Djamm-ćfingar-djammSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er helgin afstaðin... helgin sem átti að fara í rólegheit, afslappelsi eftir allt stressið undanfarið, að ég tali nú ekki um svefn!!! Plönin breyttust aðeins... og bara sennilega til hins betra Glottandi

Singstar


Á föstudagskvöldið var æfing á showinu og eftir það hörku singstar partý sem stóð langt fram á morgun... Þvílíkt stuð... Þá átti nú ekki að gera neitt á laugardaginn og það stóðst nokkurn veginn til að verða 23.00 því þá fékk ég sms frá Nönnu skvís um að koma á ball með KUSK... og AÐ SJÁLFSÖGÐU skellti ég mér á ball Svalur Þvílíkt stuð... fyrir ykkur sem ekki vitið það þá er KUSK hljómsveitin sem leikur undir í showinu, svona að stórum hluta allavega, svo eru alltaf einhverjir athygglissjúkir einstaklingar sem troða sér upp á svið með þeim allt ballið... Ég hafði ekki farið á almennileg dans-djamm síðan einhvetíman fyrir norðan og átti því töluvert uppsafnað af danskvóta sem var nýttur út í ystu æsar... Á leiðinni í eftirpartý dundi þetta svakalega haglél á bílnum. Sem betur fer voru allir komir inn í Pollan nema Stjáni greyið sem varð hálf vankaður fyrir vikið Svalur Ég varð hrædd um að það kæmu beyglur í bílinn... ég get svo svarið það Glottandi
Í gær var svo æfing-æfing og æfing... gaman gaman gaman... já og auðvitað Svartir Englar og Dagvaktin!

Eitt að lokum, þið ykkar sem ætlið að koma á showið... PANTIÐI MIÐA STRAX... skilst að það sé allt að verða uppselt!!!

Matseðill
  Forréttur: Tortilla bleikja - Heit humarfroða - Humar vorrúlla
  Aðallréttur: Hægeldaður lambaskanki með tómatmauk sósu

  Eftirréttur: Hvítt súkkulaði skyr frauð með mangó ís og ananas

Jæja gott í bili... kíkið endilega á myndirnar
Ciao Sandra

Myndir frá nýju íbúđinni Sandra Björg Stefánsdóttir

Síðustu daga hef ég verið í hálfgerðri fýlu og ekki nennt að blogga því teljarinn á síðunni sýnir alltaf bara að tveir hafi skoðað hana síðasta sólarhringinn... nema hvað nú ákvað ég að kíkja inn í stjórnunarkerfið á teljarann og sá að ég get tekið ánægju mína á nýjan leik. Teljarinn á forsíðunni er bara bilaður enn einu sinni... Nú þegar hafa 20 manns kíkt á síðuna mína... þó enginn hafi kvittað... hmmmmm Svalur

íbúðin mín

Nú er íbúðin mín alveg tilbúin, búin að hengja upp allar myndir og þess háttar. Mamma og Þorbjörn komu til mín um síðustu helgi og hjálpuðu mér að leggja loka hönd á verkið. Mamma kom líka með fullt af blómum frá sér og Grétu þannig að nú er heilmikið líf í íbúðinni.
Ég tók nokkrar myndir um helgina og þær eru nú komnar inn á myndasíðuna mína.

Nú eru æfingarnar á Bítla showinu komnar á fullt, við fluttum dótið allt upp á hótel í gærkvöldi þannig að nú er alvaran tekin við... þetta verður alveg rosa gaman... Solla er að hjálpa mér að finna búninga og allt að gerast Brosandi
jæja gott í bili
Sandra

Dalbraut 8, 780 HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Fluttningur


Þá er ég formlega flutt úr Fákaleiru 8c. Nýtt heimilisfang er:

Dalbraut 8
780 Höfn Hornafirði

Ég er búin að sofa 3 nætur og líkar svona líka vel Brosandi En ég hefði aldrei getað gert þetta ein, Solla og Haffi hjálpuðu mér að mála og svo hafa Ragna og Heiðar verið endalaust dugleg við að hjálpa mér að setja saman húsgögn, hengja upp gardínur, tengja þvottavél og ég veit ekki hvað og hvað... takk takk takk

Hvað haldiði samt að ég sé búin að gera? Haldiði ekki að ég sé komin í Skemmtifélagið hér í bæ...! Í ár á að setja upp Bítla Show og verð ég ein af þátttakendum. Um helgina var þess vegna haldið söngnámskeið. hún Hera Björk koma alla leið úr Reykjavík til að leiðbeina okkur og það sem við skemmtum okkur vel. Ég hefði ekki trúað því hvað hún gat leiðbeint okkur vel. Allir bættu sig um amk 50% og voru flestir alveg nógu góðir fyrir.Sýningar hefjast í byrjun október og ég geri fastlega ráð fyrir að allir vinir mínir mæti Svalur Endilega pantiði miða sem allra fyrst...!!!!

Annars er nóg að gera í vinnunni... ráðstefna í lok október og allt á fulle farte...

jæja gott í bili
Sandra

Afmćli og fluttningarSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er kellan orðin gömul... Hvorki meira né minna en 25 ára... Svalur
Solla og Haffi brunuðu hingað austur til mín á föstudaginn en þá var einmitt Garðpartýið svakalega í Fákaleiru 8c. Það var alveg ótrúlega skemmtilegt þó veðrið væri kannski með verra móti. Frissi fór á kostum sem break-dansari sem endaði með því að hann og annar gestur samkvæmisins fóru í break-dans-keppni... Annað sem slóg í gegnn var eggja-suðu-tækið hans Heiðars. Það slóg í gegn og hvorki meira né minna en heill eggjabakki var soðinn til að sýna hvernig græjan virkar...! Von bráðar koma inn myndir af herlegheitunum á myndasíðuna mína. Sigga og Steini mættu líka austur á Höfn í partýið þannig að afmælisdeginum sjálfum var eytt í góðra vina hópi í Fákaleiru 8c. Við borðuðum frábæran mat og höfðum það gott allan daginn.
Á sunnudaginn pískaði ég Sollu og Haffa út og lét þau hjálpa mér að mála loftið í nýju íbúðinni minni. Já ég er sko búin að fá hana afhenda Brosandi Í gær fékk ég svo húsgögnin send að sunnan þannig að hægt og rólega er ég að koma mér fyrir. Ragna, Heiðar, Anna Regína, Elín Ása og Ragna Steinunn stóðu á haus allan gærdaginn við að hjálpa mér. Ómetanleg aðstoð... Kannski ekki við öðru að búast þegar "elsta barnið flytur að heiman".... Á morgun fer ég til Húsavíkur og verð fram á föstudagskvöld þannig að ég geri ekki ráð fyrir að flytja formlega fyrr en á laugardaginn... enda er það bara allt í lagi "Laugardagur til lukku" Glottandi

Bless í bili

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur