Ţorrablót og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði sæl öll sömul,
Nú er Sandra stödd á Kirkjubæjarklaustri, n.t.t. á Geirlandi. Hef nú heyrt ófáar lofræðurnar frá Rannveigu og Villý frá þessum stað og svei mér þá ef það er ekki smá vit í því sem stúlku kindurnar voru að segja Wink Við Nýheima gengið erum hér að boða fagnaðarerindið, þ.e.a.s. kynna starfsemi Nýheima og þessa miklu og góðu samvinnu sem á sér þar stað.

Í vinnunni er allt kreisí eins og venjulega, vinnudagurinn gæti verið 12-14 tímar ef því væri að skipta en þar sem að ég met geðheilsu mína nokkuð þá reyni ég að vinna amk ekki alla daga vikurnar svo lengi Smile  í gær fór ég á fullt að vinna að umsókn til ferðamálastofu um uppbyggingu ferðamannastaðar. Ég vil kannski ekki deila öllu hér með ykkur á veraldarvefnum en ég get sagt ykkur það að ef ég fæ að ráða þá verður Stokksnesið næsta klifurparadís veraldar...

En að máli málanna... ÞORRABLÓTIÐ...!!! Um síðustu helgi fór ég á mitt fyrsta þorrablót á Höfn... já og eiginlega mitt fyrsta þorrablót þar sem ég þekktir einhvern fjölda fólks og skildi flesta brandarana. Ég skemmti mér svo ótrúlega vel og ég bara gapti fyrst þegar ég gekk í húsið því þetta var svo flott og eiginlega bara allir Hornfirðingar virtust vera saman komnir í íþróttahúsinu. Þemað þetta árið var ABBA og jiii minn eini... BÚNINGARNIR...!!! Stelpurnar voru voða sætar og fínar en karlpeningurinn var hreint út sagt sprenghlægilegur. Veislustjórarnir voru tveir, Jói frændi og Bjössi... Kannski þekkið þið þá ekki öll, sum þekkið annan og sum báða... Þeir eru í stuttu máli sagt alveg eins í vextinum nema annar er svona metri lægri í loftinu en hinn... svo getiði bara skoðað myndirnar þegar þær koma inn á myndasíðuna mína Smile
Eftir að hafa hámað í sig mat (í mis miklu magni) hófst skemmtidagskráin og hláturinn. Ég er bara nokkuð ánægð með hversu marga brandara ég fattaði, Ragna kom mér af stað með að skilja suma en aðra fattaði ég bara alveg sjálf. Einn brandarann fattaði ég meira að segja langt á undan flestum á borðinu mínu en það segir kannski meira um mig en þau Cool Eftir hláturinn hófst gráturinn..... neeeeee aldrei. Þá hófst dansinn. KUSK hélt uppi stemmningunni eins og enginn væri morgundagurinn og ég dansaði og dansaði og dansaði við alla sem ég þekkti og þekkti ekki. Þannig á þetta að sjálfsögðu að vera. Reyndar tókum við Palli svo svakalega sveiflu að mér varð hálf bumbult á eftir og þurfti hreinlega að fara út og fá mér frískt loft á eftir...
Eftir því sem leið á kvöldið fóru fleiri að dást að kjólnum sem ég var í, mér fannst hann mjög sætur og keypti mér hann þegar ég var í bænum um jólin. Ein spurði mig meira að segja að því hvort þetta væri einhver hönnunar-kjóll... ég var svo ánægð að ég var ekkert að segja henni að ég borgaði ekki krónu meira en 3.500 krónur fyrir dressið í búð sem er fræg fyrir allt annað en hönnun en ég var ekkert að auglýsa það Cool

Myndirnar eru komnar inn á netið...
Knús og kossar í bili
Sandy

Mótmćli, Ţorrablót og Partý og coSandra Björg Stefánsdóttir

Verður maður ekki að vera maður með mönnum og spjalla aðeins um þessi mótmæli.
Ég sat í gær ásamt Fákaleiru fólkinu og saman fylgdumst við með fréttum og kastljósi, eða reyndar lágum við uppi í rúmi... en það er önnur saga Cool Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, þegar ég fór heim í hádegismat í gær hlustaði ég á hann Heiðar Örn frænda minn lýsa aðstæðum við þinghúsið og ég var bara nokkuð ánægð með aðstæður. Ég studdi þessi mótmæli, endilega vera með læti og láta í okkur heyra en alltaf þarf fólk að fara yfir strikið. Hvað eru börn að gera þarna undir lögaldri? afhverju í ósköpunum er 11 ára drengur í fremstu víglínu þegar allt er farið úr böndunum? Afhverju þarf fólk að vera að berja með sleif í hjálma lögreglumanna? Hvað er að græða á því? Heldur fólk virkilega að það komist upp með að berja rúður og nánast brjóta þær, kveikja í og kasta skyri í lögregluna?
Ég studdi þetta með heilum hug þegar fólk stóð með potta og pönnur og lúðra fyrir utan Alþingishúsið... En við græðum ekkert á því að fara í stríð við lögregluna, þeir eru bara að vinna sína vinnu... sem þeir fá nota bene lítið sem ekkert borgað fyrir.
Svona í lokin langar mig til að segja að ég er svo ótrúlega stolt af honum Heiðari Erni frænda mínum sem stendur sig svo vel í að lýsa aðstæðum á þinginu. Þegar allt ætlaði um koll að keyra í bankahruninu var hann einn af mínum uppáhalds fréttamönnum og núna aftur í gær við þingið... Ég veit að ég er hlutdræg og rúmlega það Wink

