Dalbraut 8, 780 HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Fluttningur


Þá er ég formlega flutt úr Fákaleiru 8c. Nýtt heimilisfang er:

Dalbraut 8
780 Höfn Hornafirði

Ég er búin að sofa 3 nætur og líkar svona líka vel Brosandi En ég hefði aldrei getað gert þetta ein, Solla og Haffi hjálpuðu mér að mála og svo hafa Ragna og Heiðar verið endalaust dugleg við að hjálpa mér að setja saman húsgögn, hengja upp gardínur, tengja þvottavél og ég veit ekki hvað og hvað... takk takk takk

Hvað haldiði samt að ég sé búin að gera? Haldiði ekki að ég sé komin í Skemmtifélagið hér í bæ...! Í ár á að setja upp Bítla Show og verð ég ein af þátttakendum. Um helgina var þess vegna haldið söngnámskeið. hún Hera Björk koma alla leið úr Reykjavík til að leiðbeina okkur og það sem við skemmtum okkur vel. Ég hefði ekki trúað því hvað hún gat leiðbeint okkur vel. Allir bættu sig um amk 50% og voru flestir alveg nógu góðir fyrir.Sýningar hefjast í byrjun október og ég geri fastlega ráð fyrir að allir vinir mínir mæti Svalur Endilega pantiði miða sem allra fyrst...!!!!

Annars er nóg að gera í vinnunni... ráðstefna í lok október og allt á fulle farte...

jæja gott í bili
Sandra

Afmæli og fluttningarSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er kellan orðin gömul... Hvorki meira né minna en 25 ára... Svalur
Solla og Haffi brunuðu hingað austur til mín á föstudaginn en þá var einmitt Garðpartýið svakalega í Fákaleiru 8c. Það var alveg ótrúlega skemmtilegt þó veðrið væri kannski með verra móti. Frissi fór á kostum sem break-dansari sem endaði með því að hann og annar gestur samkvæmisins fóru í break-dans-keppni... Annað sem slóg í gegnn var eggja-suðu-tækið hans Heiðars. Það slóg í gegn og hvorki meira né minna en heill eggjabakki var soðinn til að sýna hvernig græjan virkar...! Von bráðar koma inn myndir af herlegheitunum á myndasíðuna mína. Sigga og Steini mættu líka austur á Höfn í partýið þannig að afmælisdeginum sjálfum var eytt í góðra vina hópi í Fákaleiru 8c. Við borðuðum frábæran mat og höfðum það gott allan daginn.
Á sunnudaginn pískaði ég Sollu og Haffa út og lét þau hjálpa mér að mála loftið í nýju íbúðinni minni. Já ég er sko búin að fá hana afhenda Brosandi Í gær fékk ég svo húsgögnin send að sunnan þannig að hægt og rólega er ég að koma mér fyrir. Ragna, Heiðar, Anna Regína, Elín Ása og Ragna Steinunn stóðu á haus allan gærdaginn við að hjálpa mér. Ómetanleg aðstoð... Kannski ekki við öðru að búast þegar "elsta barnið flytur að heiman".... Á morgun fer ég til Húsavíkur og verð fram á föstudagskvöld þannig að ég geri ekki ráð fyrir að flytja formlega fyrr en á laugardaginn... enda er það bara allt í lagi "Laugardagur til lukku" Glottandi

Bless í bili

ReykjavíkurferðSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég kom á Höfn aftur eftir magnaði Reykjavíkurferð. Þvílíkt maraþon... Hnjúkurinn hefði örugglega verið pís of keik miða við þetta Glottandi

Ég mætti í borgina með flugvél Arna um klukkan hálf sjö að kveldi. Þá var ekkert annað í stöðunni en hefjast handa við að pakka niður dótinu mínu í kassa. Ég verð eiginlega að viðurkenna að það er stórmerkilegt að allt þetta dót hafi komist fyrir í litla appelsínugula hefberginu mínu... úffff....
Á laugardeginum hófst svo maraþonið fyrir alvöru. Ikea - Byggt og búið - (Kringlan og Smáralindin) - Rúmfatalagerinn og svo pakka öllu niður. Ég gaf mér nú smá tíma til að kíkja á ömmu og afa en þau eru nú flutt frá Króknum í bæinn í þessa fínu íbúð uppi í Norðlingaholti. Þau voru reyndar á leiðinni í 50 afmæli til Lindu svo stoppið var nú stutt. Þá var brunað í Álfatúnið á nýjan leik og pakkað niður. Solla og mamma áttu nú stóran hlut í því að verkið kláraðist nokkurnveginn... ég var orðin svo rugluð í toppstykkinu að ég snérist bara í kringum sjálfa mig. Um klukkan 22 héldum við Solla og Haffi svo niður á Miklatún á tónleika og svo á flugeldasýningu niðri við höfn. Þar hitti ég nánast alla sjálfboðaliðana og það sem það var gaman. Ótrúlegt hvað maður getur eignast marga góða vina á stuttum tíma... og svo þarf maður að kveðja þá. Mér finnst ég alltaf vera að kveðja fólk, búin að gera alltof mikið af þvi síðustu árin... Nei nei ég segi svona... ég á þá allavega heimboð um alla Evrópu og vísa gistingu hringinn í kringum Ísland... það er nú meira en margir Svalur

Á sunnudeginum var svo vaknað fyrir allar aldir og horft á leikinn ógurlega, þó svo að hann hafi nú ekki endað með sigri þá var gaman að horfa á hann undir sæng í lazy-boy stólnum hennar mömmu... Ég er óendanlega stolt af strákunum og þeir eiga fálka-orðuna fyllilega skilið eða eins og hún Ragna orðaði það svo vel í gær "Fólk er að fá fálkaorðuna fyrir að vinna vinnuna sína svo þeir eiga hana svo sannarlega skilið"

Nú bíð ég bara eftir að fá íbúðina afhenda, vonandi verður það fyrir helgina. Solla og Haffi koma í garðpartýið ógurlega á föstudaginn og það væri óendanlega hentugt að nota Haffa í að skrúfa saman húsgögnin á laugardaginn Ullandi 
Pabbi kemur svo á morgun til landsins með Norrænu og kíkir við hjá mér á leið suður og svo norður í land þar sem hann verður að leikstýra eins og í fyrra. Aðstæður verða nú örlítið öðruvísi hjá honum þetta árið, þar sem hvorki amma, afi né ég verðum fyrir norðan... En við erum þó amk á sma landinu Brosandi

Jæja best að fara að gera eitthvað
yassou
Sandra

HANDBOLTISandra Björg Stefánsdóttir

Ísland að vinna Spánverja


Ég verð nú bara að viðurkenna að ég hef ekki þorað að tjá mig um gengi íslenska landsliðsins á ólympíuleikunum af ótta við að þeir færu að klúðra þessu (talandi um hjátrú) en nú get ég bara ekki orða bundist!!!!!
ÚRSLITALEIKURINN!!! ERUÐ ÞIÐ AÐ GRÍNAST???
Nú held ég að það sé bara ekkert annað í stöðunni en að drífa í því að giftast honum Fúsa mínum.... Glottandi

Ég dreif mig heim í hádeginu í dag til þess að ná leiknum. Elín Ása var hjá Rögnu Steinunni vinkonu sinni og Ragna og Heiðar fyrir sunnan þannig að við Anna Regína vorum bara tvær að hvetja liðið áfram... eða það hélt ég. Þegar 5 mín voru liðnar af leiknum og ég fékk spurninguna "Hvort erum við í rauðum eða hvítum búningum?" þá varð mér ljóst að ég væri líklega eini aðdáandinn í Fákaleiru 8c þá stundina! En strákarnir UNNU með glæsibrag og ég er viss um að það voru fleiri en þeir sem grétu af fögnuði Brosandi Kíkiði endilega á það hvernig strákarnir fagna... HÉR   Fréttamennirnir á FOX kunna sko að meta hann Fúsa minn.... HÉR
Já og eitt enn... hver man ekki eftir Sollu og Bjögga hér í denn? Solla systir, stráka-stelpan ógurlega sem átti bara stráka vini var eiginlega alltaf með honum Bjögga. Sá Bjöggi er enginn annar en landliðsmarkvörður okkar íslendinga í dag og er að gera GÓÐA hluti... Greinilegt að Solla hefur kennt honum eitthvað Glottandi

TIL HAMINGJU STRÁKAR OG ÍSLENDINGAR ALLIR!!!

Annars er ég að fara að skella mér til borgar óttans. Tek flugvélina á eftir og fer svo aftur til baka á sunnudag með Rögnu og Heiðari. Ég geri alls ekki ráð fyrir að hitta marga í þessari stuttu ferð þar sem aðsetur mínar verða aðallega í IKEA... Nema náttúrurlega ef allir skella sér niður í bæ á Menningarnótt og hitti mig við götuljósin á lækjargötu - Bankastræti kl 19.37 Svalur

bless kex ekkert stress
Sandra

Hæ hóSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég mætt í vinnu á Höfn á nýjan leik. Síðustu vikur hafa verið ansi viðburðaríkar eða ætti ég heldur að segja að á síðustu vikum hef ég verið á ferðinni eins og óð manneskja um sveitir landsins.

Við Sigrún Inga þvældumst á Klaustur, Skaftafell og Jökulsárlón með skoðunarkönnunina okkar svakalega. Á lóninu nutum við leiðsagnar hans Kidda frænda sem rak okkur áfram með harðri hendi. Fyrir ykkur sem þekkið ekki til þá er Kiddi 13 ára frændi minn frá Höfn. En vegna tilsagnar hans þá slógum við metið í fjölda kannana eða 202 kannanir á einum og sama deginum!!!
Þar síðustu helgi þvældist ég svo með Guggu,Sigga, Bjarma og Tómasi inn í Heinaberg og að veiða í Baulutjörn. Það endaði nú nokkuð spaugilega þar sem hluti annarar veiðistangarinnar endaði óvænt út í miðju vatninu, þá er ég að tala um hálfa stöngina, ekki bara öngulinn. Siggi þurfti á endanum að fletta sig klæðum og vaða á eftir gripnum, við ómælda gleði okkar sem á bakkanum sátum Hlæjandi

Síðast liðinn fimmtudag fórum við starfsmenn Háskólasetursins á Höfn svo í göngu. Upphaflega var áætlað að fara inn Heinabergsdal og þaðan inn í Vatnsdal og skrá niður plöntutegundirnar sem þar finnast. Við fórum að vísu ekki lengara en inn Heinabergsdalinn og upp á hálsinn til að komast inn í Vatnsdal. Þar varð okkur ljóst að við færum ekki lengra nema með tjald með okkur því ferðin yrði að lágmarki 15 tímar með tímanum sem tekur að greina blessaðar plönturnar. Þess í stað tóku SIgrún Inga og Steinunn Hödd sig til og greindu hverja einustu plöntu uppi á þessum hálsi á meðan við Andreas klifum Geitakinn. Ég verð að viðurkenna að sjaldan eða aldrei hef ég orðin fyrir jafn miklum áhrinum af völdum íslenskrar náttúru. Þetta var stórfenglegt, jökullinn, fjöllin, dalirnir.... Ég elska Ísland!

Heinabergsjökull

Rúsínan í pylsuendanum var svo helgin sem var að líða. Hún byrjaði á að við Ragna, Heiðar og Hafsteinn gengum upp Efstafell inni í Geitafelli. Eftir það brunuðum við heima og horfðum á Ísland-Danmörk í handbolta. ÞVÍLÍK SPENNA. Rannveig og Ásbjörn komu við og horfðu með okkur á leikinn og það var eiginlega eins gott að þetta fór með jafntefli því annast hefði mjög líklega soðið uppúr á meðal áhorfenda í Fákaleiru 8c Svalur Svo var brunað beina leið í Skaftafell city. Eftir að hafa reist tjaldbúðirnar brunuðum við með Erni super-climber á Hnappavelli þar sem var prílað og dottið fram á rauða nótt. Ég pakkaði nú bara niður regnfötum og kuldagalla því spáin sagði ekkert annað en rigning-rigning-rigning... nema hvað.... Ég vaknaði hinsvega í gærmorgun í svitabaði og áttaði mig á því að úti var sól og blíða. Heiðskírt og 20 stiga hiti. Engu að síður gerði ég ekki margt annað en að hanga með Dougie og félögum við sjálfboðaliðahúsið framan af degi. Reyndar var það alveg svakalega skemmtilegt og mikið hlegið. Svo skellti ég mér í smá göngu yfir Skaftafellsheiðina og inn í Morsárdal til að viðra mig fyrir klifur eftirmiðdagsins. Nema í það skiptið fórum við Örn ekki á Hnappavelli heldur upp á Svínafellsjökul. Jáhhh... Hún Sandra skellti sér í ísklifur. Það var ótrúlega sérstakt að þurfa allt í einu að treysta á einhverjar græjur...!  Fyrsta ferðin gekk kannski ekki sem best... en í annarri ferðinni var ísinn bara massaður og upp fór ég eins og ég hefði aldrei gert annað (athugið að ég er verulega hlutdræg í þessari frásögn minni). 
Helgin endaði svo á því að Regína og Claus buðum öllum starfsmönnum sumarsins í mat inni í Náttúruskóla. Þar voru Eva og Hanna  búnar að skreyta allt með birkigreinum og borðum, við sátum svo öll í sátt og samlyndi til að verða eitt í nótt og snæddum 3ja rétta dýrindis máltíð og spjölluðum og hlógum.
Frábær frábær frábær helgi sem var fullkominn endir á frábæru sumri.

Hnappavellir


Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna Brosandi

bless í bili
Sandra

HvannadalshnjúkurSandra Björg Stefánsdóttir

Hoppað við Svartafoss


Halló halló
Hér hafði ég fyrirhugað að skrifa grein um ferð mína upp á Hvannadalshnjúk síðasta mánudag, jafnvel setja inn mynd af mér skælbrosandi með ísexina á lofti á toppnum. Því miður mun ekki fara mikið fyrir þeim skrifum hér í dag. Síðasta sunnudag kom Einar Ísfeld í Skaftafell til að skoða leiðina upp á Hnjúkinn. Aðrir leiðsögumenn höfðu átt í erfiðleikum með að komast upp á topp og í rauninni ekki komist þangaði í meira en viku. Einar komst heldur ekki á toppinn. Jökullinn er of sprunginn og of hættulegur þannig að það var hætt við ferð mánudagisns og raunar allar ferðir sumarsins. Fjallaleiðsögumenn munu sem sagt ekki fara aftur upp á Hnjúk fyrr en það hefur snjóða duglega uppi á toppnum. Við vorum svo svekktar að við gátum varla talað. Í staðinn buðum við fjalló í Sandasel þar sem við spiluðum Partý og co og Trivial fram á nótt. Það var reyndar alveg rosalega gaman.
Á mánudeginum fórum við Rannveig og Ásbirnir-nir tveir frá Danmörku í göngu í Skaftafelli. Planið var að fara upp á Kristínartinda en skýin voru eitthvað langt niðri þannig að við fórum bara upp að Sjónarnípu, Svartafoss og enduðum svo í Lambhaga. Við tókum líka fullt af hoppu-myndum sem eru allar komnar inn á myndasíðuna mína Brosandi

Þessa vikuna hef ég svo verið á Klaustri og í Skaftafelli að vinna. Við á Háskólasetrinu erum að gera skoðanakönnun um Vatnajökulsþjóðgarð, viðhorf og skoðanir ferðamanna á honum o.s.frv. Það á svo eftir að koma á daginn hvort við getum unnið úr þessu.... SPSS... úfffff
jæja gott í bili
Sandra

MyndirSandra Björg Stefánsdóttir


 
Háhestur á Landsmótihestamanna 2008

Þá eru myndirnar frá Landsmóti hestamanna komar inn á myndasíðuna, ég var alveg viss um að ég væri búin að setja þær inn en svo var víst ekki. Merkilegt nokk að þó að það hafi ekki verið þverfóta fyrir Hólafólki þarna (sem er mjög gott Glottandi) þá náði ég nánast engum myndum af þeim.
Það voru líka fullt af Króksurum þarna sem vita varla hvað snýr fram eða aftur á hesti... en Skagfirðingar láta ekki svona vígalegt djamm framhjá sér fara, ekki frekar en ég sjálf Svalur

Héðan frá Höfn er allt gott að frétta, ég er að reyna að drössla sjálfri mér út að labba á hverjum degi og ná mér í smá þol svo ég verði ekki eftir í göngunni miklu í Skaftafelli næst mánudag...!
Hadda Hrund og Doddi og Sóley og Rafn ætla að hitta mig í Skaftafelli um helgina... útilega en ekki útihátíð... jubbííí... Að sjálfsögðu eru allir velkomnir að slást í hópinn. Mér skilst að það sé ball á Klaustri á laugardeginu og það er aldrei að vita nema maður skelli sér þangað!

Skaftafell og Hvannadalshnjúkur


Eftir helgina verðum við Sigrún Inga (á Háskólasetrinu) á ferðinni um suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Við munum leggja könnun fyrir ferðamenn á svæðinu. Rosa stuð!

Jæja þá er það gott í bili
Sandra

Skaftafell city um síðustu helgiSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði sæl öll sömul.
Þá er önnur vikan mín á Háskólasetrinu á Hornafirði hafin. Í gær fékk ég mína eigin skrifstofu og í kvöld koma tölvurnar. Reyndar erum við fjögur saman í einu herbergi en það er risastórt svo það fer vel um okkur.
Um helgina skellti ég mér í Skaftafell. Brunaði eftir vinnu á föstudaginn. Fór beint á landvarðavakt með henni Rannveigu sem er í sjálfu sér ekki vinna heldur bara skemmtun Svalur Í sjálfum sér var öll helgin þannig... Það er sko gaman í Skaftafell city Glottandi Skelltum okkur svo á djammið með Fjallaleiðsögumönnum bæði kvöldin, verð að viðurkenna að ég var ansi þreytt seinna kvöldið en þar sem ég var ekki sú eina þá hef ég ekkert samviskubit.... ég talaði þó allavega ekki uppúr svefni eins og sumir Glottandi Við Rannveig og Ingibjörg ákváðum að mánudaginn eftir Verslunarmannahelgina munum við skella okkur í laaaangan göngutúr á Skaftafellssvæðinu, við sjáum þess vegna til með djammið... reyndar hef ég ekki farið á útihátíð í mörg herrans ár (fyrir utan vígalega Akureyrarferð með henni Sóley 2003) þannig að ég á sennilega ekki eftir að gráta mjög mikið, heldur gleðjast yfir útiverunni  og góða félagsskapnum Svalur

Jæja gott í bili
Sandra

Tha Dark KnightSandra Björg Stefánsdóttir

Ég var að kíkja á trailerinn úr nýju Batman myndinni, The Dark Knight. Svei mér þá ef maður verður ekki bara að gera sér ferð í höfuðborgina og kíkja á myndina. Auðvitað er það ekki spurning, síðasta mynd Heath Ledger... Trailerinn lofar amk góðu Svalur

Núna á eftir vinnu á Höfn held ég í Skaftafell... vúhúú hlakka til að fara að slá gras og klippa greinar og vísa veginn að Svartafossi... (engin hæðni sko... ég get varla beðið...) Tók mér hljóðbók á bókasafninu... skyndilega finnst mér geisladiskarnir mínir lítið spennandi... kannski er ég búin að hlusta á þá of mikið síðustu daga... Var einhver að segja að ég væri búin að keyra of mikið???? Glottandi

Endilega kíkiði á greinina um sjalfboðaliðana sem ég er alltaf að tala um... Hún birtist í Grapevine núna um daginn...

Over and out
Sandra

Höfn in HornafjörðurSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég flutt á Höfn í Hornafirði. Sem stendur bý ég hjá Rögnu og Heiðari og verð hér út ágúst mánuð.
Þetta er náttúrulega alveg rosalega fínt, enda alltaf stjanað við mann eins og maður sé prinsessan á bauninni hér í Fákaleirunni. Svalur

Síðasta kvöldið mitt í skaftafelli grilluðu stelpurnar mér til heiðurs í Landvarðahúsinu. Þetta var alveg yndislegt kvöld og við átum og átum og átum... jiii minn eini þegar ég hugsa um það þá skil ég ekki hvernig við gátum torgað þessu öllu... sykurpúðar, hreindýraborgarar, pylsur, bananar með súkkulaði og svo súkkulaði/bananastangir í eftirrétt....!!!!! Takk fyrir mig snúllurnar mínar Glottandi

Um síðustu helgi var svo ættarmót hjá ömmu Sollu og þar gat ég knúsað litlu ormana mína í marga daga í röð. Nú eru þau farin aftur Finnlands og ég sakna þeirra rosalega.

Ég er hægt og rólega að setja inn myndir á myndasíðuna sem þið megið endilega skoða.

bless í bili
Sandra

Aðalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Staður: Höfn Hornafirði
  • Atvinna: Verkefnastjóri við Háskólasetrið í Hornafirði

Innskráningar kubbur