Ný bloggsíđaSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja í tilefni þess að ég er komin í sveitina á nýjan leik ákvað ég að opna nýja síðu. Maður virðist ekki vera maður með mönnum nema maður sé hér hjá bloggar.is
Margt hefur nú á daga mína drifið síðan síðast, ég átti meira að segja afmæli og takk fyrir allar afmæliskveðjurnar
Svo dreif ég mig í helgarferð til Hóla og útskrifaðist, alltaf gama að útskrifast þó maður sé að fara að halda áfram í skólanum. Það var samt enn skemmtilegra að hitta skvísurnar aftur og ég er eiginlega ekki enn að ná því að þær verði ekki með mér í bekk áfram. Nú þarf ég að fara að vera með einhverjum strákum í bekk... ég var alveg sátt við þennan kvennabekk minn! En kannski verður þetta í lagi, sérstaklega þar sem við Pálína ákváðum að Toby (Rockstar) væri að fara að byrja í ferðamálafræðinni. Til að hafa það á hreinu þá Á ÉG HANN! Þó eru nú ekki allir sem finnst hinn fullkomni brimbrettagaur flottastur. Það heyrðist nefnilega á Höfn í Hornafirði að það næsta sem hann hefði komist að brimbretti var þegar hann fékk það í andlitið! Ég varð sármóðguð enda var verið að tala um tilvonandi manninn minn ![]()
Við mæðgurnar skelltum okkur á Footloose og ég bara verð að viðurkena það að þetta er hin frábærasta skemmtun, ekki það að ég hafi átt von á eihverju öðru. Ég fékk nett fyrir hjartað þegar bad boy Björn Ingi steig á sviðið og ekki minnkaði þegar Ísak dansaði af sér skóna! Það eina sem var ekki skemmtilegt var að það var geitungur í salnum sem tókst svo sannarlega að hræða úr mér líftóruna!
Nú er ég sem sagt komin norður í friðsældina á Hólum, ég fór samt í gær í nokkurskonar partý til Pöllunnar og Sakka en þar var verið að halda uppá afmæli, íbúðarkaup ásamt því að vera kveðjupartý fyrir Náttúruprinsinn. Þar voru nú heil miklar rökræður um uppeldi og vandamálabörn sem verður eki farið nánar út í hér. Enn er nú ekki mikið líf hér á hólum enda byrjar skólinn ekki fyrr en á mánudaginn.Get ekki beðið eftir hinu frægu Hólapartýum ![]()
Myndir frá útskriftinni eru hér
Myndir frá Höfn eru hér hér
Myndir frá brjáðalað dansinum þeirra Árna Þórodds og Camillu og fleira frá Menningarnótt er hér
Myndir frá gömlu vina partýinu eru hér
ciao í bili Sandra