En í öðrum fréttum er það að ég mun að öllum líkindum fara á Egilsstaði í fyrramáli. Á föstudag er ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð þar í bæ og mér skilst að allir sem eru menn með mönnum séu á leið þangað. Við munum gista í Egilsstaðabýlinu og ég hlakka bara nokkuð mikið til. Reyndar eru veðurguðirnir alls ekki hliðhollir okkur því það eru ekkert nema stormviðvaranir og læti í útvarpinu. Sjáum til hvernig það fer.
á laugardaginn er svo ÞORRABLÓTIÐ....!!!!!!!! Ég hlakka svoooo til.... hef ekki farið á svona stórt þorrablót áður og hvað þá að ég hafi skilið brandarana, einhvetíman verður allt fyrst Smile

Ætti ég kannski að fara yfir fréttir liðinnar vikur fyrst ég er nú komin í ham? Fyrir utan vinnu, fundi, NEED, viðburðastjórnun og umhverfisstefnur er ekki mikið að frétta af Nýheimum. Við Ragna förum í maraþon göngur með Nóa á hverjum degi (nema í gær... því það var kolvitlaust veður, ég varð næstum því úti á milli bílsins og útidyrahurðarinnar í Fákaleirunni) Svo fór ég um helgina upp í stú og spilaði Partý og co með vel völdum einstaklingum. Að sjálfsögðu var eitt stelpu lið og svo tvö Parket lið. Ég viðurkenni það fúslega að mér finnst ekkert gaman að spila nema maður geti svindlað smá... Við Hrefna vorum nú komnar með doktorspróf í því í actionary her í denn. En mér hreinlega blöskraði þarna um helgina. Fyrir ykkur sem ekki vitið um hvað spilið snýst þá á maður að safna "hnetum" í ákveðnum litum. Mismunandi spurningar gefa mismunandi lit á hnetu. Að sjálfsögðu fær maður ekki hnetu nema svara rétt. Allavega þegar við vorum búin að spila í nokkurn tíma þá verður mér litið á hneturnar hjá strákaliðunum. Mér til mikillar furðu voru þeir allt í einu komnir með einhverjar 7-8 hnetur þó svo að þeir hafi í mesta verið búnir að fá 5 spurningar og alls ekki svarað þeim öllum rétt...!!! Það er ekkert gaman að svindla ef það er svona augljóst... Það trúir því enginn að maður sé eitthvað gáfaður ef allir sjá að maður svindlar fram í rauðan dauðan Cool

Jæja gott í bili
Sandra Pandra

Togara-ferđiSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði nú sæl og blessuð.
Nú er veturinn mættur á nýjan leik á Höfn, þriggja stiga frost. Ég veit, ég veit... fyrir ári síðan hefði ég nú fussað og sveiað yfir því að þetta "pakk" á suðurlandi var að væla yfir smá frosti því það kom svo sannarlega oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fyrir að það færi undir 10 gráðu forstið í Hjaltadalnum. En ekki orð um það meir.

Um helgina átti hún Ragna Björk afmæli og í tilefni að því var haldið matarboð á Fákaleirunni. Mér var meira að segja formlega boðið í mat þangað... Sem er svolítið spaugilegt því ég borða þar nánast á hverju kvöldi... Húsfreyjan töfraði fram tvær gerðir af lasagne og kjúklingarétt. Á eftir var svo kökuhlaðborð af stærri gerðinni. Ég get sagt ykkur það að ég var frekar mikið södd það kvöldið, enda ekki annað hægt. Þegar klukkan fór að nálgast miðnætti byrjaði Rush hour 2 í sjónvarpinu og allir íbúar Fákaleiru 8c voru komnir í náttbuxur og kósíheit í sófanum. Þá ákvað ég að nenna ekki lengur að hanga í sparifötunum og dreif mig heim á Dalbrautina svo ég gæti líka farið í náttföt... En þar sem ég stend inni í svefnherberginu mínu með náttbuxurnar í höndunum þá pípir síminn minn. Mér var sum sé boðið í teiti á Höfðavegnum. Þar með fuku náttbuxurnar aftur undir sæng og ég út í kuldann á nýjan leik. Það var voða gaman að hitta fólkið aftur eftir þetta langa jólafrí, mikið um aulahúmor og mikið hlegið og mikið gaman. Auðvitað var kíkt á Víkina og nokkrar mínútur og svo upp í Ósland og loks aftur á Höfðaveginn. Seint og um síðarmeir var einn sjómaðurinn í hópnum kallaður í vinnu, sem reyndist svo ekki mikil vinna... bara ekki nein. En afþví að klukkan var orðin margt og sennilega of svæsið að herja enn einu sinni á húsbóndann á Höfðaveginum var okkur boðið í sight seeing túr um togarann mikla. Sum ykkar eigið eflaust ekki eftir að trúa því en ég fór um borð og varð EKKI sjóveik! Kannski var það vegna þess að dollan var kirfilega fest við land og ekki nema örfáir metrar niður á hafsbotn... Ég held ég hafi aldrei farið um borð í togara áður, amk ekki fengið að skoða hann hátt og lágt, ég fékk meira að segja einhverja sýningu frá skipstjóranum á tækjum sem ég hef ekki hugmynd um hvað heita Cool Þetta var sem sagt fínasta kvöld og ég er ekkert óhemju sár yfir að hafa misst af Rush hour 2... enda hef ég séð hana svona 4 sinnum....

Í kvöld kemur svo Fákaleiru fólkið í kjúlla til mín á Dalbrautina. Ætla að prófa fína fína grillið sem ég fékk í jólagjöf.

Bless bless ekkert stress...
Sandy

Mćtt á HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Gleðilegt nýtt á öll sömul og takk fyrir það gamla.
Ég vona svo sannarlega að þið hafið haft það gott yfir hátíðirnar, þannig var það allavega hjá mér.

Nú er ég aftur mætt í sveitina og byrjuð að vinna af krafti... eða ég veit nú ekki með kraftinn, það er eiginlega of langt að fara í tveggja vikna frí. Allavega gengur eitthvað erfiðlega að snúa sólarhringnum við til baka Smile 
En vegna þess að ég hef ekkert getað farið að sofa á skikkanlegum tíma þá hef ég lesið lifandis ósköp. Sem dæmi þá kláraði ég síðustu Harry Potter bókinni og lauk þar með ævintýrinu sem hófst úti á Krít fyrir einu og hálfu ári síðan. Kannski dæmiði mig sem einhvern krakka-bjálfa en ég held þó ekki því það eru bara alveg ótrúlega margir sem hafa lesið allar bækurnar. Síðustu bækurnar eru líka svo fullorðinslegar og dimmar og margt að gerast en samt svo dæmalaust fyndnar. Ég skellti allavega oft uppúr upphátt þó svo að Voldemort væri alveg að ná Harry og heimurinn væri að farast.

Ég fékk líka bókina hans Arnardar um jólin, Myrká. Í fyrsta sinn hef ég orðið fyrir vonbrigðum með bók eftir hann. Vissulega eru þær misjafnar og ekki allar meistaraverk en mér hefur aldrei fundist leiðinlegt að lesa hann. Núna þurfti ég samt oft að einbeita mér að því að fara að lesa. Bókin er skrifuð út frá Elínborgu og Erlendur kemur ekkert við sögu. Rúmlega helmingur bókarinnar fjallar því um matreiðsluáhuga hennar og samskipti við börnin, sem í sjálfu sér væri alveg hægt að gera áhugavert en Arnaldi tekst það samt einhvern veginn ekki. Ég er með kenningu. Arnaldur er með einhvern samning við útgáfu þar sem stendur að hann verði að gefa út bók fyrir hver jól. Hann er með stóra bók í deiglunni en hún var samt ekki tilbúin fyrir þessi jól heldur á að koma út 2010. Þess vegna varð hann að gjöra svo vel og skrifa eitthvað á blað núna til að standa við samninginn. Auðvitað hef ég ekkert fyrir mér í þessu en þetta fékk ég samt á tilfinninguna Cool 

Framundan er þorrablót Hafnarbúa sem haldið verður 24. janúar. Mér skilst að maður sé alls ekki maður með mönnum nema mæta. Eru ekki einhverjir sem hafa áhuga á að koma og panta gistingu á Dalbraut 8... Hafiði bara samband við hótelsstjórann sem allra fyrst Wink 

Já og myndir frá Gamlárskvöldi eru komnar inn á myndasíðuna (já ég var lasin og því ótrúlega mikið klædd miða við alla aðra Cool)

Óver and out
Sandra

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur