ReykjavíkurferđSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er ég kom á Höfn aftur eftir magnaði Reykjavíkurferð. Þvílíkt maraþon... Hnjúkurinn hefði örugglega verið pís of keik miða við þettaÉg mætti í borgina með flugvél Arna um klukkan hálf sjö að kveldi. Þá var ekkert annað í stöðunni en hefjast handa við að pakka niður dótinu mínu í kassa. Ég verð eiginlega að viðurkenna að það er stórmerkilegt að allt þetta dót hafi komist fyrir í litla appelsínugula hefberginu mínu... úffff....
Á laugardeginum hófst svo maraþonið fyrir alvöru. Ikea - Byggt og búið - (Kringlan og Smáralindin) - Rúmfatalagerinn og svo pakka öllu niður. Ég gaf mér nú smá tíma til að kíkja á ömmu og afa en þau eru nú flutt frá Króknum í bæinn í þessa fínu íbúð uppi í Norðlingaholti. Þau voru reyndar á leiðinni í 50 afmæli til Lindu svo stoppið var nú stutt. Þá var brunað í Álfatúnið á nýjan leik og pakkað niður. Solla og mamma áttu nú stóran hlut í því að verkið kláraðist nokkurnveginn... ég var orðin svo rugluð í toppstykkinu að ég snérist bara í kringum sjálfa mig. Um klukkan 22 héldum við Solla og Haffi svo niður á Miklatún á tónleika og svo á flugeldasýningu niðri við höfn. Þar hitti ég nánast alla sjálfboðaliðana og það sem það var gaman. Ótrúlegt hvað maður getur eignast marga góða vina á stuttum tíma... og svo þarf maður að kveðja þá. Mér finnst ég alltaf vera að kveðja fólk, búin að gera alltof mikið af þvi síðustu árin... Nei nei ég segi svona... ég á þá allavega heimboð um alla Evrópu og vísa gistingu hringinn í kringum Ísland... það er nú meira en margir
Á sunnudeginum var svo vaknað fyrir allar aldir og horft á leikinn ógurlega, þó svo að hann hafi nú ekki endað með sigri þá var gaman að horfa á hann undir sæng í lazy-boy stólnum hennar mömmu... Ég er óendanlega stolt af strákunum og þeir eiga fálka-orðuna fyllilega skilið eða eins og hún Ragna orðaði það svo vel í gær "Fólk er að fá fálkaorðuna fyrir að vinna vinnuna sína svo þeir eiga hana svo sannarlega skilið"
Nú bíð ég bara eftir að fá íbúðina afhenda, vonandi verður það fyrir helgina. Solla og Haffi koma í garðpartýið ógurlega á föstudaginn og það væri óendanlega hentugt að nota Haffa í að skrúfa saman húsgögnin á laugardaginn
Pabbi kemur svo á morgun til landsins með Norrænu og kíkir við hjá mér á leið suður og svo norður í land þar sem hann verður að leikstýra eins og í fyrra. Aðstæður verða nú örlítið öðruvísi hjá honum þetta árið, þar sem hvorki amma, afi né ég verðum fyrir norðan... En við erum þó amk á sma landinu
Jæja best að fara að gera eitthvað
yassou
Sandra
HANDBOLTISandra Björg Stefánsdóttir
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég hef ekki þorað að tjá mig um gengi íslenska landsliðsins á ólympíuleikunum af ótta við að þeir færu að klúðra þessu (talandi um hjátrú) en nú get ég bara ekki orða bundist!!!!!
ÚRSLITALEIKURINN!!! ERUÐ ÞIÐ AÐ GRÍNAST???
Nú held ég að það sé bara ekkert annað í stöðunni en að drífa í því að giftast honum Fúsa mínum....
Ég dreif mig heim í hádeginu í dag til þess að ná leiknum. Elín Ása var hjá Rögnu Steinunni vinkonu sinni og Ragna og Heiðar fyrir sunnan þannig að við Anna Regína vorum bara tvær að hvetja liðið áfram... eða það hélt ég. Þegar 5 mín voru liðnar af leiknum og ég fékk spurninguna "Hvort erum við í rauðum eða hvítum búningum?" þá varð mér ljóst að ég væri líklega eini aðdáandinn í Fákaleiru 8c þá stundina! En strákarnir UNNU með glæsibrag og ég er viss um að það voru fleiri en þeir sem grétu af fögnuði
Já og eitt enn... hver man ekki eftir Sollu og Bjögga hér í denn? Solla systir, stráka-stelpan ógurlega sem átti bara stráka vini var eiginlega alltaf með honum Bjögga. Sá Bjöggi er enginn annar en landliðsmarkvörður okkar íslendinga í dag og er að gera GÓÐA hluti... Greinilegt að Solla hefur kennt honum eitthvað
TIL HAMINGJU STRÁKAR OG ÍSLENDINGAR ALLIR!!!
Annars er ég að fara að skella mér til borgar óttans. Tek flugvélina á eftir og fer svo aftur til baka á sunnudag með Rögnu og Heiðari. Ég geri alls ekki ráð fyrir að hitta marga í þessari stuttu ferð þar sem aðsetur mínar verða aðallega í IKEA... Nema náttúrurlega ef allir skella sér niður í bæ á Menningarnótt og hitti mig við götuljósin á lækjargötu - Bankastræti kl 19.37
bless kex ekkert stress
Sandra
Hć hóSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er ég mætt í vinnu á Höfn á nýjan leik. Síðustu vikur hafa verið ansi viðburðaríkar eða ætti ég heldur að segja að á síðustu vikum hef ég verið á ferðinni eins og óð manneskja um sveitir landsins.Við Sigrún Inga þvældumst á Klaustur, Skaftafell og Jökulsárlón með skoðunarkönnunina okkar svakalega. Á lóninu nutum við leiðsagnar hans Kidda frænda sem rak okkur áfram með harðri hendi. Fyrir ykkur sem þekkið ekki til þá er Kiddi 13 ára frændi minn frá Höfn. En vegna tilsagnar hans þá slógum við metið í fjölda kannana eða 202 kannanir á einum og sama deginum!!!
Þar síðustu helgi þvældist ég svo með Guggu,Sigga, Bjarma og Tómasi inn í Heinaberg og að veiða í Baulutjörn. Það endaði nú nokkuð spaugilega þar sem hluti annarar veiðistangarinnar endaði óvænt út í miðju vatninu, þá er ég að tala um hálfa stöngina, ekki bara öngulinn. Siggi þurfti á endanum að fletta sig klæðum og vaða á eftir gripnum, við ómælda gleði okkar sem á bakkanum sátum
Síðast liðinn fimmtudag fórum við starfsmenn Háskólasetursins á Höfn svo í göngu. Upphaflega var áætlað að fara inn Heinabergsdal og þaðan inn í Vatnsdal og skrá niður plöntutegundirnar sem þar finnast. Við fórum að vísu ekki lengara en inn Heinabergsdalinn og upp á hálsinn til að komast inn í Vatnsdal. Þar varð okkur ljóst að við færum ekki lengra nema með tjald með okkur því ferðin yrði að lágmarki 15 tímar með tímanum sem tekur að greina blessaðar plönturnar. Þess í stað tóku SIgrún Inga og Steinunn Hödd sig til og greindu hverja einustu plöntu uppi á þessum hálsi á meðan við Andreas klifum Geitakinn. Ég verð að viðurkenna að sjaldan eða aldrei hef ég orðin fyrir jafn miklum áhrinum af völdum íslenskrar náttúru. Þetta var stórfenglegt, jökullinn, fjöllin, dalirnir.... Ég elska Ísland!

Rúsínan í pylsuendanum var svo helgin sem var að líða. Hún byrjaði á að við Ragna, Heiðar og Hafsteinn gengum upp Efstafell inni í Geitafelli. Eftir það brunuðum við heima og horfðum á Ísland-Danmörk í handbolta. ÞVÍLÍK SPENNA. Rannveig og Ásbjörn komu við og horfðu með okkur á leikinn og það var eiginlega eins gott að þetta fór með jafntefli því annast hefði mjög líklega soðið uppúr á meðal áhorfenda í Fákaleiru 8c
Helgin endaði svo á því að Regína og Claus buðum öllum starfsmönnum sumarsins í mat inni í Náttúruskóla. Þar voru Eva og Hanna búnar að skreyta allt með birkigreinum og borðum, við sátum svo öll í sátt og samlyndi til að verða eitt í nótt og snæddum 3ja rétta dýrindis máltíð og spjölluðum og hlógum.
Frábær frábær frábær helgi sem var fullkominn endir á frábæru sumri.

Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna
bless í bili
Sandra
HvannadalshnjúkurSandra Björg Stefánsdóttir

Halló halló
Hér hafði ég fyrirhugað að skrifa grein um ferð mína upp á Hvannadalshnjúk síðasta mánudag, jafnvel setja inn mynd af mér skælbrosandi með ísexina á lofti á toppnum. Því miður mun ekki fara mikið fyrir þeim skrifum hér í dag. Síðasta sunnudag kom Einar Ísfeld í Skaftafell til að skoða leiðina upp á Hnjúkinn. Aðrir leiðsögumenn höfðu átt í erfiðleikum með að komast upp á topp og í rauninni ekki komist þangaði í meira en viku. Einar komst heldur ekki á toppinn. Jökullinn er of sprunginn og of hættulegur þannig að það var hætt við ferð mánudagisns og raunar allar ferðir sumarsins. Fjallaleiðsögumenn munu sem sagt ekki fara aftur upp á Hnjúk fyrr en það hefur snjóða duglega uppi á toppnum. Við vorum svo svekktar að við gátum varla talað. Í staðinn buðum við fjalló í Sandasel þar sem við spiluðum Partý og co og Trivial fram á nótt. Það var reyndar alveg rosalega gaman.
Á mánudeginum fórum við Rannveig og Ásbirnir-nir tveir frá Danmörku í göngu í Skaftafelli. Planið var að fara upp á Kristínartinda en skýin voru eitthvað langt niðri þannig að við fórum bara upp að Sjónarnípu, Svartafoss og enduðum svo í Lambhaga. Við tókum líka fullt af hoppu-myndum sem eru allar komnar inn á myndasíðuna mína
Þessa vikuna hef ég svo verið á Klaustri og í Skaftafelli að vinna. Við á Háskólasetrinu erum að gera skoðanakönnun um Vatnajökulsþjóðgarð, viðhorf og skoðanir ferðamanna á honum o.s.frv. Það á svo eftir að koma á daginn hvort við getum unnið úr þessu.... SPSS... úfffff
jæja gott í bili
Sandra
