Sumarbústađur í SkorradalSandra Björg Stefánsdóttir
Hæ hæ,datt í hug að henda hér inn stuttri færslu af því að það er svo ógurlega langt síðan ég skrifaði síðast

Um síðustu helgi dreif ég mig til stórborgarinnar á suð-vestur horni landsins. Þannig var að á Grand Hótel var haldin Ferðamálaþing og að sjálfsögðu fara allir þangað sem vettlingi geta valdið. Erindin voru svo sem óttarlegar lofræður þar sem fólk dáðist af sjálfum sér og sínum afrekum en það er held ég alltaf þannig á svona þingum. Enda snýst þetta í sjálfu sér ekki um að hlusta á fyrirlestra, þetta snýst um að hitta fólk sem ég svo sannarlega gerði. Mér fannst alveg ótrúlega gaman að hitta allt þetta Hólafólk, og ekki skemmdi fyrir að þetta var sennilega í fyrsta skipti sem ég fer á svona þing og þekki mun fleiri en bara Hólafólk. Hver segir svo að það borgi sig ekki að standa í því að halda ráðstefnum... Ætli það hafi nokkur verið svo vitlaus að halda því fram

Þingið var sum sé haldið á fimmtudaginn en á föstudaginn hélt ég beina leið í bústað með mömmu og Þorbirni. Hann var í Skorradalnum og hefur verið annað heimili Þorbjörns í vetur þegar hann er úti á landi að vinna. Á föstudeginum mættum við mamma, Þorbjörn, Sædís og Ólöf og svo allur barnaskarinn. Þetta fór nú bara alveg ótrúlega vel fram allt saman. Á laugardagskvöldið komu svo Solla, Haffi, Sveinn og Þórdís. Við Sædís voru sérstaklega duglegar að ferðast á fjórhjólinu sem var nýtt fram í rauðan dauðann þessa helgina. Á föstudeginum fórum við bara stuttar ferðir enda orðið dimmt snemma en á laugardeginum... þá var sko tekið á því... Fórum í tvo laaaanga túra sem báðir tóku nokkra klukkutíma. Fyrst ætluðum við að fara hringinn í kring um vatnið þarna við bústaðinn en þegar við vorum konar leeeeengst hinumegin áttuðum viðokkur á því að við kæmust ekki alla leið og snérum við. Þess vegna var ekkert annað í stöðunni að leggja af stað hinn hringinn og sjá hversu langt við kæmumst, þ.e.a.s. eftir að hafa gætt okkur á nýbökuðum pönnukökum hjá mömmu. Þá hófst nú stuðið og þvílíkar torfærur sem við lentum í... úff hvað þetta var gaman

Því miður hugsa ég svo mikið um að taka hleðslutækið fyrir myndavélina með að ég gleymdi sjálfri myndavélinni...! Já ég veit... Aulaverðlaun dagsins í dag hlýtur... SANDRA! En hún Ólöf tók helling af myndum sem hún ætlaði að brenna á disk og deila með okkur.
Ég mætti svo til baka á Höfn í Hornafirði eldsnemma á mánudagsmorguninn með tvær ferðatöskur og einn kassa fullt af jólaskrauti

Nú er jólastemningin sum sé mætt á Dalbrautina, eitthvað verður maður til bragðs að taka fyrst Bítla-showið er búið og engin almennileg dagskrá eftir vinnu. Ekki það, það er svo mikið að gera í vinnunni að ég gæti svo sem verið að allan sólarhringinn... en held ég væri fljót að brenna út ef það væri málið. Í kvöld fer ég svo á jólahlaðborð hjá Slysó sem ég er nota bene orðinn félagsmaður í (Slysavarnarfélagið) Á morgun er svo fyrsti fundur hjá Singles-klúbbnum Kidda. Þannig að kannski var ekki alveg rétt að segja að það væri engin dagskrá hjá mér....

Bless í bili krúttin mín og endilega kvittiði nú fyrir mig
Sandy
Uppsekruhátíđ á SmyrlabjörgumSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er ég komin heim eftir frábæra helgi á Smyrlabjörgum. Tilefnið var uppskeruhátíð Skemmtifélagsins eins og ég hef svo oft minnst á undanfarið.Við héldum galvösk af stað um kvöldmatarleitið á föstudeginum, í Pollanum vorum við þrjú, ég, Gulla og Júlli. Ragna og Heiðar fóru á sínum bíl, Nanna og Frikki ásamt hljóðkerfinu á einum trukki og svo Ingólfur á sínum. Saman skemmtum við okkur endalaust vel fram á morgun... já eða kannski ekki... ég fór nú snemma í rúmi svona til tilbreytingar... aldurinn farinn að segja til sín
Þetta var bara svo kósí... sofið langt fram eftir á laugardeginum, drusslast í morgunverð einhvetíman um hádegið og svo bara kjaftað og hlegið út í rauðan dauðan. Upprunalega planið var að fólk mætti í sveitina um kl. 14 og við færum út í leiki, en um kl. 15.30 varð okkur ljóst að það ætlaði enginn að mæta í leikina nema við þannig að við skelltum okkur út í frosthörkuna. Ég hef ekki hlegið svona mikið í ég veit ekki hvað langan tíma. Hann Frikki var með hugmynd af fótbolta leik þar sem við værum með einhver furðulegustu gleraugu í heiminum á hausnum. Þið verðið eiginlega bara að skoða myndirnar til að átta ykkur á þessu. Maður sá lítið sem ekkert sem varð til þess að oftar en einu sinni og tvisvar þá spörkuðu menn út í loftið og duttu um hvern annan og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum líka í eltingaleik þar sem menn voru bundnir saman á fótunum og svo í pylsa í potti sem er svona myndastyttuleikur. Það var mjög frískandi og skemmtilegt að fara svona út og ég er ekki frá því að ég hafi kynnst fólki örlítið betur við herlegheitin 
Nú þegar inn var komið fórum við stelpurnar að föndra kórónur sem afhendar voru um kvöldið. Sólveig skvísa varð 18 ára á laugardeginum og svo krýndum við Singing bee meistara hátíðarinnar.
Allt fór þetta vel fram. Við rákum fólkið í boðhlaup áður en við fórum að borða, bara svona afþví að þau héldu að þau gætu sloppið við að leika sér. En við vorum ekki búnar að funda stíft og burðast með allskonar dót landshorna á milli til þess að þau myndu sleppa.... nei ó nei.... ókí pínu ýkjur en ókey...
Júlli var svo búinn að útbúa myndband með klippum frá æfingatímabilinu... Ótrúlega fyndið og ég vona svo sannarlega að ég fái það á diski til að eiga... Fullt af einkahúmor og bröndurum sem eiga seinnielga eftir að gleymast ef maður ehfur ekki myndband sem þetta til að rifja allt upp.
Ég mæli með því að þið skoðið myndirnar og upplifið þessa svakalegu skemmtun með mér

Takk fyrir mig Skemmtifélag 2008... þetta hefur verið alveg BRILLIANT tími..!!!!
knús Sandra
KUSK BALLSandra Björg Stefánsdóttir
Nú er kominn tími til að koma sér í gott skap!
Hann Heiðar frændi minn var að senda mér link á eina stórskemmtilega síðu. Hann er búinn að setja upptöku af síðasta Bítlaballinu á hótelinu inn á síðuna sína svo nú er um að gera að hita upp fyrir helgina, hækka í botn og tjútta laglega. Það geri ég allavega og skemmti mér KONUNGLEGA 
http://heidarsig.net/kuskball.mp3
bless í bili
Sandra
Góđan dag... góđan dag...Sandra Björg Stefánsdóttir
Ætli það sé ekki kominn tími til að blogga aðeins
Um síðustu helgi var heilmikil ráðstefna hér í Hornafirði um Atvinnumál við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem ég aðstoðaði rósu í Ríki Vatnajökuls við að skipuleggja. Þetta var svo frábær ráðstefna að ég á ekki orð. Hljómar kannski frekar undarlegt þar sem ég kom að skipulagningunni en... Ég hefði verið tilbúin til að borga mikið fyrir að komast þangað ef aðstæður hefðu verið aðrar. Mikill tími fór í ræða um það sem mér finnst óendanlega skemmtilegt þessa dagana en þaðe rfjallamennska. Ég skráði mig í umræðuhóp um fjallamennsku og viti menn þar voru líka einstaklingar eins og Einar Torfi, Einar í Hofsnesi og Jökull Bergmann ásamt mun fleirum... ég fílaði þetta í tætlur. Þarna kviknuðu endalausar hugmyndir... Ég er meira að segja að hugsa um að stela einni eða tveim og þróa inn í NEED verkefnið. Ætla ekkert að segja of margt of snemma en klifur kemur við sögu... og kennsla... og börn... og fullorðnir.. og Höfn...




Reyndar lagðist ég í pest eftir málþingið... eina svakalegustu gubbupest sem sögur fara af. Ætla ekkert að fara nánar út í það hér en þetta er víst að ganga hér á Höfn og því skilur annar hver Hafnarbúi hvað ég á við þegar ég nota þessi stóru lýsingarorð!!!
Næsta helgi verður svo ein skemmtilegasta sem sögur fara af... Það vill þannig til að Skemmtifélagið verður með lokahóf á Smyrlabjörgum. Farið verður á föstudegi og kemið aftur á sunnudegi og yours truely er í Skemmtinefnd ásamt Nönnu og Gullu skvísunum ógurlegu. Við erum því að tala um gleði, gleði, gleði, gleði, gleði... Ég bara sár VORKENNI þeim sem sjá sér ekki fært að mæta

Jæja best að fara að vinna fyrir laununum sínum
Adios
Sandra
Bítla show á endaSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er Bítla-æðið bara búið... Það er eiginlega alveg ótrúlegt hvað þetta er búið að vera skemmtilegt og fljótt að líða.Síðasta sýningin var á laugardaginn var, Harpa og Heiða skvísur komu galvaskar úr Reykavíkinni svo það var endalaust stuð á Dalbrautinni... eins og reyndar alltaf

Við kjöftuðum langt fram á morgun á föstudagskvöldinu þannig að við gerðum eiginlega voða lítið á laugardeginum. Ég fór með skvísurnar í þennan hefðbundna göngutúr um bæinn, svo tókum við rúnt og enduðum í Fákaleirunni þar sem við horfðum á landsleikinn. Enda urðum við að taka þessu rólega því um kvöldið var jú sýningin ógurlega... ekkert vit í að eyða orkunni yfir daginn...
Ég hafði eiginlega ekki miklar væntingar til þessarar sýningar því næst síðasta sýningin (og ballið) voru svo ótrúlega skemmtileg að ég var viss um að ekkert mundi toppa það... en það kom á daginn að ég hafði rangt fyrir mér því þetta var alveg ENDALAUST skemmtilegt... og þess vegna er eiginlega enn sorglegra að þetta sé búið. Allt of langt að bíða í eitt heilt ár eftir því að þetta byrji aftur! Já ég held að það sé óhætt að fullyrða að ég verði með að ári...

Nú tekur við ráðstefna um næstu helgi um Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem haldin er hér á Hornafjarðarsvæðinu. Endilega skoðiði hana hér, margir MJÖG skemmtilegir fyrirlesarar

Svo meigið þið líka kíkja á frétt inni á hornafjordur.is sem hún Sigrún Inga skrifaði um okkur á Háskólasetrinu.
Nú er ég búin að setja inn svolítið af myndum frá NEED ráðstefnunni, endilega skoðiði.
Jæja þá er þetta gott í bili
Sandra
