Skaftafell... the endingSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja góðir hálsar, þá fer að líða að lokum dvalar minnar hér í Skaftafelli.Þetta hefur liðið svo ótrúlega hratt... sem þýðir að það er búið að vera voða gaman.
Við höfum ekkert verið að slaka á í djamminu undanfarið því við Rannveig og Stjáni fjalló skelltum okkur á Landsmót um síðustu helgi. Við vorum að vinna til rúmlega 5 á laugardeginum og brunuðum þá í vestur átt. Á sunnudeginum mættum við svo eldspræk í vinnu um kl. 8 um morguninn. Þetta var hverrar krónu og mínútu virði. Það var alveg frábært... hitti gjörsamlega alla!!! Fyrst sátum við í brekkunni með pabba, Petru, Önnu, Adam og Johanna og horfðum á skemmtiatriðin. Þegar kom að svefntíma hjá yngri kynslóðinni var farið á balla og svæðið skoðað. Jiiii hvað það var gaman... við Rannveig erum enn með aðgöngumiða-armbandið því við týmum ekki að taka það af....
Nú eru bara tveir vinnudagar eftir í Skaftefell city... ég á eftir að sakna þess að vera hér... eflaust á ég eftir að bruna hingað um hverja helgi til og áreita lýðinn...
Annars er ég komin með íbúð á Höfn!!!!!!!!! Fæ hana reyndar ekki fyrr en í lok ágúst, verð hjá Rögnu og Heiðari þangað til. aumingja Anna Regína og Elín Ása þurfa að láta af hendi herbergin sín til að stóra frænka geti flutt inn. Greyin.... vonandi get ég borgað þeim einhverntíman seinna...
bless í bili
Sandra
MYNDIRSandra Björg Stefánsdóttir
Já gott fólk, þá var ég loksins að setja inn myndir frádvölinni hér í Skaftafelli.Síðan síðast hef ég farið á Hnappavelli í klifur með Erni og Phil en það endaði ekki vel því það ringdi eldi og brennisteini. En við skelltum okkur yfir á Jökulsárlón og þar var yndislegt veður og við náðum flottum myndum.
Í gær var svo tvítugsafmælið hennar Ingibjargar og þá var sko húllum hæ...
Endilega skoðið myndirnar á myndasíðunni
Sandra
Skaftafell part 3Sandra Björg Stefánsdóttir
Góðan dag, góðan dag, hopp og hí það er mitt fag....Nýjustu fréttir frá Skaftafelli..
Á Jónsmessu nótt var mikið húlum hæ hér í sveitinni, við vorum með brennu og sungum og tölluð með útendingunum. Eftir að þeir voru farnir þá fórum við starfsmennirnir og fjallaleiðsögumenn í sauna sem hún Hanna var búin að útbúa. Það er alveg hægt að viðurkenna að þetta hafi verið svolítið sérstakt, en gaman... JÁHÁÁÁÁ... Ótrúleg upplifun...
Í gærkvöldi héldum við landverðirnir dansæfingu þar sem hún Sigrún kenndi okkur að dansa magadans. Ég get svo svarið það að ég hef ekki hlegið svona mikið í ár og aldir... ég vaknaði með harðsperrur!!!
Við ætum svo að reyna að fara upp á Kristínartinda í dag... veðrið er svo frábært... Ég er nú reyndar á móttökuvakt... ennnn... kannski leyfir Regína okkur að fara.. krossleggja fingur
Gott í bili
ciao
Sandra
Skaftafell part 2Sandra Björg Stefánsdóttir
Jæja góðir hálsar, önnur færsla frá Skaftafelli city JHéðan úr Fagra héraði er allt gott að frétta. Veðrið er aðeins að stríða okkur þessa dagana þar sem hitastigið hefur víst farið niður í 5 gráður um næturnar. En við erum að vinna í þessu og búumst við að þetta komist í lag á næstu klukkutímunum.
Eins og ég sagði síðast þá höngum við ansi mikið með sjálfboðaliðunum og mér skilst að Fríða (landvörður) og Chas séu farin af stað með stefnumótaþjónustu... allt að gerast í Skaftó. Rannveig og Chas eru svo að far að opna verkstæði fyrir bensín orf.Á mánudaginn fór ég í fyrstu gönguna mína með ferðamenn, við gengum inn að jökli og ég þóttist vita allt um svæðið... ég held að ég hafi alveg komið þessu sómasamlega frá mér... amk var ekkert kvartað J
Í gær fór ég svo út í Ingólfshöfða. Það var alveg geggjað, ég hafði aldrei farið áður svo þetta var einfaldlega geggjað ævintýri, ótrúlega fallegt veður og skemmtilegt fólk. Skúmurinn varð alveg vitlaus og réðst á Einar (í Hofsnesi, leiðsögumaðurinn) Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að Skúmurinn væri vondur fugl... fyrir mér eru allir fuglar góðir nema krían... hún er snaróð!!!!
Örn kom svo á svæðið í gær... vúhúúú... það væri gaman að segja að hann væri bara kominn til að heimsækja mig en svo er víst ekki, hann er að fara á námskeið hjá ísl fjallaleiðsögumönnum. Vonandi náum við að skjótast á Hnappavelli áður en hann fer aftur.... það væri SNILLD.
Fariði svo að kíkja í útilegu gott fólk.... ég verð ekki nema tæpar 3 vikur hér í viðbót....!!!
Jæja best að vinna svolítið fyrir peningunum...
Ciao
Sandra
Skaftafell citySandra Björg Stefánsdóttir
Halló halló góðir hálsar,Þá er ég komin í Skaftafellið. Þetta er alveg yndislegur staður og heilmikið gaman hjá okkur. Ég verð mest í móttökunni, þannig að það er nettur Bifrastar fílingur á minni... En ég fer líka í göngur með fólk inn að jökli og svartafossi. Um helgar verð ég svo með barnastundir. Mér finnst þetta bara gaman. Fullt af hressu fólki. Ég bý í herbergi með Rannveigu sem er frá Klaustri og með okkur í húsi er hún Hanna finnska. Við búum í húsi sem heitir Sandasel (ég gat ekki munað það fyrstu dagana... lærði það með því að minna mig á að þetta væri næstum því sama orð og ég heiti... Sandra sandur) Við erum svolítið vestan við tjaldstæðið, svona 15 mínútnar röllt inn að Skaftafelsstofu. Það er mjög kósi að komast aðeins úr vinnunni... þurfa ekki alltaf að vera á tánum því það eru gestir allstaðar. Ókosturinn er samt sem áður að það er nánast ekkert símasamband í húsinu. Ef síminn er úti í glugga í einu herberginu næst eitt strik sem þýðir að ég get tekið á móti smsum. Aftur á móti er síminn minn líka vekjaraklukka þannig að ég verð að hafa hann hjá mér á nóttunni og þess vegna er ég out of reach á ókristilegum tíma...
Ef einhverjum dettur sem sagt í hug að senda mér sms þegar ég er sofandi þá þýðir það ekki því
Engu að síður er símasamband rétt fyrir utan húsið og að sjálfsögðu á tjaldstæðinu og þar. Ég er líka í mjög óreglulegu netsambandi en reyni að láta vita af mér öðru hvoru...
Eins og þið heyrið (eða lesið) þá er þetta eintóm hamingja í sveitinni. Í gær fórum við landverðirnir í skotbolta með sjálfboðaliðunum... ég get svo svarið það að það er bara gaman að vera svolítið barnalegur stundum. Í kvöld ætla sjálfboðaliðarnir svo að bjóða í grillpartý... GAMAN GAMAN GAMAN
Jæja gott í bili,
Hlakka til að fá ykkur öll í heimsókn...
Sandy
p.s. Allir að næla sér í bændablaðið... ég er víst þar
Halló hallóSandra Björg Stefánsdóttir
Um síðustu helgi lagði ég land undir fót og skellti mér austur á Höfn. Háskólasetrið var með námskeið um friðuð svæði á Íslandi þar sem marstersnemar í HÍ skelltu sér austur. Ég skellti mér með til að ræða betur við Þorra og taka stöðuna á íbúðarmálum og þess háttar. Eitthvað hafði ég misskilið upplýsingarnar sem ég fékk því Sandran mætti bara í gallabuxum og götuskóm en planið var víst að fara upp á jökul og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta bjargaðist nú allt saman því hún Ragna var svo góð að þræða bæinn þveran og endilangan og fá lánaðan búnað fyrir mig. Við fórum ss upp að Skaftafellsjökli, Fláajökli og uppá Skálafellsjökul. Voðalega gaman því þetta voru hinir hressustu krakkar.
Staðan á íbúðarmálum er nú ekki sú besta þar sem lítið sem ekkert er að leiguíbúðum í bænum. Ég bind þó vonir við að fá íbúð. sérstaklega þar sem nokkuð margar íbúðir eru til sölu sem henta mér ágætlega. Ég ætla mér nú ekki að fara að kaupa en þar sem fasteignamarkaðurinn er frosinn á Höfn eins og annarstaðar á landinu þá vona ég að seljendur sjái hag sinn í því að leigja mér íbúð í vetur í staðinn fyrir að láta íbúðirnar standa tómar.... Krossleggja fingur.
Á mánudaginn fer ég svo í Skaftafell því ég á að byrja að vinna þar á þriðjudaginn. Það lítur þá út fyrir að ég verði ekki mikið í Reykjavíkinni í bráð...
Í gær kvaddi ég Pálínu skvísu því hún flaug út til Kaupmannahafnar í gærkvöldi. Akkúrat núna er hún sennilega að lenda í Grænlandi. Vonandi verður þetta órtúlega gaman hjá skvísunni. Ég mundi nú samt helst vilja hafa hana hér hjá mér en það er náttla bara eigingirni
Við Solla skelltum okkur á Sex in the City í gær og þvílík snilld. Ég hló og grét og allt þar á milli. Aftur á móti er það staðreynd að ef fólki líkaði ekki við þættina þá finnst því sennilega lítið gaman að myndinni. Þetta er náttúrulega bara 3ja tíma langur þáttur. Ég sé ekki fram á að þessi mynd hljóti nein óskarsverðlaun en þó var eitt atriði í myndinni sem ég hreinlega missti andann yfir. Ég hef ekki orðið fyrir svona áhrifum síðan ég sá Sean Penn öskra "Is that my daugther in there" í Mystic River. Það var atriðið þegar Carrie og Big mættustu fyrir utan bókasafnið... Þið áttið ykkur á þessu þegar þið sjáið myndina
Nú er meira og minna allt dótið mitt komið í kassa, ekki að ég hafi átt eitthvað rosalega mikið dót en það sem ég á er komið í kassa. Appelsínugula herbergið er því fremur tómlegt þessa stundina...
Endilega kíkið svo á vef Bændablaðsins en þar er umfjöllun um BA-ritgerðina mína
Bless í bili Sandra
Útskrifuđ frá HólumSandra Björg Stefánsdóttir

Góðan daginn kæru vinir.

Veitt voru mörg verðlaun á hestabrautinni og ein af ferðamálabrautinni. Þau verðlaun voru veitt fyrir hæstu meðaleinkun útskriftarnema og hana hlaut ég sjálf J Litli lúðinn... ég veit J Þið getið einnig skoðað frétt inni á Hólasíðunni um útskriftina.
Um kvöldið héldu mamma og Þorbjörn heim í bæinn en við Solla og Haffi skelltum okkur í Júróvísíon partý til hennar Pálínu. Þar skemmtum við okkur og dönsuðum eins og enginn væri morgundagurinn. Ég held bara svei mér þá að þetta hafi verið skemmtilegasta partý sem ég hef nokkur tíman farið í. Gott að enda þessi þrjú frábæru ár í Skagafirðinum á svona góðum degi.

Á sunnudagsmorgun brunum við þrjú á Pollanum til Reykjavíkur en í Álfatúninu var haldin risa veisla í tilefni dagsins. Ég missti tölu á fjöldanum en held að þegar mest var þá hafi verið um 45 manns í íbúðinni. Að sjálfsögðu eru myndir inni á myndasíðunni minni frá öllu saman.
Nú tekur við nýtt tímabil hjá okkur útskriftarnemunum. Sem dæmi þá fer Pálína til Grænlands í næstu viku og verður þar í allt sumar að leiðsegja ævintýrafólki. Ég á eftir að sakna hennar svooooo mikið. Sjálf ferð ég að vinna sem landvörður í Skaftafelli 10. júní. Þar mun ég búa og starfa í mánuð og flytja svo um set hinu megin á landið, n.t.t. á Höfn í Hornafirði. Mér var boðin staða í Háskólasetrinu þar í bæ sem ég þáði að sjálfsögðu með þökkum. Vinnan mun felast í margskonar rannsóknar vinnu tengd hinum nýja þjóðgarði og hver veit nema ég nái að troða BA verkefninu mínu þar inní á einhvern hátt J
Jæja ætli þetta sé ekki orðið gott í bili
Knús knús
Sandra
Hć hóSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er kominn tími til að blogga smá JÍ síðustu viku ákvað ég að skella mér norður um heiðar í grillpartýið ógurlega sem haldið er á hverju ári. Um daginn var ráðstefna um útikennslu sem hjónakornin Kobbi og Vanda stóðu fyrir. Þetta var alveg yndisleg ráðstefna, við fengum m.a. að kynnast útikennslu í Smáraskóla en þar ganga nemendur í 8. bekk Laugarveginn og hjóla svo Fjallabak nyrðra og Fjallabak syðra í 9. og 10. bekk. Ég er ekki frá því að ég muni flytja í Smárann þegar og ef ég eignast börn því þetta er svo sannarlega eitthvað sem ég hefði viljað upplifa í grunnskóla. Endilega kíkiði inn á heimasíðu ráðstefnunnar www.utikennsla.is.
Um kvöldið var svo grillpartýið mikla J Reyndar var það muuuun fámennara en síðustu ár (hver sá eiginlega um skipulagninguna? J) en eins og orðtakið segir “fámennt og góðmennt”. Hér er ein mynd sem ég tók í tilefni dagsins J 
Að sjálfsögðu eru fleiri myndir inni á myndasíðunni minni.
Daginn eftir skellti ég mér í klippingu og spara mér þar með nokkra þúsundkalla en það er mun ódýrara að fara í klippingu á Króknum en í bænum. Nú er ég ss orðin rauðhaus... Eða sko, mig hefur lengi langað í hár eins og hún Annar Regína frænka mín er með. Ég hef nokkrum sinnum reynt að fá þann lit en oftar en ekki endað með fjólubláan haus! Þó að liturinn sé ekki eins og hjá Önnu Regínu þá er ég mjög sátt... verst að sléttunin dugði bara í einn dag en hér sjáiði hvernig ég leit út nokkrum mínútum eftir að Rabbý fór höndum um kollinn á mér.

Þessa vikuna hef ég verið að vinna hjá Kambi til að næla í nokkrar krónur áður en ég fer í Skaftafell 10. júní.
Síðast en ekki síst þá mun ég útskrifast frá Háskólanum á Hólum næsta laugardag kl.15. Að sjálfsögðu eruð þið öll velkomin þangað og gleðjast með mér J Nú er þetta sem sagt í alvöru að verða búið. En þetta verður gleðistund og tárin bíða þar til seinna. Ég er búin að fá ritgerðina mína til baka og er mjög sátt við bæði einkunnir og athugasemdir J
Jæja gott í bili
Sandra
BÚIN AĐ SKILA!!!Sandra Björg Stefánsdóttir
Jæja góðir hálsar þá er ég búin að skila ritgerðinni miklu!!!! Jáhá ég veit að þið trúið því ekki. Þessi merki áfangi átti sér stað í gærkvöldi. Það tók ekki nema um tvo tíma að ýta á “senda” takkann. Á þeim tíma átti ég samtöl við nokkra mjög (ó)heppna einstaklinga sem fengu það hlutverk að peppa mig upp og viti menn... á endanum tókst þetta allt saman og ritgerðin er farin til prófnefndarinnar JÍ tilefni af þessu gengum við Solla, Sóley og Lilja gegn slysum í dag. En það er ganga á vegum hjúkrunarfræðinga á Landsspítalanum þar sem þeirra er minnst er slösuðust og létust á síðasta ári í umferðinni. Veðrið lék við okkur og ég get svo svarið það að ég gekk í stuttermabolnum alla leiðina frá Landsspítalanum að Borgarspítalanum. Í göngunni gekk ég samferða ákveðinni krúnurakaðri löggu sem ég eyddi heilu sumri í að glápa á hér í gamle dage. Hef nú reyndar ekki hugmynd um hvað kauði heitir en þetta voru ákaflega skemmtilegir endurfundir J
Í kvöld fórum við Sóley og Lilja á tónleika til styrktar Blátt áfram. Virkilega góður málstaður sem við ættum öll að hugsa um. Ekki var verra að tónlistin var GEGGJUÐ. Bermúda – Einar Ágúst – Rúnar Júl – Sverrir Bergaman – Á móti sól – Buff - Sálin hans Jóns míns – Ný Dönsk ofl. Ég skemmti mér mjög vel. Við stelpurnar fengum þvílíkt nostalgígju kast þegar Ný Dönsk steig á sviðið. Daníel Ágúst er aftur gengist til liðs við bandið og þó maður hafi talið sjálfum sér trú um að þeir væru alveg frábærir án hans og að maður saknaði hans ekki baun þá sá maður strax að bandið er 10.000 sinnum betra með hann innanborðs. Þá er ég ekki að lasta neinn annan í bandinu, það mætti ekki missa neinn þeirra! Börn og aðrir minna þroskaðir menn dundu í hátölurunum og ég fékk gæsahúð miður í tær... MK-minningar flæddu svoleiðis yfir mann.
Þegar Buffið var að spila fann ég enn einn mann sem ég ætla að giftast. Já ég veit, ég er að verða komin með einn eiginmann fyrir hvern dag sem ég á eftir ólifað en það er bara betra. Fá smá tilbreytingu í þetta...! Pétur Jésú er sá nýjasti. Kallinn er BARA flottur þegar hann gaular þetta með sinni undur fallegu rödd sinni, í rokkara fötunum sínum. Mér hafði bara yfirsést þetta þegar hann er í sínu aðalstarfi, bakraddasöngvari Íslands síðustu 3 árin... hehe
Þegar Á móti sól voru að spila var mér litið til hliðar og hver helduru að hafi þá staðið við hliðina á mér? JENNI í BRAINPOLICE! Hjartað í Söndru litlu tók eitt stórt stökk. Ég vissi ekki að þeir myndu spila þarna. Greyið Sóley og Lilja voru alls ekki að fíla raddböndin í þessum tilvonandi eiginmanni mínum en héngu engu að síður með mér til loka kvöldsins svo ég gæti notið þess að horfa og hlusta á kauða. Þetta voru alveg æðislegir tónleikar og grúppían í Söndru (sem ég er löngu hætt að reyna bæla niður) fékk algera útrás. Ekki versnar það nú við þá staðreynd að þetta var til styrktar Blátt áfram og rann allur ágóðinn óskertur til samtakanna J
Jæja ætli þetta sé ekki gott í bili...
Sandra kveður
BA-vörninSandra Björg Stefánsdóttir
Halló halló Góðan daginn hér!
Í dag eru hvorki meira né minna en ÞRÍR dagar í að ég verji BA-verkefnið mitt. Á fimmtudaginn held ég norður um heiðar og gisti í Brekkutúninu hjá ömmu og afa. Þau eru reyndar enn stödd í Reykjavíkinni en afi segir að hann sé alveg að verða góður þannig að þau fara bráðum norður aftur. Pippinn ætlar að sækja mig á flugvöllinn en fyrir ykkur sem þekkið hann ekki, þá er hann piparmintu blá/grænn bíll r í eigu Pálínu og Sakka
Á föstudaginn ræðst svo líf mitt, ef ég lifi þennan fyrirlestur af og kem honum nokkuð sómasamlega frá mér þá gæti alveg eins verið að ég eigi eftir að lifa góðu lífi.
Tonía Snúbba á svo afmæli á laugardaginn og þá er ég að spá í að troða í mig kökum í Jöklatúninu. Ég geri bara ráð fyrir að Pallan setji í eina eða tvær kökur.... nema það verði pizzu partý.... veit ekki !
Hugsanlega dreg ég svo klifurkennarann minn með mér í smá klifur um helgina. Ég er búin að fara nokkrum sinnum í Klifurhúsið án hans en það bara er ekki það sama..... Öööööörrrrrnnnnn farðu að koma þér í bæinn! hihi
Nú er ég búin að klára endurbæturnar á BA ritgerðinni og senda til Guðrúnar Þóru aftur, krosslegg svo fingur og vona að ritgerðin verði ekkert voðalega mikið rauð þegar ég fæ hana til baka. Núna rétt í þessu var ég svo að klára fyrirlesturinn og senda til hennar og krosslegg í það skiptið tærnar að hann sé í lagi
Pabbsen var svo góður að hjálpa mér með bakgrunn á herlegheitin. Ég tók mynd um daginn sem mér þykir afskaplega falleg en ég vildi láta litina aðeins skolast til svo textin væru greinilegri. Hvern er þá betra að tala við en hann pabba?
Jæja gott í bili
Sandra
