EurovisionSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er orðið ljóst hvaða lag fer í Eurovision keppnina fyrir Íslands hönd.Fyrst um sinn elskaði ég Hey Hey Hey Ho Ho Ho... en eftir því sem ég heyrði lagið oftar þá eiginlega bara dalaði það. Annað lag sem var hins vegar alltaf MIKLU betra og betra var lagið hans dr.Gunna með dr.Spock. Hvar ertu Nú? Mikið ótrúlega hefði verið flott ef það hefði farið út til Serbíu, þá hefði verið eitthvað fútt í þessu! Ekki það, Eurobandið var alveg ágætt... þau lögðu greinilega allt í þetta og stóðu sig ágætlega. Mér fannst reyndar lagið vera svolítið innantómt núna. Vantaði eihverja fyllingu í það, maður heyrði eiginlega bara raddirnar þeirra og svo trommuslátt. Það var amk mitt mat. Ég verð nú samt að viðurkenna að þetta var gífurlega flott atriði, Sigrún og stöllur voru geðveikislegar í dansinum.
Hér á Hólum vorum við með smá partý, það var nú ekki skipulegt fyrr en eftir hádegi í gær og eiginlega settum við Benna í að sjá um að bjóða fólki. Benni býr nota bene ekki hér
Við kíktum svo á Mælifell á eftir. Einar Águst var mættur í sveitina með kassagítarinn og ég get svo svarið það að þegar hann tók nokkur vel valin Skítamóralslög fékk Sandran fiðring í tærnar....
Nú ætla ég að fara að pakka niður því á þriðjudaginn er það bara Reykjavík city. Við tökum þátt í ráðstefnu þa vikuna og höldum svo til Hafnar í Hornafirði dömur mínar og herrar. Ég hlakka svo til að ég get ekki beðið.
Hugsiði ykkur, tvær vikur í vettvangsferð, svo ein vika á Hólum og svo er ég farin héðan!!!
Ég trúi því ekki... Heil ÞRJÚ ár eru liðin!
Það kemur nú smá fyrir hjartað þegar ég leiði hugann að því að hugsanlega var gærkvöldið mitt síðasta Króksara-djamm.... nei ég vil ekki hugsa um það....
bless í bili
Sandra
KlifurSandra Björg Stefánsdóttir
Í kvöld var aftur farið og klifrað í Björgunarsveitarhúsinu á Króknum. Í þetta skiptið vorum við bara þrjú, Pálína, Öddi og ég. Við stúlkurnar fengum kennslustund í að tryggja og tryggðum svo hvor aðra.... ég segi það ekki... hjartslátturinn var ansi hraður á köflum en engin stórslys urðu á fólki.
En svo kom að því að Öddi vildi upp..... það var nú ekki alveg eins einfalt. Það féll í min hlut að tryggja pésann..... Þetta fór nú bara vel af stað, þangað til gaurinn missti takið og datt... þá tókst Sandra á loft! Pallan hljóp þá til og í sameiningu tókst okkur að koma drengnum heilum niður. Aftur á móti var ástandið verra þegar Pallan var farin... Þá varð ég að gjöra svo vel og redda þessu! Reyndar hálf drap ég greyið Ödda... ég náði að bjarga því fyrir horn þannig að hann bakbrotnaði ekki en hnéð á honum laskaðist verulega... FYRIRGEFÐU ÖRN!!!!
En svo kom að því að Öddi vildi upp..... það var nú ekki alveg eins einfalt. Það féll í min hlut að tryggja pésann..... Þetta fór nú bara vel af stað, þangað til gaurinn missti takið og datt... þá tókst Sandra á loft! Pallan hljóp þá til og í sameiningu tókst okkur að koma drengnum heilum niður. Aftur á móti var ástandið verra þegar Pallan var farin... Þá varð ég að gjöra svo vel og redda þessu! Reyndar hálf drap ég greyið Ödda... ég náði að bjarga því fyrir horn þannig að hann bakbrotnaði ekki en hnéð á honum laskaðist verulega... FYRIRGEFÐU ÖRN!!!!

Nú er stefnan tekin á Klifurhúsið í Reykjavík þar sem bæði fyrsta og annað árið eru í vettvangsferðum þar í næstu viku. Ég hlakka svo til.
Annars er Pálína búin að skipuleggja gönguskíðaferð um næstu helgi og það er ekkert annað að gera en að krossleggja fingur og vona að veðurguðirnir verði samvinnuþýðir.
