KUSK BALLSandra Björg Stefánsdóttir

Nú er kominn tími til að koma sér í gott skap!
Hann Heiðar frændi minn var að senda mér link á eina stórskemmtilega síðu. Hann er búinn að setja upptöku af síðasta Bítlaballinu á hótelinu inn á síðuna sína svo nú er um að gera að hita upp fyrir helgina, hækka í botn og tjútta laglega. Það geri ég allavega og skemmti mér KONUNGLEGA  Cool

http://heidarsig.net/kuskball.mp3 


bless í bili
Sandra

Góđan dag... góđan dag...Sandra Björg Stefánsdóttir

Ætli það sé ekki kominn tími til að blogga aðeins Smile

Um síðustu helgi var heilmikil ráðstefna hér í Hornafirði um Atvinnumál við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem ég aðstoðaði rósu í Ríki Vatnajökuls við að skipuleggja. Þetta var svo frábær ráðstefna að ég á ekki orð. Hljómar kannski frekar undarlegt þar sem ég kom að skipulagningunni en... Ég hefði verið tilbúin til að borga mikið fyrir að komast þangað ef aðstæður hefðu verið aðrar. Mikill tími fór í ræða um það sem mér finnst óendanlega skemmtilegt þessa dagana en þaðe rfjallamennska. Ég skráði mig í umræðuhóp um fjallamennsku og viti menn þar voru líka einstaklingar eins og Einar Torfi, Einar í Hofsnesi og Jökull Bergmann ásamt mun fleirum... ég fílaði þetta í tætlur. Þarna kviknuðu endalausar hugmyndir... Ég er meira að segja að hugsa um að stela einni eða tveim og þróa inn í NEED verkefnið. Ætla ekkert að segja of margt of snemma en klifur kemur við sögu... og kennsla... og börn... og fullorðnir.. og Höfn... SmileCoolSmile

Klifri klifri...

Reyndar lagðist ég í pest eftir málþingið... eina svakalegustu gubbupest sem sögur fara af. Ætla ekkert að fara nánar út í það hér en þetta er víst að ganga hér á Höfn og því skilur annar hver Hafnarbúi hvað ég á við þegar ég nota þessi stóru lýsingarorð!!!

Næsta helgi verður svo ein skemmtilegasta sem sögur fara af... Það vill þannig til að Skemmtifélagið verður með lokahóf á Smyrlabjörgum. Farið verður á föstudegi og kemið aftur á sunnudegi og yours truely er í Skemmtinefnd ásamt Nönnu og Gullu skvísunum ógurlegu. Við erum því að tala um gleði, gleði, gleði, gleði, gleði... Ég bara sár VORKENNI þeim sem sjá sér ekki fært að mæta Wink

Jæja best að fara að vinna fyrir laununum sínum
Adios
Sandra

Bítla show á endaSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er Bítla-æðið bara búið... Það er eiginlega alveg ótrúlegt hvað þetta er búið að vera skemmtilegt og fljótt að líða.
Síðasta sýningin var á laugardaginn var, Harpa og Heiða skvísur komu galvaskar úr Reykavíkinni svo það var endalaust stuð á Dalbrautinni... eins og reyndar alltaf Cool
Við kjöftuðum langt fram á morgun á föstudagskvöldinu þannig að við gerðum eiginlega voða lítið á laugardeginum. Ég fór með skvísurnar í þennan hefðbundna göngutúr um bæinn, svo tókum við rúnt og enduðum í Fákaleirunni þar sem við horfðum á landsleikinn. Enda urðum við að taka þessu rólega því um kvöldið var jú sýningin ógurlega... ekkert vit í að eyða orkunni yfir daginn...

Ég hafði eiginlega ekki miklar væntingar til þessarar sýningar því næst síðasta sýningin (og ballið) voru svo ótrúlega skemmtileg að ég var viss um að ekkert mundi toppa það... en það kom á daginn að ég hafði rangt fyrir mér því þetta var alveg ENDALAUST skemmtilegt... og þess vegna er eiginlega enn sorglegra að þetta sé búið. Allt of langt að bíða í eitt heilt ár eftir því að þetta byrji aftur! Já ég held að það sé óhætt að fullyrða að ég verði með að ári... Smile

Nú tekur við ráðstefna um næstu helgi um Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem haldin er hér á Hornafjarðarsvæðinu. Endilega skoðiði hana hér, margir MJÖG skemmtilegir fyrirlesarar Smile
Svo meigið þið líka kíkja á frétt inni á hornafjordur.is sem hún Sigrún Inga skrifaði um okkur á Háskólasetrinu.

Nú er ég búin að setja inn svolítið af myndum frá NEED ráðstefnunni, endilega skoðiði.

Jæja þá er þetta gott í bili
Sandra

NEED og Bítla showSandra Björg Stefánsdóttir

Aðal gengið á bítla showi

Jæja þá er ráðstefnan svakalega búin sem og frábær helgi Cool

NEED gekk bara alveg ágætlega, þrátt fyrir að nánast allt hafi farið úrskeiðis sem mögulega gat farið úrskeiðis. Hin íslenska veðrátti spilaði þar stóran þátt. Til að byrja með gátu vesalings útlendingarnir ekki lent á Húsavík eins og gert hafði verið ráð fyrir heldur fóru á Akureyri og þá þurfti að bjarga rútu. Þau voru því ansi lúin þegar þau mættu á Gamla Bauk í kvöld mat um kl 21.30 á mánudagskvöldið, sum búin að ferðast í 16 tíma. Daginn eftir var ekki hægt að keyra að Dettifossi vegna snjós þannig að öll dagskrá dagsins raskaðist. Svona gekk þetta meira og minna alla vikuna en allir voru svo þolinmóðir við okkur, þá bæði ráðstefnu gestir og ferðaþjónustuaðilarnir. Sérstaklega var hann Andri frábær enda "ekkert mál" mest notaða orðasamband hans síðustu vikuna en Andri var bílstjórinn okkar. Hann vinnur fyrir fyrirtækið Fjallasýn sem ég mæli svo sannarlega með að þið hafið samband við ef þið þurfið á rútu að halda, ég er meira að segja með gemsann hjá þeim öllum svo hafiði bara samband við mig. Kannski ég fari bara fram á söluprósentur... Wink 
Þessi vika var ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík þó að svefninn hafi verið með allra minnsta móti og stressið töluvert. Síminn var til dæmis svo mikið notaður að hann er farinn að pípa og það ískrar í honum í tíma og ótíma þessa dagana þó svo að enginn svo mikið sem horfi í áttina að honum...
Á fimmtudaginn borðuðum við svo hátíðarkvöldverð á Hótel Höfn sem endað á því að fimm lög úr Bítlashowinu voru tekin. Eitthvað hef ég verið farin að láta á sjá vegna stess því meira að segja Heiðar hafði orð á því Tongue out

Á föstudagskvöldið komu svo mamma og Solla í sveitina til mín, og ásamt Pálínu var djammað út í eitt alla helgina. Ég skemmti mér amk alveg óendanlega vel og ég vona svo sannarlega að það sama gildi um þær. Skvísurnar skelltu sér á showið á laugardeginum ásamt Siggu, Steina, Ingu, Halldóri, Rögnu og Evu og ég er ekki frá því að ég hafi bara átt klapplið kvöldsins Cool

Það eru fullt af myndum frá laugardeginum inni á myndasíðunni minni og svo á ég von á myndum frá Pálínu og NEED á næstu dögum sem ég skelli kannski inn við tækifæri.

Held ég látið þetta duga í bili en vil þó segja
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í DAG ELÍN ÁSA 9 ÁRA PÆJA Kiss

bless í bili
Sandra

BritneySandra Björg Stefánsdóttir

Afþví að ég hef nú verið svo málefnaleg undanfarið og aðeins fjallað um daginn og veginn þá verð ég að koma með smá gelgjublogg... bara svona af því að það er svo fallegt veður hér í sveitinni Cool

Ég var að skoða frétt á www.visir.is um hana Britney spears vinkonu mína. Ég veit að ég "á" ekki að fíla hana og ég geri það eiginlega ekki... en það kunna samt allir lögin hennar, tala nú ekki um þessi gömlu... Hörðustu rokkarar geta raulað flest af fyrstu lögunum hennar. Britney greyið hefur nú fríkað út og gert örugglega flest þau mistök sem hægt er að gera, nú er hún samt sem áður risin upp frá dauðum og er að "meika það" enn einu sinni. Ég kíkti á nýja myndbandið hennar Wominazier  og þó mér finnist lagið eiginlega hörmung þá minnir myndbandið mig svolítið á I'm a slave 4 you sem ég ELSKA. Já ég veit ég veit... eflaust finnst mörgum ykkar núna eins og ég sé að bregðast ykkur en ég þori alveg að viðurkenna að mér finnst lagið ÓTRÚLEGA TÖFF (Palagonited tuff kannski..!!!) og myndbandið eiginlega enn meira töff!!! OG HANA NÚ!!!

