúlega skemmtilegar að það er bara engu lagi líkt. Fórum í SingStar og þar var sko ekki haldið aftur af danssporunum... Takk fyrir mig skvísur, við verðum að endurtaka leikinn sem allra fyrst


Nú framundan er ekkert nema skemmtilegheit. Í kvöld stendur útskriftar hópur FAS fyrir tónleikum í Nýheimum þar sem Hornfirskir tónlistarmenn fá að njóta sín. Haldiði ekki að hún Sandra ætli að láta ljós sitt skína og hann Frikki gitarhero fer hamförum í undirleiknum. Ég ætla að taka lagið Steppingstone með Duffy sem ég hef hlustað á daginn út og inn síðustu vikur. Klikkið á nafnið og njótið... snilldar lag og frábær texti.... amk að mínu mati
Í gærkvöldi sátum við Gulla, Nanna og Frikki uppi í stú og vorum eitthvað að gaula, þá gengur inn Haukur nokkur Þorvalds. Hann var mættur til að eiga nokkur orð við hana Nönnu um tónleikana en eins og alþjóð veit þá er hann helsti útvarpsmaður austurlands. Nema hvað, hann vildi endilega fá að taka upp lögin okkar Gullu (hún ætlar að sjálfsögðu að syngja líka við undirleik Frikka). Eftir smá hóst og stam hófst upptakan og svei mér þá ef þetta heppnaðist bara ekki ágætlega hjá okkur. Mér skilst að þessu verði útvarpað í svæðisútvarpi Austurlands milli kl 17.30 og 18 í kvöld. Þið ættuð að geta hlustað á það hér. Jæja nóg af mér í bili
Sandy
Skautaćvintýri í ÓslandinuSandra Björg Stefánsdóttir
Í dag var alveg meiri háttar veður, hef bara sjaldan upplifað annað eins. Þess vegna fór ég í hádeginu upp í Ósland til að "skoða fjöllin" og kíkja á tjörnina. Það vildi þannig til að hún var alveg gadd freðin, ég fór út á ísinn og hoppaði aðeins (eins gott að enginn sá til mín) og viti menn, allt gaddfreðið. Ég hringdi beint í Rögnu og bað hana að hafa skautana tilbúna fyrir dæturnar um leið og þær voru búnar í skólanum. Ég var svo mætt í Fákaleiruna kl 14.30 og dreif píurnar nauðugar viljugar upp í Ósland. Ég veit ég vinn á frábærum vinnustað... get fengið frí ef veðrið er svona dásamlegt... vinn það bara upp seinna
Við frænkur skautuðum svo eins og við áttum lífið að leysa fram til myrkurs ásamt fleiri krökkum á öllum aldri sem bættust í hópinn þegar á leið.
Ég tók fullt af myndum og er búin að setja þær inn á myndasíðuna.... Endilega kíkiði og KVITTIÐI

Sandra Pandra