Bless í bili
Sandra
Kynningarmyndband Háskólans á HólumSandra Björg Stefánsdóttir
Endilega segiði hvað ykkur finnst
Klifur og HáskóladagurinnSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er ég komin með nýtt áhugamál, við Pálína, Örn og Hulda fórum í síðustu viku niður í Björgunarsveitarhús á Króknum og eyddum þar kvöldstund. Nei ég ætla mér ekki að ganga í björgunarsveitina, hins vegar er í því húsi klifurveggur sem við fáum að nota nánast hvenær sem er. Þetta var algjört æði, Örn hefur stundar klifur í nokkur ár og tók okkur stelpurnar í kennslustund. Við erum strax komin með áætlanir, förum á Krókinn nokkrum sinnum í vikur og þegar við förum í vettvangsferðir á Akureyri eða Reykjavík verður klifrað eins og við mögulega getum. Í vor verðum við orðnar svo asskoti góðar að við förum svo eitthvað út að klifra. Endum svo að sjálfsögðu á Grænlandi uppi á Gunnbjornsfjeld hjá henni Pálínu


Það eru svo fleiri myndir á myndasíðunni minni.
Annars er ég í Reykjavíkinni núna. Stutt stopp engu að síður, kom á föstudagskvöldið og fer aftur núna bráðlega (hádegisbil sunnudags). Tilgangur ferðarinnar er Háskóladagurinn sem að þessu sinni var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur en hann er einmitt viðburðurinn minn í áfanganum Hátíðir og Viðburðir. Ég er ánægð með hversu mikið hann hefur breyst á þessum 3 árum mínum í Háskólanum á Hólum. Fólk hefur áttað sig á mikilvægi hans og sífellt er lögð meiri áhersla á hanns. Ferðamáladeildin hafði upphaflega ætlað að hafa tjald í básnum okkar og þaðan áttu að heyrast hrotur en það kom svo á daginn að tjaldið sem við fengum lánað var allt of stórt. Auðvitað var reynt að hringja út um allt til að redda nýju minna tjaldi á síðustu stundu en því miður tókst það ekki. Þetta verður þá bara að bíða til næsta árs.
Það er alltaf jafn skemmtilegt að taka þátt í þessu og verður eiginlega skemmtilegra með hverju árinu sem líður og maður verður öruggari og veit meira. Núna í ár finnst mér fólk vera mun meðvitaðra um Hóla og sérstaklega ferðaþjónustu, maður var ekki að þröngva bæklingum inn á fólk, amk ekki að öllum.
Jæja þá er það orðið gott í bili.
Sandra
Þorrablótið miklaSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er Þorrablótinu mikla lokið.Veðurguðirnir voru nú ekkert sérstaklega samvinnuþýðir og hleyptu öllu upp í storm og læti svo það fór heldur lítið fyrir grillpartýinu. Engu að síður vorum við svo forsjálar að fjárfesta í kjúklingi sem eldaður var á nó tæm. Þá tók við Móhító blöndun með hökkuðum klökum og alles, blandarinn var sérstaklega sóttur út á Krók til ömmu og afa
Eftir ýmsar útfærslur á veggjaklifri og hömpdansi var brunað út á Hofsós á ball. Það var alveg prýðileg mæting þrátt fyrir áðurnefnt ósætti við veðurguðina. Reyndar var á sama tíma risastórt þorrablót úti á Krók þannig að maður var ekkert að kafna úr mannþröng en Hólafólk skemmti sér engu að síður eins og þeim einum er lagið.
Ég tók nokkrar myndir og er búin að skella þeim inn á myndasíðuna.
Eitt óveðurskvöldið hér í vikunni var internetið tekið af húsinu okkar. Þetta hefur eitthvað með það að gera að sendirinn getur brunnið yfir þegar veðrið er vont. Ekki spyrja... ég veit ekki svarið...!!! Þetta gerist bara hjá okkur vegna þess að við erum eina húsið með þráðlaust net.... Því fylgja sum sé bæði kostir og gallar. Nema hvað, hann Stjáni Ben var friðlaus þetta kvöld og vissi ekkert hvað hann átti af sér að gera. Hann tók því upp á því að bjóða hingað í kofann nokkrum vel völdum einstaklingum og við fórum að spila Laumu. Þetta er eitt það auðveldasta spil sem fundið hefur verið upp og flest allir læra það áður en þeir byrja í grunnskóla. Engu að síður sátum við heilt kvöld, 9 manns, öll yfir tvítugt (og sumir vel það) og æstum okkur upp úr öllu valdi yfir spilinu. Fólk þurfti bókstaflega að taka sér pásu við og við til að kæla sig niður, spennan var þvílík
En jæja látum þetta duga í bili,
Endilega kvittiði nú öll sömul
Sandy Dandy
Brjálað veðurSandra Björg Stefánsdóttir
Úfff þetta er nú meira óveðrið á Klakanum.Anna Banana er hér á landi með stóru systur sinni. Hún vildi endilega fara austur á Höfn og sýna systur sinni allt það sem ég sýndin henni á Rauða kagganum mínum hér fyrir tveim árum. Nema hvað... í dag er búið að vera brjálað veður. Skvísurnar enduðu útaf við Hveragerði og var bjargað af Björgunarsveitargæjum... Úfff þetta hefur verið þvílíkt ævintýri fyrir þær.
En þetta er einmitt málið, ég var búin að reyna að vara þær við veðrinu en hefði vafalaust mátt gera miklu betur. Þær fengu hvergi upplýsingar um veðurspánna... þær vissu ekkert hvernig þetta er hér á Klakanum. Afhverju sagði bílaleigan ekki eitthvað eða gistihúsaeigandinn? Greyin... þær voru auðvitað skíthræddar....
Engu að síður hafa þær auðvitað GEGGJAÐA ferðasögu til að deila með vinum sínum
Annars er búið að vera heilmikið húllum hæ hér á Hólum. Fullt út úr dyrum í bolludagskaffi (eða svona nánast) og svo grímuball í gær. Snillingarnir á fyrsta ári klæddu sig upp í tilefni dagsins eins og litlu börnin. Ég tók nokkrar myndir af þeim sem þið getið skoðað á myndasíðunni minni
Afi greyið er aftur orðinn veikur og var fluttur suður í gær, eiginlega sem betur fer að hann fór þá því það lítur allt fyrir að það verði ekki flogið fyrr en á sunnudag... ef eitthvað er að marka veðurspánna.
Pabbi er svo búinn að sækja um sem Leikhússtjóri á Akureyri og ég vona svo sannarlega að hann fái stöðuna, það væri æðislegt að fá þau öll heim aftur
Svo er það bara þorrablót á laugardaginn.... grillpartý á Hólum fyrst og svo brunað á ball....
óver and át
Sandra
Djamm helgin ógurlegaSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er dagur að kveldi kominn og djammi þessarar helgar lokið.Þvílíkt og annað eins stuð hef ég varla upplifað, veeeeel tekið á því eins og sönnum Hólamönnum sæmir.
Í gær var Skagafjörður í Útsvari og í tilefni þess var haldið pizza-singastar-bjórkvöld uppi í skóla. Lið Skagafjarðar var samsett úr hvorki meira né minna en tveim Hólakennurum og einni stjörnu=Ásdís+Óli+Óskar Álftagerðisbróðir. Ásdís kennarinn minn í Vöruþróun og Nýsköpun er svo mikill snillingur að hún kynnti skólann í gríð og erg og veifaði svo til okkar nemenda sinna... Þá ætlaði allt gjörsamlega um koll að keyra. Óli fiskakennari fór svo á kostum þegar hann lýsti starfi sínu sem "fiskasálfræðingur" Það er engum hnöppum um það að hneppa að lið Skagafjarðar var það allra skemmtilegasta í þættinum frá byrjun og tek ég þar orð Sigmars í munn. Því miður unnum við ekki en það var allt í lagi því þau voru svo skemmtileg.
Nú á eftir var farið í Singstar og tókum við Hulda þar eitt lag saman... ég náði nú einum 5000 stigum eða svo og var nokkuð sátt en Hulda söngfugl vann með glæsibrag engu að síður. Engin skömm að tapa fyrir þeirri skvísu enda lenti hún í öðru sæti í allri keppninni. Við Pálína máttum samt eiginlega ekki vera að því að gaula þetta því við vorum í fullri vinnu við að afgreiða á barnum... sjálfboðavinna að sjálfsögðu. Það var svo mikið stuð hjá okkur að fólkið sóttist hreinlega í okkur og röðin á barinn var þvílík! Annað hefur ekki sést á Hólum.
Í dag var ástandið og ferskleikinn mismunandi í liðinu... þetta var þó langt frá því að vera það versta sem sést hefur. Enda sannaðist það þegar leið á kvöldið að skvísurnar á ferðamálabraut kalla ekki allt ömmu sína og skelltu sér aftur á djammið. Í þetta sinn á Sheep-river-hook. Það var Club Night á Mælifelli. Ég fékk nú samt eiginlega áfall þegar ég gekk inn á staðinn því þessir MEGA DJar voru hvorki meira né minna en pelabörn úr snæló!!!!! Einn þeirra var Stjáni kjáni nágranni sem ég "passaði" hér í denn. Að vísu eru þeir um eða yfir tvítugt en þar sem að ég er enn 18 ára í anda þá eru þetta pelabörn í mínum augum! Þeir stóðu sig samt vel greyin og þó ég sé ekki á leiðinni út í búð og kaupa tónlistina þá var þetta ágætis breyting frá sveitaballa-fílingnum. Fyrst var allt voða þvingað og sérstakt en svo fóru fleiri Hólamenn sem og kunnuglegir Sauðkrækingar (tala nú ekki um Hofsósbúann ógurlega) að reka inn nefið þannig að í enda kvöldsins gekk Sandy út með sólskinsbros á vör
Heimferðin gekk líka eins og í sögu.... þangað til að komið var að bílastæðinu. Pollinn er algjört tryllitæki en þegar snjólagið er komið yfir 25 cmá veginum (hátt í metrann annarstaðar) þá dugar ekki að vera torfærutæki í anda...það þarf virkilega að vera á stórum dekkjum og háum bíl... Sú lýsing á ekki við aðal pæjubílinn sem er lár og á litlum dekkjum. Þess vegna var ákveðið (eftir 2 tilraunir í að komast að bílastæðinu) að leggja bara úti í kanti í brekkunni við húsið og krossleggja svo fingur að fólk hafi augun opin meðan það keyrir og endi ekki aftan á Pollanum.
Það hefur sum sé snjóða stanslaust í 3 daga og við erum að tala um púðursnjó. Að sjálfsögðu er alveg ótrúlega fallegt að ganga í skóginum en þegar komast á leiðar sinnar fæ ég pínu hausverk.
Í kvöld var frumsýning hjá pabba á Ofviðrinu og ég efa ekki að það hafi gengið frábærlega, hlakka til að heyra fréttir, sjá myndir og lesa gagnrýni
Mér til mikillar skelfingar áttaði ég mig á því í gær að Bolludagurinn er á morgun. Í fyrsta sinn á ævinni mun ég ekki bragða á mömmu-bollum þann daginn. Mér finnst þetta eiginlega alveg ómögulegt en í stað þess að gráta hef ég ákveðið að baka sjálf nokkrar bollur að hætti mömmu og bjóða öllum sem vilja í kaffi og bollur (eða kannski bara bollur) í Brúsabyggð 6 eftir BA-málstofuna á morgun. Óheppin þið sem komist ekki.....
Bless bless í bili
Sandra
Til hamingju Jónas með prinsessunaSandra Björg Stefánsdóttir
Þó ég eigi að vera að vinna verkefni í Þjónustumarkaðsfræði verð ég að segja ykkur að hann Nasi litli er orðinn pabbi. Lítil prinsessa kom í heiminn í gær.TIL HAMINGJU JÓNAS OG ELÍSABET 
Annars er það að frétta að það er brjálað veður í sveitinni. Meðleigendur mínur ætluðu sér engu að síður að skella sér á Akureyri til að sjá einhvern Man. United leik. Fyrr má nú vera... leggja sig í lífshættu fyrir fótbolta!!!!! En þegar á reyndi þá festust þeir í skafli hér úti á bílastæði og komust ekki lengra
Bless í bili
Sandra
hæ hóSandra Björg Stefánsdóttir
Er þá ekki kominn tími til að skrifa aðeins um það sem á daga mína hefur drifið undanfarið. Ég er sum sé búin að vera á Hólum í rúma viku. Í millitíðinni hefur borgarstjórnin sprungið, Fisher og Heath Ledger fallið frá, Kaffi Krókur brunnið og 5 leikir íslenska landsliðsins í handbolta klárast. Um tvennt af þessu hef ég þegar tjáð mig, vissulega eru dauðsföllin sorgleg og þá sérstaklega hið síðara en mér finnst laaaang skemmtilegast að horfa á handboltann. Það hefði ekki verið verra ef fleiri leikir hefðu unnist en sætir strákar á stuttbuxum gera mig alltaf ánægðaPæjuklúbburinn hittist svo í svakalegu sukkpartýi í Jöklatúninu fyrr í vikunni. Þar var það aðal pæjan sem hélt um stjórnartaumana, engin önnur er Snúbban Íris Antonía. Við hámuðum í okkur ruslfæði og nammi, horfðum á sjónvarpið og slúðruðum eins og okkur einum er lagið. Frábært pæjukvöld og takk fyrir að taka á móti okkur Pálína
Annars er alveg stíf dagskrá framundan. Náttúrulega nóg að gera í skólanum en líka utan hans.
Fyrstu helgina í febrúar eru Sóley og nokkrar skinkur að spá í að kíkja í sveitina til mín. Það verður vonandi ótrúlega gaman og þeim sýnt hvernig hlutirnir eru á Hólum. Lítill fugl hvíslaði því að það ætti meira að segja að halda bjókvöld í tilefni af því að 2 Hólakennarar verða í Útsvari á föstudagskvöldið og ekki verra að stelpurnar fái að njóta þess.
Þessa sömu helgi er frumsýning hjá pabba úti í Finnlandi á Ofveðrinu. Það er auðvitað alveg ömurlegt að komast ekki út að sjá verkið en það er því miður þannig þegar maður er nemi, hvorki verkefni né fjárhagur leyfa slíkar ferðir. En ég sendi pabba fullt af góðum straumum sem ég vona að hann geti nýtt
Anna Banana kemur svo til landsins í byrjun febrúar og að sjálfsögðu reyni ég að hitta hana, hvort sem það veðrur í Reykjavík eða á Akureyri.
Það má svo ekki gleyma ÞORRABLÓTINU sem haldið verður 9. febrúar úti á Hofsósi. Þá verður tekið á því og rúmlega það, pæjuklúbburinn ætlar að elda/grilla saman og taka nokkra snúninga með Palla sínum áður en haldið verður á dansleikinn með Úlrik.
Laugardaginn 23. febrúar er Pallan svo búin að skipuleggja heljarins gönguskíðaferð fyrir mannskapinn. Núverandi og fyrrverandi Hólamenn eru hjartanlega velkomnir. Ég fæ nú bara verk í lærin af því að hugsa um þetta en það verður bara gaman... það er nú ekki eins og maður hafi aldrei orðið sér til skammar áður
Pallan er líka búin að skipuleggja ferð fyrir pæjuklúbbinn og Örn í Klifurvegg Björgunarsveitarinnar... Það verður eitthvað sögulegt og ef ég kemst lifandi frá því, fáiði vafalaust að heyra sögur og sjá myndir.
Í mars verður svo farið til Hafnar í Hornafirði og ég hlakka alveg ótrúlega til. Mér finnst eiginlega eins og ég sé að bjóða bekknum heim til mín... Þau skulu sko fá að sjá að sum sveitafélög standa sig betur í ferðaþjónustu en önnur
Pallan er að verða óð því í maí er hún svo að plana fimm daga hjólaferð um suðurlandið þar sem m.a. verður stoppað og farið í ísklifur á Sólheimajökli. Ég ætlaði að sjálfsögðu með í þá ferð (annar verkur í lærin) en nú eru aðstæður hjá mér kannski að breytast svolítið þannig að það er ekki víst að ég komist. En meira um það síðar.
Bless kex ekkert stess
Sandy
Borgarstjórnin fallin enn á nýSandra Björg Stefánsdóttir
Ég get svarið það.... Þvílík og önnur eins vitleysa!
Mikið er ég fegin að búa ekki í Reykjavík.
Þetta er bara orðin einhver gamanleikur og fær mig ekki til að hafa trú á borgarstjórninni.
Ég studdi fráfarandi meirihluta af heilum hug.... þess vegna er ég ekki sátt við að þessar barnalegu væluskjóður komist aftur til valda. Það þarf eitthvað mikið að gerast ef álit mitt á þessu fólki á að vaxa.
Það liggur meira að segja við að ég þakki fyrir Guðföðurinn í Kópavogi ![]()
Sandra
