jáháSandra Björg Stefánsdóttir

Lina kom með svakalegar fréttir áðan! "Það er að koma eitthvða frá himnum!!! Það er hvítt og ógeðslegt!" Snilldin ein Glottandi Veturinn er sem sagt kominn í sveitina.....
Enn er alltaf jafn mikið að gera í skólanum en við Pallan ætlum að taka okkur pásu eftir prófið á morgun og skella okkur á Akureyri til að skipta aðeins um umhverfi. Hver veit nema maður geti eytt einhverjum peningum líka Svalur Núhh og svo er það Magni á föstudaginn... TVEIR DAGAR! Ég mæli eindregið með því ð fólk skelli sér í sveitina á þetta ball.
Jæja best að fara að læra fyrir prófið
adios amigos Sandra

Síđasta helgiSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er helgin búin og var henni eytt mestmegnis fyrir framan sjónvarpið. Nei reyndar er það ekki alveg satt, því ég lærði alveg heil lifandis ósköp. Kláraði tvær ritgerðir, setti 5 ára áætlun nemendafélgsins í formlegt form... (hehe skemmtilega orðað, finnst ykkur ekki) Svo fluttum við Stjáni og Heiðrún nemenda aðstöðuna á sinn stað einu sinni enn.... vona að fólk fari ekki að fá ógeð af þessum fluttningum okkar endalaust. Fyrir utan þetta ofantalda þá lá ég í sófanum og horfði á imbann, enda var snarvitlaust veður í gær. Ekta inni veður. Um klukkan 18 fannst mér nú nóg komið af inniveru og ákvað að fá mér göngutúr! Þetta var mögulega versta hugmynd sem ég hef fengið, það munaði minnstu að ég yrði úti! Samt komst ég ekki einu sinni upp í skóla! Halla Malla myndi einnhver segja Glottandi

Viljiði athuga það að nú er æskuástin mín formelga orðinn íþróttamaður Landsbankadeildarinnar!!!! Konan kann að velja sér draumaprinsa Svalur ATH

Í fyrrakvöld horfðum við Lina á Artúr Konung eða King Arthur og hún er nú alltaf jafn ágæt, sætir flottir breskir strákar (allavega töluðu flestir með breskum hreim) og svo auðvitað Keira fyrirmyndin mín! Nema hvað þegar myndinni lauk hófst mynd á RUV sem heitir the Fyrsti Riddarinn (First Knight) eða eitthvað svoleiðis (með Sean Connery og Richard Gere). Það vill svo skemmtilega til að þessi mynd fjallaði um sama efni eða Riddara Hringborðsins. Samt sem áður gætu þær ekki hafa verið ólíkari... Það var nákvæmlega ekkert í söguþræðinum sem gaf til kynna að verið væri að fjalla um sama hlutinn, nema kannski nöfnin því þau voru þau sömu. Hvernig var þessi saga eiginlega? Mig langar virkilega til að kynna mér þetta betur.... ef þið vitið eitthvað um þetta mál þá endilega deiliði því með mér!!!

Jæja nóg í bili
Bless bless Sandra 

p.s. er þetta nógu góð íslenska fyrir þig Árni minn? Ullandi

Helgin er kominSandra Björg Stefánsdóttir

Jahjarna hér! Þá er bara komið sumar í sveitina á nýjan leik. Engar ýkjur en ég var bara á stuttermabolnum úti áðan.
En helgin er komin... vúhúúúú! Fer í grillpartý á eftir... geggjað stuð! Svo á Hvíti Fákurinn í næstu íbúð afmæli í dag svo maður skellti í eina skúffuköku upp á grínið (borðaði reyndar helminginn af deiginu sjálf en samt þá er það hugurinn sem gildur ekki satt?)
Pallan er farin með familíunni í höfuðborgina svo ekki verður ruglað með henni.... en hún skemmtir sér vonandi í towninu!
Enn og aftur þeir sem vilja skella sér á Magna ball on the Hook eru velkomnir og fá gistingu í Geitagerði 11b eins og þeir vilja :)
kv.Sandra Pandra

muniđi eftir mér?Sandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég mætt aftur. Ég veit ekki hvort nokkur kíkir á þessa síðu lengur þar sem ár og öld eru síðan ég tjáði mig síðast. Málið er einfalt, það er búið að vera geðveikislega mikið að gera í skólanum og stressið eftir því. Í gær kláraðist heilmikið þegar ég flutti tvo fyrirlestra, spennufallið  eftir það var raunar svo mikið að ég lá bara dæmd þegar ég kom heim úr skólanum. Nú eru einhverjar heilmiklar breytingar í gangi í tölvukerfinu sem krefst þess að maður er sífellt á skrá inn einhver lykilorð. Þetta á víst að gera kerfið öruggara o.s.frv. og ég hef enga ástæðu til að gruna Brodda um að vera að ljúga því.
Raunin er að ég er enn hálf andlaus eftir verkefnaskilin í gær og er því hálf ófær um að tjá mig.... vona að þið fyrirgefið það. Svalur 
Eitt get ég þó tjáð mig um! MAGNA BALL á Króknum 20. október! Þar verður sko tekið á því með rokkstjörnunni svakalega og sem fyrr eru ALLIR velknmir í Geitagerði 11b og djamma með mér og öllum hinum Brosandi Þið sem hafið djammað á Króknum vitið að það er svona um það bil þúsund sinnum skemmtilegra að djamma hér en í bænum. Hér þarf engar rannsóknir eða rökfærslur... þetta er bara staðreynd!
over and out
Sandra

ALLIR AĐ TAKA ŢÁTT :)Sandra Björg Stefánsdóttir

Þá er einum áfanga í lærdómnum lokið, þ.e.a.s. rannsóknar prófið. Held að það hafi gengið alveg ágætlega, allavega vona ég það. Þá er að snúa sér að öllum þessum ritgerðum, halla malla.
Ég var reyndar að fá frekar vondar fréttir, Friðgeir datt af baki í morgunn og bíllinn með bláu ljósin kom og sótti hann og alles, vona að þetta hafi ekki verið mjög alvarlegt því ekki viljum við að partýljónið hætti í skólanum. Nei ó nei. Aðrar leiðinlegar fréttir eru þær að hann Guðbrandur gamli frændi er orðinn eitthvað slappur, hann er kominn í bæinn á spítala og það er verið að rannsaka hann. Honum finnst þetta nú að sjálfsögðu vera tímeyðsla að vera að lappa eitthvað uppá sig en mjög fáir eru sammála honum um það. Vonandi er þetta nú bara eitthvað smávægilegt.

En maður er víst ekki maður með mönnum nema tekið sé þátt í spruningaleik sem gengur eins og eldur í synu um blogg síður landans, endilega svariði nú elskurnar mínar, það er svo gaman að sjá hverjir lesa bloggið Svalur

1. Hvað kallarðu mig?
2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig?
19. Hvaða búðir elska ég að fara í?

yogaSandra Björg Stefánsdóttir

Ég mæli eindregið með jóga. Í kvöld gerðum við fullt af æfingum sem tengdust skjaldkirtlinum, m.a. til að styrkja hann og koma jafnvægi á hann. Hugsiði ykkur ef ég hefði lært þetta fyrir 5 árum, þá hefði líf mitt kannski orðið allt öðruvísi. Kannski hefði ég sloppið við allt þetta vesen og öll þessi óþægindi, og það sem meira er þá hefðuð þið kannski sloppið við sveiflurnar í mér! Þá hefði væri ég kannski altalandi á frönsku eftir veru mína í Genf, ég hefði kannski farið og unnið á Hawaii og hjálpað munaðarlausum börnum í Suður-Afríku. En sennilega var mér ekki ætlað að gera allt þetta, sennilega átti ég að koma á Hóla og læra það sem ég er að læra og kynnast öllu þessu frábæra fólki.
Þið verðið að fyrirgefa væmnina, það er bara svo yndislegt í jóga.
Sandra

LaufskálaréttSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er Laufskálaréttarhelgin ógurlega liðin. Á föstudagskvöldinu var farið á sýninguna í Reiðhöllinni þar sem flugurnar fóru á kostum í bleiku nærbuxunum sínum Svalur Nú svo var að sjálfsögðu haldið á Ólafshús og djammað með honum Zorin. Agalegt stuð, sérstaklega þegar Ragginn mætti á svæðið. Reyndar var tekið nett geðveikiskast í lok kvöldsins, vona að þeir sem áttu ekki skilið að lenda í því erfi það ekki við mig. Óákveðinn 
Laugardeginum var svo eytt í sjoppunni í réttinni, missti þannig séð af réttunum og gamaninu en það var ágætt að græða pening... alltaf gaman af því þó svo að ég efist stórlega um að ég (ásamt stjórn nemendafélagsins) vinni fleiri svona sjálfboðaverk fyrir alla hina nemendurna. Um kvöldið logaði allt í partýum í Geitagerðinu. Partý í hverri íbúð og svo var bara gengið á milli húsa. Um kl 23.00 var kominn tími til að drattast niður á Krók og voru fengnar þrjú stykki rútur í að ferja mannskapinn. Geiri og Von voru alveg að meika það í Höllinni. Tók minn tíma í að komast í gírinn, mældi út hverjir voru líklegir til þess að vilja dansa, skammaði og dissaði þá sem voguðu sér að dansa (já eða eitthvað meira) við einhverjar aðrar en moi...! Fann svo að lokum Puma-kisuna mína og saman dönsuðum við fram í rauðan dauðann!!!
Pallan gisti svo á Hólum eftir að hafa farið í bilað eggjahrærupartý hjá hesta Steina Glottandi 
Í morgun kíkti ég svo til ömmu og afa á Krókinn og þar hittir maður nú ótrúlegasta fólk á ótrúlegustu tímum. Nett vandræðalegt móment þegar ég gekk inn í  húsið...... Ullandi
en jæja hér eru nokkrar myndir frá helginni
Sandra

já jáSandra Björg Stefánsdóttir

Hvaða nemandi vill heyra að kennarinn haldi að hann ráði ekki við efnið? Ekki ég, það er nokkuð ljóst! Þá er ekkert annað í stöðunni en að leggjast í smá þunglindi og sjálfsvorkun. Rífa sig svo upp á afturendanum og bettla í öööööllum vinum sínu um aðstoð, skila svo heimsins bestu ritgerð og segja IN YOUR FACE við kennarann! Þetta er allavega mitt plan Svalur
Á morgun verður lært og lært og lært og lært en annaðkvöld verður farið á Krókinn í reiðhöllina og skemmt sér. Á laugardaginn verður selt nammi og pylsur og samlokur og kaffi í gríð og erg í réttinni..! Þið meigið gjarnan hjálpa mér Glottandi Nú svo verður skundað til Heiðrúnar skís í afmælis-fyrirpartý áður en skriðið verður upp í rútu á ball aldarinnar í reiðhöllinni á Króknum!!!!
GAMAN GAMAN
Sandra

Dagurin í dagSandra Björg Stefánsdóttir

Brjálaður dagur í dag. Byrjaði daginn á að ganga í bekki skólans og minna á nemendafélagsfundinn í kvöld, sem ég er n.b. með nettann fiðring fyrir. Fékk að vita að sumir væru að fara í læknisskoðun og kæmust ekki, full miklar upplýsingar en ókey Svalur  Nú eftir það lá leiðin í dæmatíma í rannsóknaraðferðum. Mér hefur sjaldan gengið eins illa síðan ég byrjaði í náminu hér á Hólum. Kannski var þetta sjálfri mér að kenna því ég hef solítið látið þetta fag sitja á hakanum en samt. Þetta verður hreinn og klár páfagaukalærdómur. Halla malla.

Góðu fréttir dagsins eru samt þær að bæði Viktor og Ingvar voru valdir í lið ársins í Landsbankadeildinni hjá Fréttablaðinu. Hugsiði ykkur æskuástin mín og Kale bara orðnir frægir Glottandi Maður fyllist bara stolti...!

Ef einhver á íslenska þýðingu á bókinni Investigating the social world þá vinsamlegast hafið samband  Ullandi

Sandra

yogaSandra Björg Stefánsdóttir

Í kvöld prófaði ég yoga í fyrsta sinn á ævinni. Þetta var alveg mögnuð lífsreynsla. Í heilan klukkutíma tókst mér að gleyma því að sennilega mun ég láta lífið á næstu vikum af stressi. Það er álag að vera í skóla SvalurEn eftir þessa reynslu get ég svo sannarlega mælt með yoga n.t.t. kundalini yoga.
Sandurinn

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur