Jól og áramótSandra Björg Stefánsdóttir
Komiði öll sælog blessuð nær og fjær.Nú eru jólin að verða búin og bara nokkrar mínútur (klukkutímar) í áramótaskaupið og flugeldana og þá hlakkar Söndru Björgu til

Það sem á daga mína hefur drifið er heilmargt. Á þorláksmessu hringdi hann Þorri (yfirmaðurinn minn) í mig og sagði að það liti allt út fyrir að ríkisstjórnin væri búin að sjá ljósið og rekstri Háskólasetursins væri borgið. Að sjálfsögðu verður skorið niður en engu að síður fáum við nóg fjármagn til að halda því opnu. Afskaplega góðar fréttir svona rétt fyrir jólin.´
Aðfangadagur gekk í garð og ég fékk margar fallegar jólagjafir, bækur, hnífasett, Georg Forman grillið, hálsmen, kertastjaka, geisladiska og síðast en ekki síst slökkviliðs-dagatalið þar sem slökkviliðs menn Reykjavíkur eru léttklæddir ámyndum. Já hún Sólveig þekkir systur sína og áhuga minn á fallegum karlmönnum
Hann Hafþór fékk eina mjög skemmtilega jólagjöf, þyrlu sem á að vera hægt að fljúga innanhúss, fjarstýring og alles. Nema hvað gripurinn vildi ekki upp heldur hringsnérist bara á stofugólfinu vði ámælda gleði okkar systra. Haffi bar sig vel en var auðvitað drullufúll meðan við systur grétum úr hlátri. Það eru komnar fullt af myndum inn á myndasíðuna mína, eins eru myndir af ofur-hjórhjóla-skónum sem gömlu gáfu hvort öðru í jólagjöf. Alveg þess virði að skoða myndir af því 
Á jóladag komu börnin hans Þorbjörns og barnabörn í hangikjöts-jólaboð þar sem allir borðuðu á sig gat hvort sem þeir væru á fyrsta ári eða sextugs aldri.
Fyrir utan blessuð jólaboðin hef ég hitt vinina og klifrað eins og mest ég má. Örn er duglegur að peppa mig upp þegar ég hryn í gólfið endalaust og meira að segja Solla kom með í eitt skiptið. Hún stóð sig eins og hetja og hver veit nema hún komi bara með aftur einhvetíman.
Áka bauð okkur "gömlu" vinunum í innfluttningspartý á laugardaginn þar sem margir útlendinganna mættu ásamt okkur hinum. Útlendingarnir Simmi, Hrönn og Jónas og Elísabet ráku inn nefið en Ingvar og Hjördís komust ekki. Enda teljast þau varla sem útlendingar heldur bara tveggja barna foreldrar
Það var ólýsanlega gaman að hitta allt liðið aftur, mikið hlegið af endalaustum aulahúmor eins og í gamle dage. Myndir inn á myndasíðunni að sjálfsögðu.Hrefna og Sæmi buðu mér svo í mat í fyrrakvöld í Njarðvíkinni. Þau eru með STÓRT jólatré... bara hafa það á hreinu! Hrefna eldaði rosa góða purusteik og bauð upp á heimalagaðan ís á eftir. Alvöru húsmóðir á ferð. Aníta Ósk er orðin svo þroskuð og mikil himnalengja að mér brá þegar ég sá hana. Mér finnst ég ekki hafa elst um mínútu síðan ég brunaði upp á fæðingadeild til að sjá hana í fyrsta sinn. Ég hitti líka hann Óðinn Örn í þessu matarboði. Kátara barn hef ég nú sjaldan séð, hann var bara alltaf hlæjandi og alveg til í að leika við Söndru frænku þó hann hefði bara séð mig einu sinni á fæðingardeildinni áður.
Í kvöld verður svo allt barna og barnabarna stóðið í mat í Álfatúni 35. Nema Solla og Haffi sem borða hjá mömmu Haffa en koma svo í Álfatúnið til að horfa á flugeldana, enda varla annað hægt. Boðið verður upp á kalkún en fuglinn er svo stór að hann tekur hálft borðstofuborðið... smá ýkjur í tilefni dagsins en grínlaust þá er þetta einhver tröllafugl og ég held að Alexander Mána hafi ekki staðið á sama þegar hann sá hann þyðna á eldhúsborðinu í fyrradag.
Jæja þetta er nóg í bili, endilega skoðiði myndirnar mínar og hafiði það svo sem allra best í kvöld

Sandy Dandy
Reykjavík og jólafríSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er ég komin í Álfatúnið í jólafrí. Alltaf gott að koma heim þó svo að appelsínugula herbergið sé alveg galtómt. Ég get nú engum öðrum en sjálfri mér þar um kennt þar sem það var ég sem tók upp á því að flytja austur á Höfn með allt mitt hafurtask
Annars fékk ég ekki góðar fréttir með mér í jólafríið. Það er hugsanlegt að ríkistjórnin skeri á öll framlög til háskólasetursins sem þýðir bara eitt... atvinnuleysi fyrir Söndru. Það var því ánægjulegt að frétta af því að fjárlaganefnd skilaði inn tillögu um fjárlögin í dag og þar kemur fram að þau vilja auka framlög til nokkurra háskólasetra, þ.á.m. setursins á Höfn. Vissulega er leiðinlegt að hugsanlega verður að leggja niður sum setur á landsbyggðinni en ef ég hugsa út frá sjálfri mér þá þýðir þetta að vinnan mín er örugg út næsta ár. Eins og ég sagði er þetta bara tillaga frá fjárlaganefnd en fjárlögin verða svo afgreidd á morgun. Það þýðir því ekkert annað en að krossleggja fingur og vona að þetta rætist.
Annars er ég ekki búin að gera margt síðan ég kom í bæinn, sofa og sofa aðeins meira... hausinn á mér var á einhverju sýrutrippi síðustu dagana á Höfn þannig að kannski var full þörf á þessum svefni
Skemmtilegast af öllu var samt að ég hitti Örn í gær og við fórum í KLIFURHÚSIÐ...!!!! Jeijjjj... Við skulum ekkert ræða um ástand vöðvanna minna í dag... Ég var bara nokkuð sátt við hvað ég afrekaði í gær. Ekki það að þolið hafi verið mikið, náði samt að klára ansi margar leiðir í fyrstu tilraun en þegar ég fór að detta þá var orkan líka alveg búin og ekki í umræðunni að gera meira. En það er allt í lagi því við förum bara aftur á morgun 
Í gær fórum við Drífa í jólabíóið okkar. Sáum Four Christmases... svo kíktum við á ljótu-jólaskrauts-rúnt. Árið í ár virðist vera nokkuð gott, krppan virðist halda aftur af hörmungunum. Það verður þó að viðurkennast að nokkur hús í Kópavoginu voru einstaklega ósmekkleg... vægt til orða tekið...!!!
Núna á eftir ætla ég svo að hitta Skinkurnar... eintóm hamingja...
Jæja gott í bili
Sandra
PiparkökuskreytingarSandra Björg Stefánsdóttir
Komiði nú öll sæl og blessuð (já ég horfði á sjálfstætt fólk í gær)Í dag er það að frétta af Sandy að nú vinn ég hörðum höndum að því að skila inn umsókn til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um styrk til verkefna í menningartengdri ferðaþjónustu. Hehehe hljómar vel... og væri náttúrulega frábært ef ég gæti gert þetta ein en það er nú alls ekki þannig. Við Sigrún Inga bjuggum til drög að umsókn á föstudaginn, hún sér um söguslóðaverkefnið og ég um Humarhátíðina. Umsóknin var svo í yfirlestri hjá Þorra um helgina og núna hvað á hverju hefst lokahnykkurinn. Það á sum sé að skila umsókninni inn í dag. Þó þessi vinna sé mjög skemmtilegt þá hefur fátt komist að annað en Humarhátíðin síðustu vikurnar þannig að það verður ágætt að fá smá pásu yfir jólin

Um helgina stungu Ragna og Heiðar af á hótel Hvolsvöll með vinnunni hennar Rögnu. Þess vegna var ég að snúast með litlu börnunum mínum um helgina... hehehe, þær eru kannski frekar systur mínar en dætur... eða bara bland af þessu öllu saman því ekki má gleyma að staðreyndin er að þær eru frænkur mínar.
Á föstudaginn var fimleika sýning hjá Ásu Tásu og hún stóð sig alveg rosalega vel... ekki að sjá að hún hafi aðeins æft í 2 mánuði... Þarna voru líka Ragna Steinunn og Axel sem þýðir að ég tók að sjálfsögðu helling af myndum. Er samt ekki búin að setja þær inn á myndasíðuna en það hlýtur að gerast hvað á hverju...
Um hvöldið keppti Anna Regína svo í söngkeppni Þrykkjunnar. Ekkert lítið að gerast hjá skvísunni, leikari... döngvari... á tímabili var hún líka hönnuður... Hægileikarík er hún
Regína og Sunneva kepptu saman og stóðu sig alveg rosalega vel, ég var svo stolt frænka. Þær unnu ekki þetta árið enda skiptir aðal máli að vera með, þær taka þetta bara næst eða þarnæst. Að öðru leiti fór helgin bara í prjónaskap og piparkökuskreytingar, alveg eins og þær eiga að vera svona rétt fyrir jólin. Reyndar skrapp í smá partý "upp í stú" sem er hið fræga Stúdjó í kjallaranum á gamla KASK. Ég var bara að átta mig á því núna að sennilega er þetta staðsett þar sem kaffistofan var þegar ég vann þarna um árið... heheh aðeins örðuvísi innréttað.
Nú fer ég að komast í jólafrí... og þá liggur leiðin suður. Planið er að borða góðan mat, hitta vinina, hitta famelíuna, vera í jólaskapi og síðast en ekki síst.... KLIFRA!!! jeijjjj loksins... Greyið Örn á ekki eftir að fá frið fyrir mér

Jæja gott í bili
Sandra
Frostrósir- Jólakrans- LaufabrauđSandra Björg Stefánsdóttir
Nú eru jólin mætt í Hornafjörðinn, loksins loksins loksins kominn snjór
Reyndar er ekkert á kafi, enginn Hjaltadalssnjór en nóg til að lýsa upp skammdegið. Margir eru líka búnir að setja upp jólaseríur og aðventuljós svo nú hlusta ég bara á létt-jóla-bylgjuna daginn út og inn og syng mig hása. Síðasta mánudag bjó ég til minn fyrsta aðventukrans. Mamma lét mig fá hring og gertastjaka þegar ég var í bænum þannig að ég hafði enga afsökun fyrir því að gera ekki krans. Reyndar langaði mig mjög mikið til að fá grenilykt í litlu íbúðina mína þannig að ég lagði mig ekkert fram við að leita að afsökun. Ég er að sjálfsögðu búin að taka mynd af kransinum en hef því miður ekki haft tíma til að setja þær inn í tölvuna svo þið verðið bara að bíða spennt... Kransinn er mjög einfaldur og lítið skraut á honum... en nákvæmlega þannig vildi ég hafa hann þannig að ég er ánægð

Í vinnunni stóðum við fyrir samkeppni um einkennismerki fyrir NEED verkefnið en það snýst um umhverfið og jarðfræði eins og ég hef sjálfsagt allt of oft sagt ykkur. Þátttakendur í könnuninni voru börn á aldrinum 11-15 ára og ég verð bara að viðurkenna að það kemur mér mjög svo á óvart hvað þessu litlu grey hafa mikla þekkingu á jarðfræði, myndirnar eru margar alveg hreint frábærar. Nú fer allur tíminn minn í vinnu í að skanna þær inn og senda út til alþjóðlegu dómnefndarinnar. Að sjálfsögðu gerum við ráð fyrir að ísland vinni þessa keppni.... ÍSLAND BEST Í HEIMI!!! Í vinnslu er heimasíðan www.need.is og enginn annar en aðal maðurinn er að hanna hana fyrir okkur, Heiðar Sigurðsson... Þó hún sé ekki alveg fullkláruð þá getið þið kíkt á hana og skoðað um hvað verkefnið fjallar, markhópa, samstarfsaðila og svona... þ.e.a.s. ef þið hafið áhuga á því

Hvað haldiði að ég sé að fara að gera á morgun??? Ég er að fara á FROSTRÓSATÓNLEIKA!!! Ég hlakka svooo til, mig hefur alltaf langað, svo í fyrra bauð Þorbjörn okkur mömmu, Sollu og Sædísi á tónleika í Laugardalshöllinni. Þá hét ég því að ég myndi alltaf fara á tónleika ef ég mögulega gæti. Þær eru svo frábærar söngkonur og þetta er svo hátíðlegt...
Á laugardaginn er jólamarkaður í Nýheimum og jólahlaðborða á Hótel Höfn um kvöldið fyrir starfsmenn Nýheima. Á sunnudaginn fer ég svo með Fákaleiru-fjölskyldunni í laufabrauðs gerð.
Já jólin eru svo sannarlega að koma á Höfn í Hornafirði

Bless í bili Sandra
