desember - janúarSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja góðir hálsar, nú eru liðnir nokkrir sólarhringir frá því að ég skrifaði síðast og eru margar ástæður fyrir því. Hins vegar ætla ég ekkert að hrella ykkur með því að fara út í þá sálma heldur frekar segja ykkur frá því sem á daga mína hefur drifið.

Eins og flestir aðrir Íslendingar hélt ég jólin hátíðleg í lok desember. Ég skelli mér suður á bóginn og dvaldi í góðu yfirlæti á hótel mömmu, bæði yfir jól og áramót. Fljótlega eftir hátíðirnar snéri ég aftur hingað austur því vinnan bíður víst ekki baun.

Það má kannski orða það þannig að það sé brjálað að gera hjá Sandy því síðustu vikuna haf ég bara ekki verið eitt kvöld heima hjá mér og það sem verra er þá hef ég ekki heldur verið á Leirunni. Ég hef komið mér í hinar ýmsu nefndir og verkefni og er þar að auki orðinn meðlimur í Kvennakór Hornafjarðar sem hann Heiðar stýrir af sinni alkunnu snilld.

Nú er að hefjast verkefni hér á Höfn sem snýst um að fá ungt fólk til að taka meira þátt í því sem er að gerast í samfélaginu og fá það til að átta sig á því að einstaklingarnir sjálfir geta vel haft áhrif á það sem er að gerast og mun gerast í framtíðinni. Reyndar er verkefnið mjög óformað ennþá en við erum búin að hittast 3-4 sinnum og láta hugann fljúga. Ég sit svo í nefnd ásamt nokkrum yfirgengilegum snillingum sem er að skipuleggja Blúshátíð. Það gengur náttúrulega eins og í sögu! Bið ykkur öll vinsamlegast um að taka frá FYRSTU HELGINA Í MARS (4. - 7. mars) því þá mun hátíðin eiga sér stað.

Þá hef ég skráð mig í fjallafélag Hornafjarðar, sem er reyndar nýtt félag, n.t.t. stofnfundur í kvöld. Þar með kemst ég vonandi á fullt í fjallamennskuna sem mig hefur nú lengi dreymt um. Fyrsti liðurinn í því er fjallamennska I og II sem eru námskeið á vegum Landsbjargar. Fyrra námskeiðið er eftir rúma viku og það seinna eftir um 3 vikur. Ég hlakka mikið til.

Framundan er svo ráðstefna á Írlandi á vegum NEED en það er fjórða og síðasta ráðstefnan. Mig hefur alltaf langað til Írlands þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig stemmarinn er á þessu heimili.

Annars er það aðallega að frétta héðan af Dalbrautinni að hann Þorbjörn er fluttur til mín. Reyndar tímabundið enda ætla ég að vona að mamma taki við honum aftur þegar dvöl hans hér lýkur. Þannig er mál með vexti að hann var fenginn hingað austur í smá verkefni hjá Foss, hér mun hann því verða amk. fram að mánaðarmótum. Nú get ég því loksins farið að taka til hendinni í eldhúsinu en eins og ég hef marg oft sagt þá nenni ég alls ekki að standa í því að elda fyrir mig eina (en vil ég meina að það sé eina og skársta ástæðan fyrir því að ég hef gert mig fullkomlega heimakomna á Fákaleiru 8c... fyrir utan þá staðreynd að heimilisfólkið þar er svo frábærlega yndislegt).

Jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili... kíkiði svo endilega á myndasíðuna mína, ég er mun duglegri að setja inn myndir en að blogga.
Ciao í bili
Sandra

Hć hó hóSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er nú orðið dálítið langt síðan ég skrifaði síðast. Margt hefur gerst eins og gefur að skilja.

Partý hjá Svöfu

Síðasta sýning skemmtifélagsins breyttist í eitt heljarins teiti heima hjá Svöfu Mjöll þar sem við skemmtum okkur konunglega að sjálfsögðu. Helgina eftir það héldum við öll saman á Smyrlabjörg þar sem þessu frábæra tímabili var "slúttað". Flestir gistu tvær nætur. Fyrra kvöldið var engin skipulögð dagskrá bara gaman saman eins og okur einum er lagið. Á laugardeginum voru Anna Kristín, Emil og Júlli búin að skipuleggja leiki, t.d. fórum við nokkur í yfirgegnilega stóra súmó glímu búninga og slógumst úti á túni... Ótrúlega gaman og mikið stuð eins og sjá má á myndunum.

Leikir

Súmó

Nú svo fór ég líka til Reykjavíkur þar sem við Þorri kynntum NEED verkefnið okkar á alþjóðlegri NPP ráðstefnu. Það vildi svo skemmtilega til að hún Pálína mega beib var akkúrat í heimsókn á Íslandi á þessum tíma og þess vegna hittumst við nokkrir Hólanemendur heima hjá Gunna og Önnu Möggu.

NEED á ráðstefnu

Ég er alveg að komast í rosa gott jólaskap. Er búin að setja upp seríur í glugga fyrir löngu auðvitað, nú svo gerði ég aðventukrans á mánudaginn og bakaði eina smákökusort Smile

Jæja gott í bili
Sandra

Sýning nr.4Sandra Björg Stefánsdóttir

Skemmtilegt hjá skemmtifélaginu

Þá er fjórðu og næst síðustu sýningu Popp og Kók lokið. Reyndar var sýning á laugardaginn tæknilega séð númer 6 hjá okkur þar sem það voru skólasýningar á fimmtudag og föstudag. Fyrst Heppuskóli og svo FAS. Litlu ormarnir í Heppuskóla (sem eru reyndar alls ekkert lítil mörg hver) voru í svo geðveikislegu stuði að ég á bara ekki orð. Við vorum búin að undirbúa okkur undir alveg steindauða sýningu en krakkarnir sungu svoleiðis með og stóðu uppi á stólum og ég veit ekki hvað og hvað. Þannig að þegar kom á sýningunni á laugardaginn vorum við vel æfð á nýjan leika og höfðu sumir á orði að þetta hefði sennilega verið besta sýningin okkar svona tónlistarlega séð.
Reyndar gerðist svolítið á sýningunni sem enginn gat séð fyrir um. Þannig er mál með vexti að ég syng lag númer tvö í sýningunni, þegar ég kom inn á sviðið sé ég að hann Aron (annar gítarleikarinn) var hvergi sjáanlegur og því var ekki hægt að byrja lagið. Strákgreyið hafði þá slitið streng... Ég stóð því uppi á sviði eins og illa gerður hlutur og reyndi að segja eitthvað við fólkið eins og "Eru ekki allir í stuði?" og "Vesen á þessum gítarleikurum alltaf hreint" Eða ég held það allavega... ég man þetta ekki alveg. En það góða við þetta var að vegna þess að þetta kom fyrir þá fann ég ekki fyrir stressi í laginu sem ég er annars alltaf hálf taugaveikluð yfir því mér finnst það eitthvað erfitt. Fyrst ég lifði þessar sekúntur af þá er nokkuð ljóst að ég lifi allt af á þessu sviði...!
Þetta var bara frábær sýning og hún var meira að segja tekin upp. Hann Þorri var með kameruna á lofti allan tímann og gerði góða hluti. Nú er bara að bíða og sjá hvort við erum virkilega eins frábær og við höldum að við séum... hehe
Eftir sýninguna fórum við þó nokkur heim til Helgu Rúnar ásamt nokkrum Jöklafræðingum sem voru hér í bænum á ráðstefnu... Helgu munar ekki um að smala saman góðum hópi í teiti.. Nú svo var að sjálfsögðu haldið upp á hótel og dansað af sér skóna. Eftir það allt saman héldum við heim til Maríönnu og enn var haldið áfram. Sko ókey ég veit að þetta lítur illa út eeennnn.... þetta er bara smá törn sem endar um næstu helgi. Þá verður ekki aftur svona rosa djamm fyrr en hugsanlega að ári þegar næsta sýningartímabil hefst. Ég trúi eiginlega ekki að þetta sé að verða búið, mér finnst við nýbúin að vera í meðferð hjá Heru.

