Þorrablót og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði sæl öll sömul,
Nú er Sandra stödd á Kirkjubæjarklaustri, n.t.t. á Geirlandi. Hef nú heyrt ófáar lofræðurnar frá Rannveigu og Villý frá þessum stað og svei mér þá ef það er ekki smá vit í því sem stúlku kindurnar voru að segja Wink Við Nýheima gengið erum hér að boða fagnaðarerindið, þ.e.a.s. kynna starfsemi Nýheima og þessa miklu og góðu samvinnu sem á sér þar stað.

Í vinnunni er allt kreisí eins og venjulega, vinnudagurinn gæti verið 12-14 tímar ef því væri að skipta en þar sem að ég met geðheilsu mína nokkuð þá reyni ég að vinna amk ekki alla daga vikurnar svo lengi Smile  í gær fór ég á fullt að vinna að umsókn til ferðamálastofu um uppbyggingu ferðamannastaðar. Ég vil kannski ekki deila öllu hér með ykkur á veraldarvefnum en ég get sagt ykkur það að ef ég fæ að ráða þá verður Stokksnesið næsta klifurparadís veraldar...

En að máli málanna... ÞORRABLÓTIÐ...!!! Um síðustu helgi fór ég á mitt fyrsta þorrablót á Höfn... já og eiginlega mitt fyrsta þorrablót þar sem ég þekktir einhvern fjölda fólks og skildi flesta brandarana. Ég skemmti mér svo ótrúlega vel og ég bara gapti fyrst þegar ég gekk í húsið því þetta var svo flott og eiginlega bara allir Hornfirðingar virtust vera saman komnir í íþróttahúsinu. Þemað þetta árið var ABBA og jiii minn eini... BÚNINGARNIR...!!! Stelpurnar voru voða sætar og fínar en karlpeningurinn var hreint út sagt sprenghlægilegur. Veislustjórarnir voru tveir, Jói frændi og Bjössi... Kannski þekkið þið þá ekki öll, sum þekkið annan og sum báða... Þeir eru í stuttu máli sagt alveg eins í vextinum nema annar er svona metri lægri í loftinu en hinn... svo getiði bara skoðað myndirnar þegar þær koma inn á myndasíðuna mína Smile
Eftir að hafa hámað í sig mat (í mis miklu magni) hófst skemmtidagskráin og hláturinn. Ég er bara nokkuð ánægð með hversu marga brandara ég fattaði, Ragna kom mér af stað með að skilja suma en aðra fattaði ég bara alveg sjálf. Einn brandarann fattaði ég meira að segja langt á undan flestum á borðinu mínu en það segir kannski meira um mig en þau Cool Eftir hláturinn hófst gráturinn..... neeeeee aldrei. Þá hófst dansinn. KUSK hélt uppi stemmningunni eins og enginn væri morgundagurinn og ég dansaði og dansaði og dansaði við alla sem ég þekkti og þekkti ekki. Þannig á þetta að sjálfsögðu að vera. Reyndar tókum við Palli svo svakalega sveiflu að mér varð hálf bumbult á eftir og þurfti hreinlega að fara út og fá mér frískt loft á eftir...
Eftir því sem leið á kvöldið fóru fleiri að dást að kjólnum sem ég var í, mér fannst hann mjög sætur og keypti mér hann þegar ég var í bænum um jólin. Ein spurði mig meira að segja að því hvort þetta væri einhver hönnunar-kjóll... ég var svo ánægð að ég var ekkert að segja henni að ég borgaði ekki krónu meira en 3.500 krónur fyrir dressið í búð sem er fræg fyrir allt annað en hönnun en ég var ekkert að auglýsa það Cool

Myndirnar eru komnar inn á netið...
Knús og kossar í bili
Sandy

Mótmæli, Þorrablót og Partý og coSandra Björg Stefánsdóttir

Verður maður ekki að vera maður með mönnum og spjalla aðeins um þessi mótmæli.
Ég sat í gær ásamt Fákaleiru fólkinu og saman fylgdumst við með fréttum og kastljósi, eða reyndar lágum við uppi í rúmi... en það er önnur saga Cool Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, þegar ég fór heim í hádegismat í gær hlustaði ég á hann Heiðar Örn frænda minn lýsa aðstæðum við þinghúsið og ég var bara nokkuð ánægð með aðstæður. Ég studdi þessi mótmæli, endilega vera með læti og láta í okkur heyra en alltaf þarf fólk að fara yfir strikið. Hvað eru börn að gera þarna undir lögaldri? afhverju í ósköpunum er 11 ára drengur í fremstu víglínu þegar allt er farið úr böndunum? Afhverju þarf fólk að vera að berja með sleif í hjálma lögreglumanna? Hvað er að græða á því? Heldur fólk virkilega að það komist upp með að berja rúður og nánast brjóta þær, kveikja í og kasta skyri í lögregluna?
Ég studdi þetta með heilum hug þegar fólk stóð með potta og pönnur og lúðra fyrir utan Alþingishúsið... En við græðum ekkert á því að fara í stríð við lögregluna, þeir eru bara að vinna sína vinnu... sem þeir fá nota bene lítið sem ekkert borgað fyrir.
Svona í lokin langar mig til að segja að ég er svo ótrúlega stolt af honum Heiðari Erni frænda mínum sem stendur sig svo vel í að lýsa aðstæðum á þinginu. Þegar allt ætlaði um koll að keyra í bankahruninu var hann einn af mínum uppáhalds fréttamönnum og núna aftur í gær við þingið... Ég veit að ég er hlutdræg og rúmlega það Wink

En í öðrum fréttum er það að ég mun að öllum líkindum fara á Egilsstaði í fyrramáli. Á föstudag er ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð þar í bæ og mér skilst að allir sem eru menn með mönnum séu á leið þangað. Við munum gista í Egilsstaðabýlinu og ég hlakka bara nokkuð mikið til. Reyndar eru veðurguðirnir alls ekki hliðhollir okkur því það eru ekkert nema stormviðvaranir og læti í útvarpinu. Sjáum til hvernig það fer.
á laugardaginn er svo ÞORRABLÓTIÐ....!!!!!!!! Ég hlakka svoooo til.... hef ekki farið á svona stórt þorrablót áður og hvað þá að ég hafi skilið brandarana, einhvetíman verður allt fyrst Smile

Ætti ég kannski að fara yfir fréttir liðinnar vikur fyrst ég er nú komin í ham? Fyrir utan vinnu, fundi, NEED, viðburðastjórnun og umhverfisstefnur er ekki mikið að frétta af Nýheimum. Við Ragna förum í maraþon göngur með Nóa á hverjum degi (nema í gær... því það var kolvitlaust veður, ég varð næstum því úti á milli bílsins og útidyrahurðarinnar í Fákaleirunni) Svo fór ég um helgina upp í stú og spilaði Partý og co með vel völdum einstaklingum. Að sjálfsögðu var eitt stelpu lið og svo tvö Parket lið. Ég viðurkenni það fúslega að mér finnst ekkert gaman að spila nema maður geti svindlað smá... Við Hrefna vorum nú komnar með doktorspróf í því í actionary her í denn. En mér hreinlega blöskraði þarna um helgina. Fyrir ykkur sem ekki vitið um hvað spilið snýst þá á maður að safna "hnetum" í ákveðnum litum. Mismunandi spurningar gefa mismunandi lit á hnetu. Að sjálfsögðu fær maður ekki hnetu nema svara rétt. Allavega þegar við vorum búin að spila í nokkurn tíma þá verður mér litið á hneturnar hjá strákaliðunum. Mér til mikillar furðu voru þeir allt í einu komnir með einhverjar 7-8 hnetur þó svo að þeir hafi í mesta verið búnir að fá 5 spurningar og alls ekki svarað þeim öllum rétt...!!! Það er ekkert gaman að svindla ef það er svona augljóst... Það trúir því enginn að maður sé eitthvað gáfaður ef allir sjá að maður svindlar fram í rauðan dauðan Cool

Jæja gott í bili
Sandra Pandra

Togara-ferðiSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði nú sæl og blessuð.
Nú er veturinn mættur á nýjan leik á Höfn, þriggja stiga frost. Ég veit, ég veit... fyrir ári síðan hefði ég nú fussað og sveiað yfir því að þetta "pakk" á suðurlandi var að væla yfir smá frosti því það kom svo sannarlega oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fyrir að það færi undir 10 gráðu forstið í Hjaltadalnum. En ekki orð um það meir.

Um helgina átti hún Ragna Björk afmæli og í tilefni að því var haldið matarboð á Fákaleirunni. Mér var meira að segja formlega boðið í mat þangað... Sem er svolítið spaugilegt því ég borða þar nánast á hverju kvöldi... Húsfreyjan töfraði fram tvær gerðir af lasagne og kjúklingarétt. Á eftir var svo kökuhlaðborð af stærri gerðinni. Ég get sagt ykkur það að ég var frekar mikið södd það kvöldið, enda ekki annað hægt. Þegar klukkan fór að nálgast miðnætti byrjaði Rush hour 2 í sjónvarpinu og allir íbúar Fákaleiru 8c voru komnir í náttbuxur og kósíheit í sófanum. Þá ákvað ég að nenna ekki lengur að hanga í sparifötunum og dreif mig heim á Dalbrautina svo ég gæti líka farið í náttföt... En þar sem ég stend inni í svefnherberginu mínu með náttbuxurnar í höndunum þá pípir síminn minn. Mér var sum sé boðið í teiti á Höfðavegnum. Þar með fuku náttbuxurnar aftur undir sæng og ég út í kuldann á nýjan leik. Það var voða gaman að hitta fólkið aftur eftir þetta langa jólafrí, mikið um aulahúmor og mikið hlegið og mikið gaman. Auðvitað var kíkt á Víkina og nokkrar mínútur og svo upp í Ósland og loks aftur á Höfðaveginn. Seint og um síðarmeir var einn sjómaðurinn í hópnum kallaður í vinnu, sem reyndist svo ekki mikil vinna... bara ekki nein. En afþví að klukkan var orðin margt og sennilega of svæsið að herja enn einu sinni á húsbóndann á Höfðaveginum var okkur boðið í sight seeing túr um togarann mikla. Sum ykkar eigið eflaust ekki eftir að trúa því en ég fór um borð og varð EKKI sjóveik! Kannski var það vegna þess að dollan var kirfilega fest við land og ekki nema örfáir metrar niður á hafsbotn... Ég held ég hafi aldrei farið um borð í togara áður, amk ekki fengið að skoða hann hátt og lágt, ég fékk meira að segja einhverja sýningu frá skipstjóranum á tækjum sem ég hef ekki hugmynd um hvað heita Cool Þetta var sem sagt fínasta kvöld og ég er ekkert óhemju sár yfir að hafa misst af Rush hour 2... enda hef ég séð hana svona 4 sinnum....

Í kvöld kemur svo Fákaleiru fólkið í kjúlla til mín á Dalbrautina. Ætla að prófa fína fína grillið sem ég fékk í jólagjöf.

Bless bless ekkert stress...
Sandy

Mætt á HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Gleðilegt nýtt á öll sömul og takk fyrir það gamla.
Ég vona svo sannarlega að þið hafið haft það gott yfir hátíðirnar, þannig var það allavega hjá mér.

Nú er ég aftur mætt í sveitina og byrjuð að vinna af krafti... eða ég veit nú ekki með kraftinn, það er eiginlega of langt að fara í tveggja vikna frí. Allavega gengur eitthvað erfiðlega að snúa sólarhringnum við til baka Smile 
En vegna þess að ég hef ekkert getað farið að sofa á skikkanlegum tíma þá hef ég lesið lifandis ósköp. Sem dæmi þá kláraði ég síðustu Harry Potter bókinni og lauk þar með ævintýrinu sem hófst úti á Krít fyrir einu og hálfu ári síðan. Kannski dæmiði mig sem einhvern krakka-bjálfa en ég held þó ekki því það eru bara alveg ótrúlega margir sem hafa lesið allar bækurnar. Síðustu bækurnar eru líka svo fullorðinslegar og dimmar og margt að gerast en samt svo dæmalaust fyndnar. Ég skellti allavega oft uppúr upphátt þó svo að Voldemort væri alveg að ná Harry og heimurinn væri að farast.

Ég fékk líka bókina hans Arnardar um jólin, Myrká. Í fyrsta sinn hef ég orðið fyrir vonbrigðum með bók eftir hann. Vissulega eru þær misjafnar og ekki allar meistaraverk en mér hefur aldrei fundist leiðinlegt að lesa hann. Núna þurfti ég samt oft að einbeita mér að því að fara að lesa. Bókin er skrifuð út frá Elínborgu og Erlendur kemur ekkert við sögu. Rúmlega helmingur bókarinnar fjallar því um matreiðsluáhuga hennar og samskipti við börnin, sem í sjálfu sér væri alveg hægt að gera áhugavert en Arnaldi tekst það samt einhvern veginn ekki. Ég er með kenningu. Arnaldur er með einhvern samning við útgáfu þar sem stendur að hann verði að gefa út bók fyrir hver jól. Hann er með stóra bók í deiglunni en hún var samt ekki tilbúin fyrir þessi jól heldur á að koma út 2010. Þess vegna varð hann að gjöra svo vel og skrifa eitthvað á blað núna til að standa við samninginn. Auðvitað hef ég ekkert fyrir mér í þessu en þetta fékk ég samt á tilfinninguna Cool 

Framundan er þorrablót Hafnarbúa sem haldið verður 24. janúar. Mér skilst að maður sé alls ekki maður með mönnum nema mæta. Eru ekki einhverjir sem hafa áhuga á að koma og panta gistingu á Dalbraut 8... Hafiði bara samband við hótelsstjórann sem allra fyrst Wink 

Já og myndir frá Gamlárskvöldi eru komnar inn á myndasíðuna (já ég var lasin og því ótrúlega mikið klædd miða við alla aðra Cool)

Óver and out
Sandra

Jól og áramótSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði öll sælog blessuð nær og fjær.
Nú eru jólin að verða búin og bara nokkrar mínútur (klukkutímar) í áramótaskaupið og flugeldana og þá hlakkar Söndru Björgu til Smile
Það sem á daga mína hefur drifið er heilmargt. Á þorláksmessu hringdi hann Þorri (yfirmaðurinn minn) í mig og sagði að það liti allt út fyrir að ríkisstjórnin væri búin að sjá ljósið og rekstri Háskólasetursins væri borgið. Að sjálfsögðu verður skorið niður en engu að síður fáum við nóg fjármagn til að halda því opnu. Afskaplega góðar fréttir svona rétt fyrir jólin.´
Aðfangadagur gekk í garð og ég fékk margar fallegar jólagjafir, bækur, hnífasett, Georg Forman grillið, hálsmen, kertastjaka, geisladiska og síðast en ekki síst slökkviliðs-dagatalið þar sem slökkviliðs menn Reykjavíkur eru léttklæddir ámyndum. Já hún Sólveig þekkir systur sína og áhuga minn á fallegum karlmönnum Cool Hann Hafþór fékk eina mjög skemmtilega jólagjöf, þyrlu sem á að vera hægt að fljúga innanhúss, fjarstýring og alles. Nema hvað gripurinn vildi ekki upp heldur hringsnérist bara á stofugólfinu vði ámælda gleði okkar systra. Haffi bar sig vel en var auðvitað drullufúll meðan við systur grétum úr hlátri. Það eru komnar fullt af myndum inn á myndasíðuna mína, eins eru myndir af ofur-hjórhjóla-skónum sem gömlu gáfu hvort öðru í jólagjöf. Alveg þess virði að skoða myndir af því Wink
Á jóladag komu börnin hans Þorbjörns og barnabörn í hangikjöts-jólaboð þar sem allir borðuðu á sig gat hvort sem þeir væru á fyrsta ári eða sextugs aldri.

Fyrir utan blessuð jólaboðin hef ég hitt vinina og klifrað eins og mest ég má. Örn er duglegur að peppa mig upp þegar ég hryn í gólfið endalaust og meira að segja Solla kom með í eitt skiptið. Hún stóð sig eins og hetja og hver veit nema hún komi bara með aftur einhvetíman.
Áka bauð okkur "gömlu" vinunum í innfluttningspartý á laugardaginn þar sem margir útlendinganna mættu ásamt okkur hinum. Útlendingarnir Simmi, Hrönn og Jónas og Elísabet ráku inn nefið en Ingvar og Hjördís komust ekki. Enda teljast þau varla sem útlendingar heldur bara tveggja barna foreldrar Wink Það var ólýsanlega gaman að hitta allt liðið aftur, mikið hlegið af endalaustum aulahúmor eins og í gamle dage. Myndir inn á myndasíðunni að sjálfsögðu.
Hrefna og Sæmi buðu mér svo í mat í fyrrakvöld í Njarðvíkinni. Þau eru með STÓRT jólatré... bara hafa það á hreinu! Hrefna eldaði rosa góða purusteik og bauð upp á heimalagaðan ís á eftir. Alvöru húsmóðir á ferð. Aníta Ósk er orðin svo þroskuð og mikil himnalengja að mér brá þegar ég sá hana. Mér finnst ég ekki hafa elst um mínútu síðan ég brunaði upp á fæðingadeild til að sjá hana í fyrsta sinn. Ég hitti líka hann Óðinn Örn í þessu matarboði. Kátara barn hef ég nú sjaldan séð, hann var bara alltaf hlæjandi og alveg til í að leika við Söndru frænku þó hann hefði bara séð mig einu sinni á fæðingardeildinni áður.

Í kvöld verður svo allt barna og barnabarna stóðið í mat í Álfatúni 35. Nema Solla og Haffi sem borða hjá mömmu Haffa en koma svo í Álfatúnið til að horfa á flugeldana, enda varla annað hægt. Boðið verður upp á kalkún en fuglinn er svo stór að hann tekur hálft borðstofuborðið... smá ýkjur í tilefni dagsins en grínlaust þá er þetta einhver tröllafugl og ég held að Alexander Mána hafi ekki staðið á sama þegar hann sá hann þyðna á eldhúsborðinu í fyrradag.

Jæja þetta er nóg í bili, endilega skoðiði myndirnar mínar og hafiði það svo sem allra best í kvöld Smile

Sandy Dandy

Reykjavík og jólafríSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég komin í Álfatúnið í jólafrí. Alltaf gott að koma heim þó svo að appelsínugula herbergið sé alveg galtómt. Ég get nú engum öðrum en sjálfri mér þar um kennt þar sem það var ég sem tók upp á því að flytja austur á Höfn með allt mitt hafurtask Cool

Annars fékk ég ekki góðar fréttir með mér í jólafríið. Það er hugsanlegt að ríkistjórnin skeri á öll framlög til háskólasetursins sem þýðir bara eitt... atvinnuleysi fyrir Söndru. Það var því ánægjulegt að frétta af því að fjárlaganefnd skilaði inn tillögu um fjárlögin í dag og þar kemur fram að þau vilja auka framlög til nokkurra háskólasetra, þ.á.m. setursins á Höfn. Vissulega er leiðinlegt að hugsanlega verður að leggja niður sum setur á landsbyggðinni en ef ég hugsa út frá sjálfri mér þá þýðir þetta að vinnan mín er örugg út næsta ár. Eins og ég sagði er þetta bara tillaga frá fjárlaganefnd en fjárlögin verða svo afgreidd á morgun. Það þýðir því ekkert annað en að krossleggja fingur og vona að þetta rætist.

Annars er ég ekki búin að gera margt síðan ég kom í bæinn, sofa og sofa aðeins meira... hausinn á mér var á einhverju sýrutrippi síðustu dagana á Höfn þannig að kannski var full þörf á þessum svefni Wink Skemmtilegast af öllu var samt að ég hitti Örn í gær og við fórum í KLIFURHÚSIÐ...!!!! Jeijjjj... Við skulum ekkert ræða um ástand vöðvanna minna í dag... Ég var bara nokkuð sátt við hvað ég afrekaði í gær. Ekki það að þolið hafi verið mikið, náði samt að klára ansi margar leiðir í fyrstu tilraun en þegar ég fór að detta þá var orkan líka alveg búin og ekki í umræðunni að gera meira. En það er allt í lagi því við förum bara aftur á morgun Smile

Í gær fórum við Drífa í jólabíóið okkar. Sáum Four Christmases... svo kíktum við á ljótu-jólaskrauts-rúnt. Árið í ár virðist vera nokkuð gott, krppan virðist halda aftur af hörmungunum. Það verður þó að viðurkennast að nokkur hús í Kópavoginu voru einstaklega ósmekkleg... vægt til orða tekið...!!!
Núna á eftir ætla ég svo að hitta Skinkurnar... eintóm hamingja...

Jæja gott í bili
Sandra

PiparkökuskreytingarSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði nú öll sæl og blessuð (já ég horfði á sjálfstætt fólk í gær)

Í dag er það að frétta af Sandy að nú vinn ég hörðum höndum að því að skila inn umsókn til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um styrk til verkefna í menningartengdri ferðaþjónustu. Hehehe hljómar vel... og væri náttúrulega frábært ef ég gæti gert þetta ein en það er nú alls ekki þannig. Við Sigrún Inga bjuggum til drög að umsókn á föstudaginn, hún sér um söguslóðaverkefnið og ég um Humarhátíðina. Umsóknin var svo í yfirlestri hjá Þorra um helgina og núna hvað á hverju hefst lokahnykkurinn. Það á sum sé að skila umsókninni inn í dag. Þó þessi vinna sé mjög skemmtilegt þá hefur fátt komist að annað en Humarhátíðin síðustu vikurnar þannig að það verður ágætt að fá smá pásu yfir jólin Smile

Um helgina stungu Ragna og Heiðar af á hótel Hvolsvöll með vinnunni hennar Rögnu. Þess vegna var ég að snúast með litlu börnunum mínum um helgina... hehehe, þær eru kannski frekar systur mínar en dætur... eða bara bland af þessu öllu saman því ekki má gleyma að staðreyndin er að þær eru frænkur mínar.
Á föstudaginn var fimleika sýning hjá Ásu Tásu og hún stóð sig alveg rosalega vel... ekki að sjá að hún hafi aðeins æft í 2 mánuði... Þarna voru líka Ragna Steinunn og Axel sem þýðir að ég tók að sjálfsögðu helling af myndum. Er samt ekki búin að setja þær inn á myndasíðuna en það hlýtur að gerast hvað á hverju...
Um hvöldið keppti Anna Regína svo í söngkeppni Þrykkjunnar. Ekkert lítið að gerast hjá skvísunni, leikari... döngvari... á tímabili var hún líka hönnuður... Hægileikarík er hún Wink Regína og Sunneva kepptu saman og stóðu sig alveg rosalega vel, ég var svo stolt frænka. Þær unnu ekki þetta árið enda skiptir aðal máli að vera með, þær taka þetta bara næst eða þarnæst.

Að öðru leiti fór helgin bara í prjónaskap og piparkökuskreytingar, alveg eins og þær eiga að vera svona rétt fyrir jólin. Reyndar skrapp í smá partý "upp í stú" sem er hið fræga Stúdjó í kjallaranum á gamla KASK. Ég var bara að átta mig á því núna að sennilega er þetta staðsett þar sem kaffistofan var þegar ég vann þarna um árið... heheh aðeins örðuvísi innréttað.

Nú fer ég að komast í jólafrí... og þá liggur leiðin suður. Planið er að borða góðan mat, hitta vinina, hitta famelíuna, vera í jólaskapi og síðast en ekki síst.... KLIFRA!!! jeijjjj loksins... Greyið Örn á ekki eftir að fá frið fyrir mér Cool

Jæja gott í bili
Sandra

Frostrósir- Jólakrans- LaufabrauðSandra Björg Stefánsdóttir

Nú eru jólin mætt í Hornafjörðinn, loksins loksins loksins kominn snjór Smile Reyndar er ekkert á kafi, enginn Hjaltadalssnjór en nóg til að lýsa upp skammdegið. Margir eru líka búnir að  setja upp jólaseríur og aðventuljós svo nú hlusta ég bara á létt-jóla-bylgjuna daginn út og inn og syng mig hása.
Síðasta mánudag bjó ég til minn fyrsta aðventukrans. Mamma lét mig fá hring og gertastjaka þegar ég var í bænum þannig að ég hafði enga afsökun fyrir því að gera ekki krans. Reyndar langaði mig mjög mikið til að fá grenilykt í litlu íbúðina mína þannig að ég lagði mig ekkert fram við að leita að afsökun. Ég er að sjálfsögðu búin að taka mynd af kransinum en hef því miður ekki haft tíma til að setja þær inn í tölvuna svo þið verðið bara að bíða spennt... Kransinn er mjög einfaldur og lítið skraut á honum... en nákvæmlega þannig vildi ég hafa hann þannig að ég er ánægð Smile

Í vinnunni stóðum við fyrir samkeppni um einkennismerki fyrir NEED verkefnið en það snýst um umhverfið og jarðfræði eins og ég hef sjálfsagt allt of oft sagt ykkur. Þátttakendur í könnuninni voru börn á aldrinum 11-15 ára og ég verð bara að viðurkenna að það kemur mér mjög svo á óvart hvað þessu litlu grey hafa mikla þekkingu á jarðfræði, myndirnar eru margar alveg hreint frábærar. Nú fer allur tíminn minn í vinnu í að skanna þær inn og senda út til alþjóðlegu dómnefndarinnar. Að sjálfsögðu gerum við ráð fyrir að ísland vinni þessa keppni.... ÍSLAND BEST Í HEIMI!!! Í vinnslu er heimasíðan www.need.is og enginn annar en aðal maðurinn er að hanna hana fyrir okkur, Heiðar Sigurðsson... Þó hún sé ekki alveg fullkláruð þá getið þið kíkt á hana og skoðað um hvað verkefnið fjallar, markhópa, samstarfsaðila og svona... þ.e.a.s. ef þið hafið áhuga á því Smile

Hvað haldiði að ég sé að fara að gera á morgun??? Ég er að fara á FROSTRÓSATÓNLEIKA!!! Ég hlakka svooo til, mig hefur alltaf langað, svo í fyrra bauð Þorbjörn okkur mömmu, Sollu og Sædísi á tónleika í Laugardalshöllinni. Þá hét ég því að ég myndi alltaf fara á tónleika ef ég mögulega gæti. Þær eru svo frábærar söngkonur og þetta er svo hátíðlegt...
Á laugardaginn er jólamarkaður í Nýheimum og jólahlaðborða á Hótel Höfn um kvöldið fyrir starfsmenn Nýheima. Á sunnudaginn fer ég svo með Fákaleiru-fjölskyldunni í laufabrauðs gerð.
Já jólin eru svo sannarlega að koma á Höfn í Hornafirði Smile

Bless í bili Sandra

Sumarbústaður í SkorradalSandra Björg Stefánsdóttir

Hæ hæ,
datt í hug að henda hér inn stuttri færslu af því að það er svo ógurlega langt síðan ég skrifaði síðast Cool
Um síðustu helgi dreif ég mig til stórborgarinnar á suð-vestur horni landsins. Þannig var að á Grand Hótel var haldin Ferðamálaþing og að sjálfsögðu fara allir þangað sem vettlingi geta valdið. Erindin voru svo sem óttarlegar lofræður þar sem fólk dáðist af sjálfum sér og sínum afrekum en það er held ég alltaf þannig á svona þingum. Enda snýst þetta í sjálfu sér ekki um að hlusta á fyrirlestra, þetta snýst um að hitta fólk sem ég svo sannarlega gerði. Mér fannst alveg ótrúlega gaman að hitta allt þetta Hólafólk, og ekki skemmdi fyrir að þetta var sennilega í fyrsta skipti sem ég fer á svona þing og þekki mun fleiri en bara Hólafólk. Hver segir svo að það borgi sig ekki að standa í því að halda ráðstefnum... Ætli það hafi nokkur verið svo vitlaus að halda því fram Wink
Þingið var sum sé haldið á fimmtudaginn en á föstudaginn hélt ég beina leið í bústað með mömmu og Þorbirni. Hann var í Skorradalnum og hefur verið annað heimili Þorbjörns í vetur þegar hann er úti á landi að vinna. Á föstudeginum mættum við mamma, Þorbjörn, Sædís og Ólöf og svo allur barnaskarinn. Þetta fór nú bara alveg ótrúlega vel fram allt saman. Á laugardagskvöldið komu svo Solla, Haffi, Sveinn og Þórdís. Við Sædís voru sérstaklega duglegar að ferðast á fjórhjólinu sem var nýtt fram í rauðan dauðann þessa helgina. Á föstudeginum fórum við bara stuttar ferðir enda orðið dimmt snemma en á laugardeginum... þá var sko tekið á því... Fórum í tvo laaaanga túra sem báðir tóku nokkra klukkutíma. Fyrst ætluðum við að fara hringinn í kring um vatnið þarna við bústaðinn en þegar við vorum konar leeeeengst hinumegin áttuðum viðokkur á því að við kæmust ekki alla leið og snérum við. Þess vegna var ekkert annað í stöðunni að leggja af stað hinn hringinn og sjá hversu langt við kæmumst, þ.e.a.s. eftir að hafa gætt okkur á nýbökuðum pönnukökum hjá mömmu. Þá hófst nú stuðið og þvílíkar torfærur sem við lentum í... úff hvað þetta var gaman Laughing
Því miður hugsa ég svo mikið um að taka hleðslutækið fyrir myndavélina með að ég gleymdi sjálfri myndavélinni...! Já ég veit... Aulaverðlaun dagsins í dag hlýtur... SANDRA! En hún Ólöf tók helling af myndum sem hún ætlaði að brenna á disk og deila með okkur.
Ég mætti svo til baka á Höfn í Hornafirði eldsnemma á mánudagsmorguninn með tvær ferðatöskur og einn kassa fullt af jólaskrauti Cool

Nú er jólastemningin sum sé mætt á Dalbrautina, eitthvað verður maður til bragðs að taka fyrst Bítla-showið er búið og engin almennileg dagskrá eftir vinnu. Ekki það, það er svo mikið að gera í vinnunni að ég gæti svo sem verið að allan sólarhringinn... en held ég væri fljót að brenna út ef það væri málið. Í kvöld fer ég svo á jólahlaðborð hjá Slysó sem ég er nota bene orðinn félagsmaður í (Slysavarnarfélagið) Á morgun er svo fyrsti fundur hjá Singles-klúbbnum Kidda. Þannig að kannski var ekki alveg rétt að segja að það væri engin dagskrá hjá mér.... Wink
Bless í bili krúttin mín og endilega kvittiði nú fyrir mig
Sandy

Uppsekruhátíð á SmyrlabjörgumSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég komin heim eftir frábæra helgi á Smyrlabjörgum. Tilefnið var uppskeruhátíð Skemmtifélagsins eins og ég hef svo oft minnst á undanfarið.
Við héldum galvösk af stað um kvöldmatarleitið á föstudeginum, í Pollanum vorum við þrjú, ég, Gulla og Júlli. Ragna og Heiðar fóru á sínum bíl, Nanna og Frikki ásamt hljóðkerfinu á einum trukki og svo Ingólfur á sínum. Saman skemmtum við okkur endalaust vel fram á morgun... já eða kannski ekki... ég fór nú snemma í rúmi svona til tilbreytingar... aldurinn farinn að segja til sín Wink Þetta var bara svo kósí... sofið langt fram eftir á laugardeginum, drusslast í morgunverð einhvetíman um hádegið og svo bara kjaftað og hlegið út í rauðan dauðan. Upprunalega planið var að fólk mætti í sveitina um kl. 14 og við færum út í leiki, en um kl. 15.30 varð okkur ljóst að það ætlaði enginn að mæta í leikina nema við þannig að við skelltum okkur út í frosthörkuna. Ég hef ekki hlegið svona mikið í ég veit ekki hvað langan tíma. Hann Frikki var með hugmynd af fótbolta leik þar sem við værum með einhver furðulegustu gleraugu í heiminum á hausnum. Þið verðið eiginlega bara að skoða myndirnar til að átta ykkur á þessu. Maður sá lítið sem ekkert sem varð til þess að oftar en einu sinni og tvisvar þá spörkuðu menn út í loftið og duttu um hvern annan og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum líka í eltingaleik þar sem menn voru bundnir saman á fótunum og svo í pylsa í potti sem er svona myndastyttuleikur. Það var mjög frískandi og skemmtilegt að fara svona út og ég er ekki frá því að ég hafi kynnst fólki örlítið betur við herlegheitin Cool

Nú þegar inn var komið fórum við stelpurnar að föndra kórónur sem afhendar voru um kvöldið. Sólveig skvísa varð 18 ára á laugardeginum og svo krýndum við Singing bee meistara hátíðarinnar.
Allt fór þetta vel fram. Við rákum fólkið í boðhlaup áður en við fórum að borða, bara svona afþví að þau héldu að þau gætu sloppið við að leika sér. En við vorum ekki búnar að funda stíft og burðast með allskonar dót landshorna á milli til þess að þau myndu sleppa.... nei ó nei.... ókí pínu ýkjur en ókey...
Júlli var svo búinn að útbúa myndband með klippum frá æfingatímabilinu... Ótrúlega fyndið og ég vona svo sannarlega að ég fái það á diski til að eiga... Fullt af einkahúmor og bröndurum sem eiga seinnielga eftir að gleymast ef maður ehfur ekki myndband sem þetta til að rifja allt upp.

Ég mæli með því að þið skoðið myndirnar og upplifið þessa svakalegu skemmtun með mér Smile

Takk fyrir mig Skemmtifélag 2008... þetta hefur verið alveg BRILLIANT tími..!!!!

knús Sandra

Aðalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Staður: Höfn Hornafirði
  • Atvinna: Verkefnastjóri við Háskólasetrið í Hornafirði

Innskráningar kubbur