Annars er allt að smella fyrir ráðstefnuna, bara 4 dagar í að hún hefst. Dagskráin komin á netið HÉR, hótel og veitingastaðir bókaðir, Pálína búin að staðfesta komu sína og allt að gerast. Smile

Bítla-showið er auvðitað í fullum gangi, sýning fyrir Heppuskóla (Anna Regína) í kvöld, FAS á morgun og svo venjuleg sýning á laugardaginn. Einhvern veginn er ég nú komin í Skemmtinefnd Skemmtifélagsins, sem þýðir að það er í mínum höndum að skipuleggja Lokahófið... Að sjálfsögðu geri ég það ekki ein, Nanna og Gulla eru með mér. Ég veit nú ekki alveg hvernig þetta gengur fyrir sig en það kemur allt í ljós... við erum öll svo ÝKT skemmtileg að það er engin hætta á öðru en að lokahófið verði stórskemmtilegt Laughing

Jæja gott í bili
Sandy

Skinkurnar á HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Skinkur á Höfn


Nú eru Skinku-skvísurnar farnar heim eftir ótrúlega skemmtilega helgi á Höfn... eða mér fannst hún allavega mjög skemmtileg Smile

Þær brunuðu austur á föstudaginn og voru paslega komnar í kvöldmatinn á Dalbrautinni... Við tókum því bara rólega um kvöldið enda þurfti að ræða maaaaaaaaaarga hluti yfir hvít og rauðvíni Wink 
Á laugardaginn var farið í útsýnisgöngutúr um bæinn, fjörðurinn skartaði sínu allra fegursta, jöklarnir, fjöllin, sjórinn... allt baðað í sólargeislum. Eftir sundferð þar sem ákveðnar skinkur gengu í barndóm fór ég með skvísurnar upp á Gónhól að "horfa á fjöllin" Cool

Um kvöldið var svo Bítla showið. Ég var eiginlega miklu stressaðari núna en fyrir frumsýninguna enda þekkti ég örugglega hálfan salinn og þá meina ég þekkti ekki bara kannaðist við. En þetta gekk eins og í sögu... adrenalín flðið í hámarki langt frameftir nóttu, já og eiginlega morgni.
Eftir bilað stuð á balli með Kusk héldum við á Dalbrautina þar sem meiningin var að halda eftirpartý... það var nú frekar aumt þar sem Skinkurnar voru bara sofnaðar á innan við hálftíma. Við Nanna héldum uppi stuðinu enda búnar að svolgra í okkur helling af magic. Það var svo ekki fyrr en seint og um síðar meir sem Parket bættist í hópinn. Það var lítið um tónlist en mikið um "ussss" og "ekki tala svona hátt" en ég held samt að þetta hafi verið allt í lagi eftirpartý Cool 
Skinkurnar kvöddu svo um hádegisbilið á sunnudeginum og þá tók ekkert við nema leti.
TAKK FYRIR ÆÐISLEGA HELGI DÚLLURNAR MÍNAR...!

Nú er allt að gerast í vinnunni, ekki nema vika í ráðstefnuna ógurlegu og stressið farið að segja til sín. Ég veit það verður bara gaman, mikið ferðalag og mikil skipulagning en mikið stuð. Húsavík-Egilsstaðir-Höfn-Klaustur, Útlendingar-Íslendingar, Fyrirlestrar-Ferðalög-Veitingastaðir... Allt að gerast.
Áður en það gerist eru 3 sýningar á showinu, Heppuskóli, FAS og svo laugardagssýning... marr fer að verða svo frægur að ég fer að gefa eiginhandaráritanir... fariði bara í röð elskurnar mínar.... Wink

Myndir frá helginni eru komnar inn að myndasíðunni og líka myndir af skýrnakjólnum mínum sem ég saumaði í húsó og kláraði út á Krít en var bara að ná blekblettunum úr í síðustu viku.

Bless bless ekkert stress
Sandy

Ýkt gott lag!!!!Sandra Björg Stefánsdóttir


Bítla show

Þá er búið að FRUMSÝNA Bítla showið Brosandi Dagurinn í gær var ÆÐISLEGUR...!!! Fyrst var brunch heima hjá Rögnu og Heiðari fyrir allt liðið í sýningunni. Fullt af mat frá hótelinu og MIKILL hlátur, allir í þrusu gír fyrir kvöldið. Við mættum svo upp á Hótel um það leiti sem húsið var að opna og fórum að hafa okkur til. Ég hefði ekki trúað hvað þetta var gaman, í nokkra klukkutíma sátum við bara niðri í herbergjum og biðum eftir að maturinn kláraðist, það tók lengri tíma en við héldum en það var samt svo gaman því allir tróðust saman inn í tvö pínulítil herbergi og horfðu á sjónvarpið og gagnrýndu klæðnað fólksins þar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Sýningin gekk eins og í sögu og allir lögðu sig 150% fram og gerðu sitt allra besta. Ótrúlegur munur að syngja fyrir framan svo líflega áhorfendur, allir sungu með og í lokin stóð fólk upp og dansaði við sætin sín. GEGGJAÐ, nú skil ég hvað Nanna og fl voru að tala um þegar þau sögðu að maður yrði háður þessu.
Á ballinu var endalaust stuð, enda allir í spennufalli og adrenalín-flæðið var endalaust..! Það er best að taka það fram að á þessu balli var engin athygglissýki í gangi á sviðinu enda hét hljómsveitin sem lék fyrir dansi Parkusk eða Kusket... man það ekki alveg... enda skiptir það ekki máli, bottom line-ið er að bæði Kusk og Parket léku fyrir dansi...! Það stendur þá svart á hvítu hér að á ballinu var ENGIN athygglissýki Glottandi
Eftir ballið fórum við svo til Bjartmars og Önnu í frumsýningarpartý. Þau voru búin að útbúa dýrindis mat með aðstoð frá húsfreyjunni í Fákaleiru 8c. Það var svo gott að fá mat, enda fáir búnir að borða nokkuð með viti frá því í brunchinu um morguninn. Ég ætla svo sem ekki að hafa mörg orð um þetta partý enda munu myndirnar tala sínu máli... þær eru allar komnar inn á myndasíðuna mína Brosandi

Eitt sem ég þarf að minnast á er spila-partý sem haldið var á Vogarbrautinni eftir general prufuna. Við vorum upprunalega átta manns og spiluðum Popp punkt... sem ég gat EKKERT í... ekki mín sérfræðideild að vita allt um tónlist. Engu að síður var ég í vinningsliðinu!!!! AÐ SJÁLFSÖGÐU!!! Þakka sönghæfileikum Stjána og keppnis anda hans þar að mestu. En það var ekki það sem ég ætlaði að minnast á. Í miðju spilinu verða allir allt í einu eitthvað skrítnir og líta á mig. Ég áttaði mig alls ekki á því hvað var að gerst. Allri í einu heyrist "Ertu búinn að spyrja hana? Spurðu hana!!!" Ég varð pínu stressuð... hvað í ósköpunum hafði ég gert af mér?
"Hjaddna, Sandra... Hver er pabbi þinn?"
"HAAA?"
"Lék hann í bíómynd?"
Þetta snérist þá um Sódómu Reykjavík Glottandi Eftir smá hláturskast fóru frasarnir að fljúga... Ótrúlegt hvað þetta vekur alltaf mikla lukku, enn er ég að fá komment frá Hólum um kallinn... Ekki það, mér finnst það alls ekki slæmt, allra síst þegar ég er að reyna að fá athyggli frá einhverjum sem finnst þetta einstaklega áhugavert.  Kallinn hefur sum sé oft hjálpað (ómeðvitað) til í þeim efnum Svalur

Jæja þá er þetta orðið gott í bili...
Ciao Sandy

LaufskálaréttSandra Björg Stefánsdóttir

Um síðustu helgi skellti ég mér norður í land á Laufskálarétt.
Ég flaug suður á föstudaginn og brunaði svo norður í land með Rannveigu skvísí pæ. Stelpugreyið þurfti að hlusta á Bítlana ALLA leiðina og tjáningar mínar um þetta frábæra show sem við erum að setja upp á HöfnSvalur 
Það var svo æðislegt að koma norður, sjá fjöllin mín og litina og húsin og fólkið og bara allt... Ég dró Rannveigu beina leið í Jöklatúnið til að knúsa Pálínu pæju og Toníuna sem er bara alls ekkert lítil lengur. Litla sílið mundi alveg eftir Söndrunni og það þótti mér svoooo vænt um. 
Við Rannslan héldum svo upp á Hóla þar sem við gistum hjá Erni. Á laugardeginum hófust svo réttarstörf. ÞAÐ VAR SVOOOOOOO GAMAN!!!! Ég held bara að ég hafi hitt ALLA, vissi það svo sem fyrir fram að allir sem eru menn með mönnum láta sig ekki vanta á Laufskálarétt, ég nenni eiginlega ekki að telja upp þá sem ég hitti því í fyrsta lagi mun ég pott þétt gleyma einhverjum og í öðru lagi held ég að það séu takmörk á því hvað maður skrifi mikinn texta í hverri færslu Glottandi Ballið var að sjálfsögðu geggjað enda fóru Von, Stebbi Hilmars og Bó á kostum. 
Á sunnudaginn héldum við af stað í bæinn aftur eftir þetta maraþon ferðalag. Við stoppuðum aðeins í Varmalandi og knúsuðum ömmu, afa og pabba en gömlu hjónin ákváðu að bruna norður í réttir því afi var svo hress. 
TAKK ÖLL SÖMUL FYRIR FRÁBÆRA HELGI Brosandi BrosandiBrosandi

Ég verð að viðurkenna að mér urðu á þau mistök að ég gleymdi að taka myndavélina mér norður, þannig að engar myndir eru til frá helginni góðu, ég reyndi að bæta það upp með því að taka vélina með á æfingu í fyrrakvöld og nú er ég búin að setja inn fullt af myndum frá Bítla showinu Svalur

ÞAÐ ERU ÞRÍR DAGAR Í FRUMSÝNINGU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

bless í bili
Sandy

Djamm-ćfingar-djammSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er helgin afstaðin... helgin sem átti að fara í rólegheit, afslappelsi eftir allt stressið undanfarið, að ég tali nú ekki um svefn!!! Plönin breyttust aðeins... og bara sennilega til hins betra Glottandi

Singstar


Á föstudagskvöldið var æfing á showinu og eftir það hörku singstar partý sem stóð langt fram á morgun... Þvílíkt stuð... Þá átti nú ekki að gera neitt á laugardaginn og það stóðst nokkurn veginn til að verða 23.00 því þá fékk ég sms frá Nönnu skvís um að koma á ball með KUSK... og AÐ SJÁLFSÖGÐU skellti ég mér á ball Svalur Þvílíkt stuð... fyrir ykkur sem ekki vitið það þá er KUSK hljómsveitin sem leikur undir í showinu, svona að stórum hluta allavega, svo eru alltaf einhverjir athygglissjúkir einstaklingar sem troða sér upp á svið með þeim allt ballið... Ég hafði ekki farið á almennileg dans-djamm síðan einhvetíman fyrir norðan og átti því töluvert uppsafnað af danskvóta sem var nýttur út í ystu æsar... Á leiðinni í eftirpartý dundi þetta svakalega haglél á bílnum. Sem betur fer voru allir komir inn í Pollan nema Stjáni greyið sem varð hálf vankaður fyrir vikið Svalur Ég varð hrædd um að það kæmu beyglur í bílinn... ég get svo svarið það Glottandi
Í gær var svo æfing-æfing og æfing... gaman gaman gaman... já og auðvitað Svartir Englar og Dagvaktin!

Eitt að lokum, þið ykkar sem ætlið að koma á showið... PANTIÐI MIÐA STRAX... skilst að það sé allt að verða uppselt!!!

Matseðill
  Forréttur: Tortilla bleikja - Heit humarfroða - Humar vorrúlla
  Aðallréttur: Hægeldaður lambaskanki með tómatmauk sósu

  Eftirréttur: Hvítt súkkulaði skyr frauð með mangó ís og ananas

Jæja gott í bili... kíkið endilega á myndirnar
Ciao Sandra

Myndir frá nýju íbúđinni Sandra Björg Stefánsdóttir

Síðustu daga hef ég verið í hálfgerðri fýlu og ekki nennt að blogga því teljarinn á síðunni sýnir alltaf bara að tveir hafi skoðað hana síðasta sólarhringinn... nema hvað nú ákvað ég að kíkja inn í stjórnunarkerfið á teljarann og sá að ég get tekið ánægju mína á nýjan leik. Teljarinn á forsíðunni er bara bilaður enn einu sinni... Nú þegar hafa 20 manns kíkt á síðuna mína... þó enginn hafi kvittað... hmmmmm Svalur

íbúðin mín

Nú er íbúðin mín alveg tilbúin, búin að hengja upp allar myndir og þess háttar. Mamma og Þorbjörn komu til mín um síðustu helgi og hjálpuðu mér að leggja loka hönd á verkið. Mamma kom líka með fullt af blómum frá sér og Grétu þannig að nú er heilmikið líf í íbúðinni.
Ég tók nokkrar myndir um helgina og þær eru nú komnar inn á myndasíðuna mína.

Nú eru æfingarnar á Bítla showinu komnar á fullt, við fluttum dótið allt upp á hótel í gærkvöldi þannig að nú er alvaran tekin við... þetta verður alveg rosa gaman... Solla er að hjálpa mér að finna búninga og allt að gerast Brosandi
jæja gott í bili
Sandra

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur