Grill spillSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er kominn enn einn sunnudagurinn. Í gær var haldið rosalegt grillpartý hjá ferðamálaliðinu, reyndar vorum við ekki mörg en fámennt og góðmennt. Við Villý og Stjáni byrjuðum á því að fara á Krókinn og versla og það var sko ekki keypt neitt slor. Rjómasósur og fetaostur á salatið og svo ís og rjóma súkkulaði heit sósa. Ef ég hefði ekki vtað betur þá hefði ég haldið að jólin væru komin
Eftir matinn hófust miklar umræður og ég kynntist algjörlega nýjum hliðum á fólki sem ég umgengst nokkuð mikið, alltaf lærir maður eitthvað nýtt
en svo var haldið niður á Krók til Pöllunnar. Vígalegt stuð á henni eins og alltaf. Pínu hrædd um að Villý og Stjáni hafi fengið menningarsjokk þegar þau hittu Pöllu, Gyðu og Sigrúnu í ham en ég veltist um af hlátri. Á Kaffi Krók var haldið eftir skamma stund og þar komst ég að því að mun fleira fólk les bloggið mitt en ég hafði gert mér grein fyrir, fólk sem ég hélt að kynni ekki baun á tölvur..... ég þarf víst aðeins að fara að ritskoða það sem ég skrifa
Áður en leið á löngu var dansinn hafinn og ég er með blá-marnar ristar sem geta vottað það. Þar sá ég svo hinn fræga Bigga löggu..... jiii dúdda mína, gaurinn er................ já við skulum segja að ég mun héðan í frá trúa öllu sem er sagt um þann mann. Áður en við vissum af var ballið búið og kominn tími til að koma sér heim. Þar sem ég hafði komið niðureftir á trillitækinu hans Stjána var mjög ákjósanlegt að ég keyrði heim annað trillitæki svo sá bílstjóri gætu hrunið í það. Við komumst samt klakklaust heim enda var þetta ekki í fyrsta sinn á ævinni sem ég keyrði stóran bíl.![]()
Hér eru nokkrar myndir frá gærkvöldinu.
ciao Sandra
p.s. 6 dagar í LAUFSKÁLARÉTT!!!!
sólstrandar gćji......Sandra Björg Stefánsdóttir
Það er greinilegt að til þess að fá fólk til að kommenta hjá mér þá þarf ég að tala um heimsins vandræðanlegustu kossaEn fyrir hádegi í dag var ég í tíma sem heitir rannsóknaraðferðir. Það sauð svo illilega á heilanum á mér að ég varð að leggja mig þegar ég leggja mig þegar ég kom heim. Og ég legg mig EKKI á dagin!!!! Þegar ég loksins drattaðist framúr nennti ég að sjálfsögðu ekki að læra og fann mér allt annað til dundurs
jæja best að troða eyrnatöppum í eyrun og lesa í náttúrutengdri ferðaþjónustu.... verð sofnuð eftir 3 og hálfa mínútu!
over and out Sandra
P.s. LAUFSKÁLARÉTT EFTIR VIKU...... nóg gólfpláss fyrir alla sem vilja koma í sveitina á djamm aldarinnar!!!!!!!
VandrćđalegtSandra Björg Stefánsdóttir
Hafiði lent í því að ætla að kyssa einhvern á kynnina en þá varð einhver misskilningur sem varð til þess að kossinn endaði á munninum? Ég lenti í því í dag. Maður reynir svo innilega að halda kúlinu en þegar maður er með ofvirkt blóðrásarkerfi eins og ég þá verður maður eins og rauð ljósapera í framan. Ég roðnaði meira að segja svo mikið að ég sá bara stjörnur og var hársbreydd frá því að falla í yfirlið.ciao í bili Sandra
huhuhuhhuhuuuuuuSandra Björg Stefánsdóttir
Þessi fallegi dagur....... eða ætti ég að segja Þessi fallegi maður eins og hún Sirrý vinkona mínÞAÐ ER KOMIÐ GAT Á RASSINN Á UPPÁHALDS GALLABUXUNUM MÍNUM!!!! Ég er fullkomlega miður mín!
kv. Sandra harmi slegin
helginSandra Björg Stefánsdóttir
Já góðan daginn.Nú er helgin liðin í aldanna skaut eins og einhver sagði. Eftir að hafa hámað í mig ís og fínerí hjá Stjána og Gumma á fyrsta ári kíkti ég í hestapartý, sem endaði að sjálfsögðu á Króknum
Þetta var nú helgin í hnotskurn,
bleee í bili Sandurinn
Halló hallóSandra Björg Stefánsdóttir
Hæ hó allir saman,já nú er bara komin önnur helgin hér á Hólum, það er nú meira hvað tímin líður hratt..... styttist óðum í jólin og þá þarf að kveðja alla aftur
Síðustu tvo dagana er ég búin að vera á fullu ásamt Rósu í mötuneitinu að færa nemendaaðstöðuna og búa líka til litla kaffiaðstöðu fyrir okkur inni á fatlaðaklósetti....! Þetta hefur verið notað sem geymsla í fjölda mörg ár svo saurgerlarnir ættu að hafa yfirgefið svæðið
En mál málanna í dag! ROCKSTAR SUPERNOVA ! Ég verð bara að segja það að ég er mjög sátt við að hann Lucas hafi unnið þetta. Hann var virkilega flottur og átti þetta bara skilið. Það var líka gott á monthænuna hana Dilönu að vinna ekki..... hún var aaaaaaaaaaaaaallt of góð með sig. Við Hólanemar sameinuðumst á Kaffi Krók sem opnaði salinn sérstaklega fyrir okkur. Voða kósí en sumir voru alls ekki sáttir við það að við Pálína héldum ekki með Magna. Auðvitað héldum við með Magna en eins og ég sagði um daginn þá er ekkert endilega jákvætt að missa hann í hljómsveit með einhverjum "has been's". Minn maður var samt flottastur og það var hann Toby. Orðið á götunni segir að hann sé að hefja nám í ferðamálafræði Hólaskóla! Örfáar myndir
Jæja nóg í bili
Sandra
p.s. allir að taka frá laugardaginn 30. september því þá er LAUFSKÁLARÉTT
Hólar eins og viđ ţekkjum ţáSandra Björg Stefánsdóttir
Nú er skólinn að hefjast fyrir alvöru... loksins mundi einhver segja. Reyndar fór gærdagurinn ekki svo vel af stað. Dagurinn allur var eiginlega ömurlegur. Ég (ásamt nokkrum samnemendum mínum) urðum svo endalaust pirruð á ákveðnum kennara að það lág við sprenguárásum. Einhvernveginn á óskiljanlegan hátt tókst mér í sumar að gleyma því hvað maðurinn væri pirrandi en það voru ekki liðnar nema kannski tíu mínútur þegar þetta kom allt til baka. Þetta er kannski ágætis grey.... en stundum vel pirrandi
Það var rétt um kvöldmatarleitið sem ég varð viðræðuhæf aftur, þá var boðið í kaffi í aðra kommúnuna á svæðinu en þar sem ég drekk ekki kaffi raðaði ég bara í mig kökum! Við þetta lagaðist sálarlífið aðeins.
Dagurinn endaði samt jafn skemmtilega og hann hófst ömurlega! Það er nefnilega þannig að hestarnir mínir eru komnir aftur! vúhúúúúúúúú!!!!!! Að sjálfsögðu var partý og þar sem ég hef ekki enn afsalað mér titlinum Ferðamálahesturinn þá tróð ég mér með í partý
Það var svo gaman að hitta þau öll aftur að ég fór næstum því að gráta. Ekki versnaði það í morgun því Binni og Auður fengu að gista hjá mér og ég fékk þess vegna þvílíkt nostagígjukast við að borða morgunmatinn með þeim.
Nú er ég komin á fullt í nemendafélags dót, tildæmis búin með tvo fundi í dag. Geri aðrir betur....... Veit ekki hvort Laufey kennari verði mjög ánægð þar sem það hefur ekki farið mikið fyrir heimalestrinum hjá mér
En nú í ár mun enginn komast upp með að vera með einhvern ferðamála vs hesta móral..... ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA! Við erum EINN skóli með EITT nemendafélag og við verðum bara að gjöra svo vel að haga okkur eins og þroskaðir einstaklingar! OG HANA NÚ!!!!
Jæja ætli ég verði ekki að læra smá fyrir morgundaginn
ciao Sandra
PćjuklúbburinnSandra Björg Stefánsdóttir
Í gær var Pæjuklúbbur Hóla formlega stofnaður. Við fórum út að borða á Kaffi Krók í tilefni þess og svo í Fellstúnið og horfðum á glötuðustu dansara Bandaríkjanna í So you think you can dance. Eftir það var mál til komið að sýna að við getum sko dansað og þess vegna héldum við á Ólafhús með dansskónna í poka. Meðlimir klúbbsins eru 3, Villý formaður, Pálína ritari og ég. Eða í raun erum við eiginlega 4 því allar alvöru pæjur hafa lífvörð. Stjáni Trölli er þessvegna hálfgerður meðlimur líkaÞað er alltaf gaman að djamma on the Hook, hittir alltaf einhvern skemmtilegan, núna hittum við Gísla Kýrholti og Jón Litlu-Gröf. (Jiiii hvað maður er að verða sveitó) En nett gaman samt! Svo sáum við hugsanlega dreng með ljótustu hárgreiðslu í heiminum... tók meira að segja mynd af því og svo er harðhentasti dansari landsins byrjaður í skólanum
Skólinn er allur að koma til, reyndar er maður að verða súr í höfðinu því það er heldur mikið rætt um sláturgerðir kennara. Og svo á maður að bera virðingu fyrir þessu liði..... EKKI SÉNS!!!!!
jæja nóg í bili
over and out
Sandra
myndir frá Pæjuklúbbnum hér
myndir frá Sigló hér
KynningardagurSandra Björg Stefánsdóttir
Eigum við að ræða Toby eitthvað eða? jjjjiiiiiiii dúdda mía hvað maðurinn er fullkominn. Þó það sé náttla skammarlegt að segja frá því en ég held svo ynnilega með honum. Magni hefur staðið sig frábærlega EN viljum við eitthvað endilega að hann vinni. Ég vil eiginlega helst að hann Lucas vinni því þá getur hann hangið með gömlu dúddunum en ég vil fá Magna og Toby á sóló NÚNA!!!!!!Skólinn gengur sinn vana gana, í gær voru fundir út í eitt. Jónas var nú aðal ræðuhaldarinn en ég sniglaðist eitthvað í kringum hann og þóttist vera voða gáfuð
Jæja best að læra eitthvað
ciao Sandra
SkólinnSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er skólin byrjaður, við Pálína byrjuðum að sjálfsögðu á því að fá hláturskast við að sjá ákveðna nemendur og kennara. Einkahúmorinn að drepa okkurÞað er nú samt svolítið sérstakt að vera í skólanum og sitja ekki við hliðina á Sjöfn í skólanum og fara ekki í stinger í hádeginu með hestunum og koma ekki heim og lesa skilaboð frá Auði á Búkollunni, horfa á sjánvarpið hér á kvöldin með Bjarna eða hinumegin með Styrmi. Þetta er allt svolítið spes...... en verður eflaust bara betra þegar á líður
höfum þetta stutt í þetta skiptið
over and out Sandra
