Mótmćli og RokklandSandra Björg Stefánsdóttir

Nú er önnur lota í BA skrifum gengin í garð og er ég flutt niður á Þjóðarbókhlöðu. Skrifin ganga bara alveg ágætlega og þó ég efist um að það sé nokkuð vit í því sem ég segi þá skrifa ég engu að síður Svalur

Í hádegis kaffinu mínu í dag kíkti ég inn á mbl.is og ég verð að viðurkenna að það fauk bara í mig að sjá fyrstu fréttina. Bílstjórar farnir að kasta grjóti í lögregluna. Hvað halda þeir að þeir séu? Fyrir síðustu mánaðarmót var samúðin farin að minnka hjá mér í garð atvinnubílstjóra en núna er ekki vottur eftir af henni. Ég neita að skrifa mitt nafn undir svona fáránleg mótmæli. Þeir segja að allur almenningur hafi hag af þessum mótmælum þeirra en þá vil ég frekar hafa bensínverðið eins og það er og berjast á málefnalegum nótum. Kasta grjóti í lögreglumenn sem eru ekki að gera neitt annað en að sinna sinni vinnu, passa að lögum og reglum sé fylgt í landinu. Mín samúð liggur hjá lögreglumönnum og þeim einstaklingum sem lenda í  umferðartöfum vegna þessara mótmæla.

Þessir atvinnu bílstjórar ættu að skammast sín!!!


Nú í öðrum fréttum er það helst að undur og stórmerki gerast enn. Það er ekki vika síðan umræðan í fjölskyldunni minni snérist um það að hún Sólveig Stefánsdóttir systir mín má ekki taka þátt í happdrætti eða bingói án þess að vinna stærsta vinning. Hún var á gangi í skólanum sínum fyrir nokkrum vikum og var boðið að taka þátt í einhvers konar happdrætti þar sem hún átti að snúa lukkuhjóli. Stúlkan ætlaði nú ekki að nenna að taka þátt (það er svo þvingandi að vinna alltaf) en lét til leiðast og snéri hjólinu. Að sjálfsögðu vann hún fyrsta vinning... splunku nýjan og flottan GSM síma!!!!! Það er kannski óþarfi að taka fram að ég er alger andstæða systur minnar. Ég vinn ALDREI neitt... þegar við vorum litlar man ég að það var kvöl og pína fyrir mig að fara með systur minni í bingó... Nema hvað!!! Í janúar tók ég þátt í leik í Rokklandi á RUV. Óli Palli spilaði eitthvað lag og spurði hvern nafn lags og flytjanda væri. Ég ákvað að senda honum email með réttu svari þó ég vissi full vel að þeð þýddi ekkert nema ég fengi hana Sólveigu til að senda fyrir mig. Nema hvað, í gær fékk ég tölvupóst frá Ólafi nokkrum Páli þar sem hann bað um heimilsfang mitt til að geta sent mér Rokkland 2007 geisladiskinn. ÉG VANN....!!!!! Hlæjandi Ég trúi þessu engan veginn....

jæja gott í bili
Sandra

KLIFURSKÓR....!!!!Sandra Björg Stefánsdóttir

Hvað haldiði?
Hún Sandra Björg var að fjárfesta í klifurskóm hvorki meira né minna. Ég ákvað að þetta gengi ekki lengur og brunaði niður í Klifurhús til að kaupa skó. Svo þurfti að sjálfsögðu að vígja skóna... Þannig að nú sit ég hér með vel pumpaða handleggi og kramdar táslur. Gerist ekki betra Svalur 

five.ten
 

skórnir í aksjón


Annars er ég búin að vera að vinna hjá Kambi síðustu vikuna, gott að næla sér í smá pening svona þegar maður er á hvínandi kúpunni... Nú er ritgerðin komin til baka frá Guðrúnu Þóru og því flyt ég aftur niður á Þjóðarbókhlöðu á morgun. Eitt eða tvennt sem þarf að laga og breyta...

Pabbi var líka á landinu í síðustu viku og auðvitað hitti ég kallinn eins og ég gat þó það hefði mátt vera svolítið meira. En það eru nú "bara" tveir mánuðir þangað til að hann kemur aftur... og þá koma þau öll Brosandi

Ég sé það að ég verð að halda áfram að tjá mig um tilvonandi eiginmenn mína til að fá viðbrögð.... ólíklegasta fólk fór að tjá sig um áhuga minn á karlpeningnum... hehehehe

Gott í bili
Sandra

BA-skilSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja langt síðan við höfum heyrst....!
Þannig er mál með vexti að nú standa BA skrifin yfir. Klukkan 15.27 í dag skilaði ég fyrstu drögum inn til Guðrúnar Þóru leiðbeinandans míns...!!! Að vísu á ég eftir að skrifa ágripið og allt það, já og eitt stk lokaverkefni hjá Ingu... en drögin eru samt sem áður komin í hús...!

Til að halda upp á þennan merka áfanga hefði ég helst af öllu hlaupa beina leið niður í Klifurhús (já eða keyra) en hvar eru klifurfélagar mínir þá staddir??? HINU MEGIN Á LANDINU KANNSKI...??? Ætli ég drattist ekki sjálf þangað á morgun... fer bara á hádegi til að enginn sjái hvað ég er léleg híhí...

Þessa stundina sit ég niðri í appelsínugula herberginu mínu og skemmti mér konunglega yfir söngkeppni framhaldsskólanna. Það örlar fyrir smá fiðringi í maganum þegar ég rifja upp árið sem við skelltum okkur þangað norður með henni Áku Kráku... Þvílíkt stuð... Stebbi Jak, Fúsi fastur í glugganum þar sem við gistum, Bautinn, Friends í rútinni.... Þetta var einn af hápunktum menntaskólanna, þar liggur engin vafi. En þar sem ég sit hér og stari á sjónvarpið þá er ég ekki frá því að ég sé bara búin að finna enn einn tilvonandi eiginmann... Nei nei ég er ekki að tala um eitthvað smábarn, svo lágt leggst ég ekki... amk ekki ennþá... heldur er kynnirinn enginn annar en sonur hennar Andreu Gylfa. Hef ekki hugmynd um hvað stráksi heitir en Sandran heillast svona líka af honum í Laugardagslögunum fyrr í vetur að ég held bara að ég muni giftast honum einhvern daginn. Þið munið... Girl in the golden dress... Grínisti.is og Sandra likes that... Reyndar var ég að frétta að hann Fúsi minn er að hugsa um að flytja heim á Frónna... og hann er Á LAUSU....! (Ath ekki Glugga-Fúsi heldur HANDBOLTA GOÐIÐ MITT) Já á.. nóg að gera hjá Söndrunni.

Ætli ég ljúki ekki þessari færslu minni hér í bili... og bið ykkur um leið að fyrirgefa þetta rugl í mér... svefnleysi síðustu daga farið að segja til sín Svalur

Sandra kveður

Árshátíđ HólanemaSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég stödd í Skagafirðinum enn á ný. Ég og Pollinn minn brunuðum norður í gær í sól og blíðu. Snjórinn var nánast alveg farinn fyrir utan smá krapa á heiðinni, þess vegna varð Pollinn alveg haugadrullugur. Í dag dreif ég þess vegna í því að baða gripinn... að innan sem og utan og nú er bann barasta glansandi fínn inni í bílskúr í Brekkutúninu Glottandi

Í gærkvöldi var árshátíð Hólanema þar sem þemað var BLEIKT. Þið sem þekkið mig vitið að bleikur er nú kannski ekki alveg uppáhalds liturinn minn... en því var bjargað fyrir horn með því að binda litlar bleikar slaufur á spariskónna... verst ég þurfti að benda öllum á slaufurnar því enginn tók eftir þeim Hissa

Við skvísurnar hittumst heima hjá Ellu Gellu þar sem okkur var þjónað eins og við værum prinsessur... eins og!!! hvað er ég að segja??? Við ERUM prinsessur!!! Að sjálfsögðu mætum við fashionably late niður á Ólafshús sem hafði fengið bleika andlitslyftingu.
Kvöldið var hið skemmtilegasta og heppnaðist í alla staði vel.

Heyriði ég var næstum búin að gleyma...! Stúdentafélagið ákvað að verðlauna nokkra vel valda nemendur skólans... Helgi vann t.d. verðlaunin Ungfoli Hóla 2008 þar sem hann hefur nú verið ansi duglegur í vetur... Nema hvað... haldiði ekki að yours truely hafi fengið verðlaun fyrir að vera alltaf edrú á djamminu.... heheheh, ef ég hef einhvetíman roðnað þá var það þegar ég tók við verðlaununum þarna í gærkvöldi Svalur 

Myndir frá kvöldinu koma in hvað á hverju...

Jæja þetta er orðið gott í bili
yassou
Sandra

Mótmćli vörubílstjóraSandra Björg Stefánsdóttir

Nú er kominn tími til að tjá sig um þessi mótmæli. Þetta er greinilega það heitasta í umræðunni.

Að sjálfsögðu styð ég vörubílstjóra, þeir eru að mótmæla fyrir hönd okkar allra. Mér finnst þetta gott framtak. Engu að síður fer að líða að því að ég hætti að taka upp hanskann fyrir þá. Í fyrstu mótmælunum á fimmtudaginn síðasta var gagnrýnt mjög harkalega að þeir hefðu ekki samband við neyðarlínuna þegar þeir undirbjuggu mótmælin. Byrjendamistök??? Nei þeir læra ekki af reynslunni.

Hörðustu stuðningsmenn mótmælanna halda því fram að það séu alltaf aðrar leiðir opnar en þær sem þeir loka. En hvað gerist ef sjúkrabíll er á leiðinni með mann með hjartaáfall akkúrat á sama tíma og mótmælin hefjast? Hann lendir því í miðri þvögunni... þá hjálpar lítið að það sú aðrar leiðir opnar. Og það skal enginn halda því fram að það séu "aðrar" leiðir opnar þegar þeir loka Reykjanesbrautinni. Það vill þannig til að Hrefna vinkona mín er nýbúin að eignast barn. Hún átti á sjúkrahúsinu í Keflavík en barnið var mjög veikt og þurfti að komast á Landsspítalann strax! Það var því sett beint út í sjúkrabíl og keyrt til Reykjavíkur. Hvað ef brautin hefði verið lokuð vegna mótmæla vörubílstjóra. Hefði barnið dáið?

Eins og ég segi þá finnst mér frábært að Íslendingar eru hættir að láta kúga sig, en má ekki hugsa aðeins út í afleiðingar mótmælanna. Þarf virkilega einhver að skaddast alvarlega eða jafnvel láta lífið til þess að vörubílstjórar láti segjast?

Það þarf ekki annað en eina setningu í tölvupósti til neyðarlínunnar "Við ætlum að loka þessari og þessari götu klukkan þetta til klukkan þetta. Fariði aðrar leiðir með sjúklinga ykkar."

Sandra

Hólar againSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég að verða búin að klifra frá mér allt vit. Ég dró Ödda með mér nauðugan/viljugan á þriðjudag, fimmtudag og svo aftur í dag. Fyrstu tvö skiptin fórum við í Klifurhúsið en í dag fórum við í Björk í Hafnarfirði. Ég er búin að læra nokkur orð og svona... í Klifurhúsinu er t.d. BOULDER en það er þegar maður er ekki með belti og línu og svoleiðis heldur bara vöðva og dýnu undir. Fyrst fannst mér allir vera að tala um Bulldog... en það er kannski ekki alveg það sama Glottandi En í Björku erum við að tala um 7m háan vegg og þá er nú kannski betra að vera í línu og öllum herlegheitunum.
Ég er nokkuð sátt... hendurnar eru t.d. enn fastar á líkamanum og virka nógu vel til að pikka inn þennan texta... held ég hafi ekkert verið arfaslæm... þó það sé ekkert að marka hvað Öddi segir... hann er bara Pollýana og finnst allt frábært Glottandi
Á morgun förum við aftur upp í Björk og þá koma Pálína og kannski Villý líka með. Pæjuklúbburinn er sum sé kominn með klifur á heilann... Eftir klifrið á morgun verður svo lagt í hann norður á land. Vettvangsferð á Akureyri. En þetta verður stutt stopp núna. Því ritgerðin á að fara að klárast. Fer aftur norður um næstu helgi og stoppa þá aðeins lengur því þá er árshátíðin Brosandi 

Ritgerðin gengur annars alveg ágætlega. Búin að taka fimm af sex viðtölum og nú verður bara að fara að vinna úr þeim. Sum sé það erfiðasta eftir.... eeennn það er bara gaman!

Gott í bili
Bless kex ekkert stress
Sandra

PáskarnirSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá eru páskarnir búnir og páskaeggið sömuleiðis.
Ég hef nú ekki framkvæmt margt í þessu fríi mínu enda ákvað ég að nú væri mál að hvíla toppstykkið pínulítið fyrir komandi vikur. Þó afrekaði ég að taka viðtal fyrir BA ritgerðina mína þannig að tvo eru búin og fjögur eftir. Það er alveg ofsalega gaman að taka þessi viðtöl... og gaman að heyra skoðanir fólks og rökstuðninginn á bakvið þær en jiii minn eini hvað það takur langan tíma að skrifa upp viðtalið eftir á. Ég veit ekki hversu marga klukkutíma það tók mig að skrifa upp rúmlega klukkutíma viðtal. Kannski það sé bara nóg að taka tvö viðtöl? Neeee held nú ekki...!

Reyndar passaði ég tvo hunda í páskafríinu. Hún Perla litla (stóra) var hjá okkur í nokkra daga eins og ég sagði síðast en hún fór heim á páskadag. Ég var eiginlega miður mín þegar hún fór, þó svo að ég hafi verið að farasta í höndunum af harðsperrum eftir að halda í tauminn hennar í göngutúrum og með marbletti á fótleggjunum eftir kraftmikið skottið hennar þá samt!
En hann Nói litli var hjá mér í gær meðan Hornfirðingarnir fóru í fermingarveislu. Ég þakka nú fyrir að hann er öllu minni en Perla því ég hefði ekki boðið í að ganga með hann í taumi ef hann væri mikið sterkari. Þessi litli ormur er gjörsamlega þindarlaus og gat með engu móti skilið að ég nennti ekki að hlaupa dalinn þvers og kruss með honum Glottandi

Ég heimsótti líka Hrefnu og litla guttann. Hann er kominn úr hitakassanum og öndunarvél og bara hinn frískasti. Drengurinn er alveg nákvæmlega eins og Aníta Ósk stóra systir hans. Mér eiginlega brá að sjá hversu lík þau eru. Aníta er samt orðin alger himnalengja og algjör skvísa. Ég segi það enn og aftur... tíminn líður allt of hratt... ég er að verða gömul en samt á ég eftir að gera eiginlega bara allt Hissa

Framundan er bara harkan, ég var að skipuleggja dagskrá næstu tveggja vikna og ég held bara svei mér þá að svefn sé ekki í boði fyrr en eftir árshátíð Hólanema 5. apríl. Þangað til verður bara unnið stanslaust til að klára BA i tíma...

En fyrst ætla ég að hitta Ödda í Klifurhúsinu og sjá hvort hann geti ekki kennt mér eitthvað smá Brosandi

Bless í bili
Sandra

Gleđilega PáskaSandra Björg Stefánsdóttir

Hrefna og Sæmi eru búin að eignast lítinn strák. Prinsinn kom mánuði fyrir tímann og þess vegna kúra þau mæðginin uppi á Landsspítala. Strákurinn þarf smá aðstoð við að anda en er allur að koma til. Hann var 50 cm og 13 merkur og því kannski ekki svo lítill en fyrirburi engu að síður.

Til hamingju elsku krúttin mín Brosandi

Nú er ég búin að vera í bænum í nokkra daga og hef afrekað það að taka mitt fyrsta BA viðtal. Þá er það fyrsta af sex búið. Það var bara gaman að ræða hlutina en þvílík vinna að skrásetja samtalið eftir á... úff meira en ég hélt. Næsta viðtal er svo á morgun en afgangurinn ekki fyrr en eftir páska. Þetta fjallafólk er alltaf eitthvað að vesenast um páskana Svalur

Hún Perla litla er í pössun hjá okkur yfir páskana, gaman að hafa hund í Álfatúninu aftur, ótrúlegar miningar sem rifjast upp fyrir manni. Fúsi og Sigrún eiga hana Perlu sem er svört labrador tík. Hún er nú óttarlegur kjáni enda rétt rúmlega hvolpur ennþá. Við Solla nenntum engan vegin að hanga inni í þessu frábæra veðri dagsins og því skelltum við okkur í göngutúr með Perlu niður í Nauthólsvík.

Hér eru nokkrar myndir frá deginum og eins síðustu dögunum á Hólum.

Solla og Perla


Perla í sjónum


Tröllaskaginn


Krossinn


Skólahúsið


Gleðilega Páska

Sandra

Allt ađ verđa búiđ...!!!Sandra Björg Stefánsdóttir

Þá er síðasta kennsludeginum á Hólum lokið. Trúið þið því? Ekki ég!!!
Ég fer líklega suður á Sunnudaginn, ætla að reyna að læra í kvöld og á morgun, svo pakka niður og þrífa smá áður en ég legg í hann. Þetta er ótrúlegt, nú fer að koma að síðasta göngutúrnum í skóginum, síðustu dagdraums-stundin við gluggan þar sem fjöllin mín eru sögusviðið, síðasta blótið útaf lyktinni af heita vatninu.... síðasta bara allt....
Mig svimar nú bara að hugsa um þetta...!

Nýi bær


Ekki að það sé eitthvað lítið á dagskránni framundan... nei oh nei... það bíður nefnilega eitt stk BA ritgerð eftir að vera skrifuð. Þó mér finnist ritgerðin ótrúlega spennandi þá væri ég svo sem alveg til í að skjótast á "Aldrei fór ég suður" en í staðinn ætla ég að taka viðtöl og þykjast vera gáfuð... og jafnvel klifra svolítið með Erni í Klifurhúsinu Svalur

ble ble í bili
Sandra

Reykjavík og HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði sæl öll sömul,
þá er ég komin heim á Hóla eftir 2 vikna fjarveru. Fyrst fórum við á IFEA ráðstefnu í bænum en það stendur fyrir International Event and Festival Association. Það var ofsalega gaman að taka þátt í henni og við lærðum margt af þeim bestu í bransanum. Þá tók við nokkra daga "frí" þar sem ég sat límd við tölvuna og reyndi að klára eina að þrem ritgerðum sem skila á í þessari viku. Ég gaf mér nú samt tíma til að kíkja á nýju íbúðina hennar Örnu og Arnars Brosandi

Nú svo lá leið á Höfn í Hornafirði. Ferðin tók litla ÁTTA klst því Pálína var með í för og það var stoppað á 5 metra fresti til að taka myndir... Svalur en það var ofsalega gaman á Höfn og ég gisti að sjálfsögðu í Fákaleirunni. Ég ætlaði nú varla að þekkja "litlu" frænkurnar mínar því þær eru bara alls ekkert litlar lengur. Við Hólafólk brölluðum margt skemmtilegt, fórum inn að Hoffelsjökli með Ingibjörgu og Dúdda, var boðið í risa matarboð í Hoffelli, út að borða á Humarhöfnina og ég veit ekki hvað og hvað. Helst hefði ég viljað vera miklu lengur á Höfn því þar er best að vera. Heimleiðin var ekki alveg eins frábær þar sem hún tók ELLEFU OG HÁLFAN TÍMA. Ég er ekki viss um að ég fái mig til aðsetjast inn í bíl í bráð... ég labba frekar út á Krók!!!!

Ég tók fullt af myndum sem eru inni á myndasíðunni minni en hér koma örfá sýnishorn.

jökulsárlón


Hoffelsjökull


Jöklasýningin


Kennsla í humaráti




Sandra

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur