MyndirSandra Björg Stefánsdóttir

Þá eru myndirnar frá Landsmóti hestamanna komar inn á myndasíðuna, ég var alveg viss um að ég væri búin að setja þær inn en svo var víst ekki. Merkilegt nokk að þó að það hafi ekki verið þverfóta fyrir Hólafólki þarna (sem er mjög gott
Það voru líka fullt af Króksurum þarna sem vita varla hvað snýr fram eða aftur á hesti... en Skagfirðingar láta ekki svona vígalegt djamm framhjá sér fara, ekki frekar en ég sjálf
Héðan frá Höfn er allt gott að frétta, ég er að reyna að drössla sjálfri mér út að labba á hverjum degi og ná mér í smá þol svo ég verði ekki eftir í göngunni miklu í Skaftafelli næst mánudag...!
Hadda Hrund og Doddi og Sóley og Rafn ætla að hitta mig í Skaftafelli um helgina... útilega en ekki útihátíð... jubbííí... Að sjálfsögðu eru allir velkomnir að slást í hópinn. Mér skilst að það sé ball á Klaustri á laugardeginu og það er aldrei að vita nema maður skelli sér þangað!

Eftir helgina verðum við Sigrún Inga (á Háskólasetrinu) á ferðinni um suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Við munum leggja könnun fyrir ferðamenn á svæðinu. Rosa stuð!
Jæja þá er það gott í bili
Sandra
Skaftafell city um síđustu helgiSandra Björg Stefánsdóttir
Komiði sæl öll sömul.Þá er önnur vikan mín á Háskólasetrinu á Hornafirði hafin. Í gær fékk ég mína eigin skrifstofu og í kvöld koma tölvurnar. Reyndar erum við fjögur saman í einu herbergi en það er risastórt svo það fer vel um okkur.
Um helgina skellti ég mér í Skaftafell. Brunaði eftir vinnu á föstudaginn. Fór beint á landvarðavakt með henni Rannveigu sem er í sjálfu sér ekki vinna heldur bara skemmtun
Jæja gott í bili
Sandra
Tha Dark KnightSandra Björg Stefánsdóttir
Ég var að kíkja á trailerinn úr nýju Batman myndinni, The Dark Knight. Svei mér þá ef maður verður ekki bara að gera sér ferð í höfuðborgina og kíkja á myndina. Auðvitað er það ekki spurning, síðasta mynd Heath Ledger... Trailerinn lofar amk góðuNúna á eftir vinnu á Höfn held ég í Skaftafell... vúhúú hlakka til að fara að slá gras og klippa greinar og vísa veginn að Svartafossi... (engin hæðni sko... ég get varla beðið...) Tók mér hljóðbók á bókasafninu... skyndilega finnst mér geisladiskarnir mínir lítið spennandi... kannski er ég búin að hlusta á þá of mikið síðustu daga... Var einhver að segja að ég væri búin að keyra of mikið????
Endilega kíkiði á greinina um sjalfboðaliðana sem ég er alltaf að tala um... Hún birtist í Grapevine núna um daginn...
Over and out
Sandra
Höfn in HornafjörđurSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er ég flutt á Höfn í Hornafirði. Sem stendur bý ég hjá Rögnu og Heiðari og verð hér út ágúst mánuð.Þetta er náttúrulega alveg rosalega fínt, enda alltaf stjanað við mann eins og maður sé prinsessan á bauninni hér í Fákaleirunni.
Síðasta kvöldið mitt í skaftafelli grilluðu stelpurnar mér til heiðurs í Landvarðahúsinu. Þetta var alveg yndislegt kvöld og við átum og átum og átum... jiii minn eini þegar ég hugsa um það þá skil ég ekki hvernig við gátum torgað þessu öllu... sykurpúðar, hreindýraborgarar, pylsur, bananar með súkkulaði og svo súkkulaði/bananastangir í eftirrétt....!!!!! Takk fyrir mig snúllurnar mínar
Um síðustu helgi var svo ættarmót hjá ömmu Sollu og þar gat ég knúsað litlu ormana mína í marga daga í röð. Nú eru þau farin aftur Finnlands og ég sakna þeirra rosalega.
Ég er hægt og rólega að setja inn myndir á myndasíðuna sem þið megið endilega skoða.
bless í bili
Sandra
Skaftafell... the endingSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja góðir hálsar, þá fer að líða að lokum dvalar minnar hér í Skaftafelli.Þetta hefur liðið svo ótrúlega hratt... sem þýðir að það er búið að vera voða gaman.
Við höfum ekkert verið að slaka á í djamminu undanfarið því við Rannveig og Stjáni fjalló skelltum okkur á Landsmót um síðustu helgi. Við vorum að vinna til rúmlega 5 á laugardeginum og brunuðum þá í vestur átt. Á sunnudeginum mættum við svo eldspræk í vinnu um kl. 8 um morguninn. Þetta var hverrar krónu og mínútu virði. Það var alveg frábært... hitti gjörsamlega alla!!! Fyrst sátum við í brekkunni með pabba, Petru, Önnu, Adam og Johanna og horfðum á skemmtiatriðin. Þegar kom að svefntíma hjá yngri kynslóðinni var farið á balla og svæðið skoðað. Jiiii hvað það var gaman... við Rannveig erum enn með aðgöngumiða-armbandið því við týmum ekki að taka það af....
Nú eru bara tveir vinnudagar eftir í Skaftefell city... ég á eftir að sakna þess að vera hér... eflaust á ég eftir að bruna hingað um hverja helgi til og áreita lýðinn...
Annars er ég komin með íbúð á Höfn!!!!!!!!! Fæ hana reyndar ekki fyrr en í lok ágúst, verð hjá Rögnu og Heiðari þangað til. aumingja Anna Regína og Elín Ása þurfa að láta af hendi herbergin sín til að stóra frænka geti flutt inn. Greyin.... vonandi get ég borgað þeim einhverntíman seinna...
bless í bili
Sandra