Annars er bara lítið að frétta, er núna að undirbúa ráðstefnu fyrir NEED, eða öllu heldur NPP sem haldin verður í Reykjavíkinni í næstu viku. Við Þorri verðum þar með bros á vör og kynnum verkefnið okkar í bak og fyrir. Vonandi get ég líka hitt hana Pálínu ofur pæju en hún var að tjá mér að hún hafi ákveðið í morgun að fara til Íslands á morgun... hún er svo hljót að hugsa og framkvæma þessi elska... heheh

Jæja gott í bili
Sandy kveður

3ja sýning Popp og KókSandra Björg Stefánsdóttir

Mynd frá Sollu skvís


Jæja þá er sýningu þrjú lokið hjá Skemmtifélaginu en það þýðir að við erum rúmlega hálfnuð. Nú eru tvær laugardagssýningar eftir og tvær skólasýningar eftir. Svo er það slútt á Smyrla strax þar á eftir eða um miðjan nóvember. Næsta vika verður góð þar sem það verður sýning fimmtudag, föstudag og svo auðvitað laugardag.

Ég er búin að átta mig á því að áhorfendur skipta bara öllu máli þegar kemur að svona skemmtunum. Nú eru eins og áður sagði búnar þrjár sýningar af Popp og Kók, á frumsýningunni var ég ekkert sérstaklega ánægð með mína frammistöðu því ég fylltist af einhverju óútskýranlegu stressi sem gerði það að verkum að ég gat eiginlega ekki sungið. Þar af leiðandi fannst mér sýningin ekkert sérstök þó svo að auðvitað hafi verið geggjað stuð eins og alltaf. Sýning tvö var svo vægast sagt sérstök, áhorfendur voru slakir og sennilega bara að njóta þess að horfa og hlusta á okkur. Það var svo gott sem enginn sem stóð upp eða söng með. Þannig að sú sýning var allt öðruvísi en maður á að venjast. Svo kom að sýningunni í gær. Allir voru á nálum því nú er svínaflensan í hámarki og mikið um veikindi en það var bara einn aðili sem var veikur í gær og það var hann Eymundur trommari. Undir venjulegum kringumstæðum væri það alveg ótrúlega slæmt að missa trommarann en þar sem við erum í Mekka tónlistarinnar á Höfn Hornafirði þá gátum við kippt inn nýjum trommara með litlum fyrirvara sem skilaði sínu 100% og eiginlega miklu meira en það. Hann Biggi Reynis í Parket kom sá og sigraði þetta kvöldið.
En aftur að áhorfendunum, þau voru í svo miklu stuði að það er engu lagi líkt... Gugga og Steini (sem ég leigi hjá) sátu fremst og þau voru svo eeeeeeendalaust hress og brostu hringinn og sungu með aaaaallan tíman. Þar af leiðandi fannst manni vera besti söngvari í heimi og þorði að sleppa sér fullkomlega. Mér skilst að ég sé svo óendanlega meðvirk í þessum efnum svo eflaust hefur það spilað vel inn í. Reyndar var salurinn fullur af svona hressu fólki, Ragna, Inga og Halldór, Sigga og Steini og Bára voru þarna með klapplið fyrir okkur Heiðar. Ballið á eftir var svo að sjálfsögðu eitt það besta í sögunni og ég er svo fegin að ég hafði dregið fram pollíönu skónna mína því annars hefði ég ekki getað staðið í fæturna. Elsku besta Ragna mín sagði mér í gær að ég ætti að vera ég sjálf því það væri stelpan sem allir elskuðu og ekki að breyta mér fyrir einhverja aðra. Þess vegna er ég ánægð með að hafa verið ég sjálf og í mínum skóm en ekki killer hælum og svaka skvísa því ég er bara ekki þannig. Ragna var reyndar kannski ekki akkúrat að tala um skófatnað í þessu samhengi en samt...

Hvað vinnuna varðar þá vorum við á Háskólasetrinu í samvinnu við Ríki Vatnajökuls með málþing um sjálfbæra ferðaþjónustu - umhverfis og skipulagsmál í síðustu viku. Það gekk mjög vel, fengum marga frábæra fyrirlesara úr öllum áttum og héldum svo vinnuhópa þar sem niðurstöður verða nýttar við gerð Sjálfbærni stefnu Ríkisins. Við vorum á heildina séð mjög ánægð með málþingið. Einn af fyrirlesurunum var Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins. Hann hafði meldað sig á ráðstefnu hjá okkur í fyrra en afboðaði sig á síðustu stundu því það var um það leiti sem hann datt inn í pólitíkina. Nú kom hann austur sem skipulagshagfræðingur og það sem fyrirlesturinn hans var góður. Síðasta árið hef ég oft pirrað mig á honum sem stjórnmálamanni, finnst hann ekkert sérstaklega skemmtilegur sem slíkur, en þarna á miðvikudagsmorguninn féll ég alveg fyrir honum aftur. Hann á bara að vera í þessu, fyrirlesturinn hans var áhugaverður, vel skipulagður, á mannamáli og skildi mann eftir með fuuuuullt af spurningum um efnið. Gæti séð hann fyrir mér sem kennara í háskóla einhversstaðar og ég er viss um að hann yrði allra vinsælasti kennarinn í þeim skóla.

Jæja ætli þetta sé ekki að verða gott í bili...
Minni á myndir á myndasíðunni og svo að sjálsögðu væri vel þegið ef þið mynduð kvitta..!

Bless kex ekkert stress...

Sandy kveður...

Frumsýning og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég að spá í að blogga smá í tilefni að því að nú er aðeins farið að róast um á þessu heimili.
Síðustu vikur hafa verið alveg geðveikislegar, brjálað að gera bæði í vinnu og utan vinnu... fullt af skemmtilegu fólki og lítill svefn...! Þannig á þetta að vera Smile
Í fyrsta lagi var tólf manna hópur að fara á vegum NEED verkefnisins til Noregs á ráðstefnu, þetta var samskonar ráðstefna og ég fór á úti í Finnlandi í vor. Alveg viss um að þau skemmtu sér konunglega. Eins og gefur að skilja fór ég ekki með í þetta skiptið en engu að síður hélt ég utan um alla skipulagninguna eins og áður.

Æfing Popp og kók


Aðal málið síðustu vikurnar hefur nú samt sem áður verið annað en vinnan. Jú mikið rétt.... POPP OG KÓK.... Skemmtifélagið frumsýndi showið síðasta föstudag. Það hafa verið æfingar öll kvöld og allar helgar undanfarnar vikur og eins og í fyrra hefur þetta verið óendanlega skemmtilegt. Þetta árið voru margir nýjir sem tóku þátt og líka einhverjir gamlir sem voru samt ekki með í fyrra. Þannig að enn og aftur kynntist ég helling að nýju fólki og finnst það ekki leiðinlegt.
Solla sys saumaði á mig búning... rosa flottur... tók reyndar nokkra klukkutíma í að mana sjálfa mig upp í að mæta í honum á æfingu en það hafðist á endanum Cool Ég fékk nokkrum sinnum að heyra það á æfingum að ég yrði að vera meira sexy og daðra við áhorfndur fyrir allan peninginn... það tók smá tíma að ná því en þegar Solla sendi mér svipu til að leika mér þá fór þetta allt að smella... heheh... þið getið þá rétt svo ímyndað ykkur hvernig mér leið á generalprufunni þegar áhorfendur voru allt saman 4-6 ára börn í bænum...!!! Þetta var svo vandræðlegt og pínlegt að ég held að ég hafi aldrei skammast mín eins mikið Wink

Æfing popp og kók


Frumsýninginn gekk samt ágætlega, fyrir utan aðeins of mikið stress í fyrra laginu... seinna lagið gekk alveg ágætlega og svo ég tali nú ekki um djammið sem fylgdi frumsýningunni...
Eitthvað er hálsinn á mér samt búinn að gera uppreisn því ég hef ekki komið upp orði síðan á laugardagsmorgni. Í dag hef ég þess vegna reynt að segja ekki orð (auðvitað ekki tekist nógu vel) og vona að þetta verði allt komið á morgun. Einhver sagði að ég væri kannski komin með svínaflensuna ógurlega en ég held ekki, hef ekki tíma í þannig núna Smile

Frumsýningarpartý


Solla skvís kom og var hjá mér í viku, hún fór heim í morgun með Nönnu og Frikka. Því miður var ég ekki eins mikið með henni og ég hefði viljað vegna æfinga en það er bara svona. Mamma og Þorbjörn komu svo á fimmtudaginn og voru um helgina. Mættu að sjálfsögðu á frumsýningu hjá stelpunni sinni Smile
Framundan eru svo fjórar sýningar næstu fjóra laugardaga, skipulagning 2ja daga ráðstefnu á Höfn eftir rúma viku, landsfundur í NEED ofl...
Kreisí að gera hjá Sandy í Firðinum Fagra.
Endilega kommentið þið og kíkiði á myndasíðuna mína.

Ætli þetta sé ekki gott í bili
yassou
Sandy

SunnudagurSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er kominn sunnudagur...
Þessa dagana er mikið að gera í vinnunni sem er að sjálfsögðu mjög skemmtilegt. Næstu tvo dagana er ráðstefna á vegum NPP hér á Höfn. Við á Háskólasetrinu erum að sjálfssögðu þátttakendur í henni þar sem að NEED verkefnið "mitt" (litla barnið mitt sem mér finnst ég eigi ein... þó það það sé að sjálfsögðu alls ekki þannig) er að lang mestum hluta styrkt af NPP (Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins). Við munum koma til með að kynna verkefnið í bak og fyrir, enda hef ég setið sveitt alla síðustu viku að hanna bækling og plaggat fyrir verkefnið... Vissuð þið ekki örugglega að ég er graffískur hönnuður? Nei ekki ég heldur Wink

Um síðstu helgi kom hún Hera Björk hingað til Hafnar og leiðbeindi okkur í Skemmtifélaginu með sönginn... Rosalega skemmti ég mér vel. Hún er svo frábær einstaklingur og hæfileikarík. Eg hefði aldrei getað trúað því hversu mikið við breyttumst öll við meðferðina hjá henni. Eftir sönginn á laugardeginum fórum við svo öll inn í Hoffell og kíktum og jökulinn og fórum svo í pottinn í alveg frábæru veðri.

 

Stuðfólkið í útipásu


Nú eru æfingarnar hjá Skemtifélgainu á fullu, allir eru búnir að fá úthlutað lögum og hlutverkum. Í dag var sviðið sett upp (eða lagað eftir ballið sem haldið var á hótelínu í gær) og hljóðkerfinu komið fyrir. Nú verður það bara harkan sex og GEGGJAÐ stuð næstu vikurnar Cool

Nóg í bili
Sandy kveður

Popp og kók - Hornfirska Skemmtifélagiđ 2009Sandra Björg Stefánsdóttir

Komið þið sæl öll sömul...
Fyrir rúmri viku átti ég sjálf afmæli, þetta var ekkert stórafmæli því ég varð 26 ára þetta árið. Nú er ég bara hætt að vera "túttúguogfimm" ára! Ég verð að viðurkenna að í fyrsta sinn ævinni fannst mér ég verða gömul. Það er ekki vegna þess að ég  sjálf hafi breyst eitthvað heldur vegna þess að ég fékk oftar en einu sinni spurninguna "Má spyrja hvað þú ert gömul?" Er það ekki klárt merki um það að ég er ekki unglamb lengur? Ég bara spyr? Wink 
Í tilefni dagsins fórum við nokkrar singles saman út að borða á Hótelið og gæddum okkur á humarpizzu, eða nei það er víst ekki rétt hjá mér... við fengum okkur hvítlauksolíu með smá pizzu, enda var kveikt á ilmkertum út um allt á Dalbrautinni þegar heim var komið svo að þeir sem á eftir komu féllu hreinlega ekki í yfirlið! Ég fékk margar fallegar og fyndnar afmælisgjafir en það sem skemmtilegra er að ég fékk enn fleiri knús og kossa. Það er yndislegt að eiga afmæli Smile

Ég sjálf klædd í nokkrar afmælisgjafir

Á miðvikudaginn héldum við Sigrún Inga á Mývatn þar sem við fórum á ráðstefnu um jarðfræði ferðaþjónustu eða Geo tourism. Klukkutíma áður en við lögðum í hann frétti hún Gulla af förinni og ákvað að slást í hópinn. Þetta var því sannkölluð skvísuferð. Villý villispæta var ein af skipuleggjendum ráðstefnunnar og tók höfðinglega á móti okkur. Hugsanlega var þetta með áhugaverðustu og skemmtilegustu ráðstefnum sem ég hef verið þátttakandi í hér á landi. Erindin voru flest öll mjög góð og farið var í skemmtilegar vettvangsferðir inn á milli þannig að heilinn varð ekki alveg súr á fyrsta degi. Það skemmdi ekki fyrir að bílstjóri í ferðunum var stórvinur minn hann Andri hjá Fjallasýn en hann var einmitt bílstjórinn okkar á NEED ráðstefnunni fyrir ári síðan. Það var alveg saman hvað ég bað um og hversu ómögulegt það var, alltaf sagði hann "já ekkert mál" og brosti svo sínu blíðasta. Þvílíkur munur að hafa þess konar bílstjóra... því nóg var nú vesenið Wink Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar hét David Newsom kom frá Ástralíu og er einn af frumkvöðlum í þessum bransa, þ.e.a.s. geo tourism. Það eru algjör forréttindi að vera í vinnu sem gerir manni kleift að fara á svona ráðstefnur.

Við Sigrún Inga



Föstudagurinn var í raun algjör maraþon dagur, við vorum mætt upp í rútu kl.8 og héldum af stað í vettvangsferð. Dettifoss - Hljóðaklettar - Ásbyrgi og loks Skúlagarður í Kelduhverfi þar sem við hlustuðum á nokkra fyrirlestra í viðbót. Um klukkar 15.30 fengum við svo far aftur á Mývatn og héldum þaðan beina leið heim á Höfn. Við vorum komnar heim um kl.21.30 og á sama tíma og ég opnaði dyrnar á Dalbrautinni renndu mamma og Þorbjörn í hlað. Þau voru mætt í sveitina til að fara í afmæli hjá Gunnu vinkonu mömmu á laugardeginum. En kl.22 á föstudagskvöldinu vorum við mætt á Leiruna í hið árlega Garðpartý og skemmtum okkur aauðvitað fram undir morgun. Frissi veislustjóri fór að sjálfsögðu á kostum og þetta var bara æðislegt kvöld í alla staði eins og dagurinn allur. Þó verð ég að viðurkenna að ég var frekar mikið uppgefin á laugardeginum og vísa þá í upphaf þessarar færslu þar sem ég tala um aldurinn minn Cool


Frissi veislustjóri fór á kostum

Nú eru æfingar hjá Hornfirska Skemmtifélaginu komnar á fullt, eða um það bil að fara á fullt. Í gær fór ég og tók nokkur lög með hljómsveitinni og svo á morgun verður ákveðið hver tekur hvað. Ég fæ strax fiðring í magann af því að hugsa um næstu vikur og mánuði. Þetta verður svo skemmtilegt tímabil. Þó verð ég að viðurkenna að ég sakna pínulítið vina minna sem ég var hvað mest með í fyrra en þau ákváðu að vera ekki með þetta árið... Þau koma verða alveg örugglega flottust á fremsta bekk á amk einni sýningu í október Smile 
Sýningin þetta árið heitir Popp og Kók og ég ætla ekki að segja ykkur meira frá henni nema að frumsýningin er 9. október... allir að tryggja sér miða!!!
Um næstu helgi kemur svo Hera Björk aftur með námskeið fyrir okkur söngfuglana og þá verður gaulað eins og mest við meigum.

Popp og kók



Jæja gott í bili...
Endilega kvittiði nú hjá mér...
Pís át mæ frends...
Sandy

p.s. að sjálfsögðu er hellingur af myndum inni á myndasíðunni minni nú sem endra nær

Hć hó hć hóSandra Björg Stefánsdóttir

Komið þið sæl öll sömul Smile
Fyrir um hálfum mánuði síðan komu Solla sys og amma hingað til mín og voru hjá mér í nokkra daga. Það var voðalega notalegt að fá þær hingað til mín og við brölluðum margt skemmtilegt, fórum meðal annars út á Horn og inn að Hoffelsjökli. Amma rifjaði upp að samkvæmt einhverjum eignarsamningum frá því í Miðsitju þá áttu þau einhverjar ítölur úti á Horni... Heheh greinilegt að einhvetíman í eld gamla daga var samgangur milli landshluta hvað þetta varðar Wink Við stoppuðum einnig á Þórbergssetrinu og við Jökulsárlón þegar þær skvísurnar héldu suður. Ég fylgdi þeim að Skaftafelli en snéri þá aftur austur.

Amma og Solla úti á Horni

Verslunarmannahelginni var svo eytt uppi í Lóni. Þar var elítan saman komin. Mamma og Þorbjörn mættu á húsbílnum og með fjórhjólið ásamt Siggu og Smára og Helgu og Herði. Þannig að á Fókaleiru lóðinni við Grænu Höllina var margt um manninn eins og alltaf í kring um þau Rögnu og Heiðar. Við skemmtum okkur alveg endalaust vel, ég fékk að fara með gamla settinu í heljarins fjórhjólaferð á laugardeginum. Það var alveg frábært. Nú svo var að sjálfsögðu brenna og skemmtanahald langt fram eftir morgni þar sem Bjössi og Frikki fóru alveg gjörsamlega á kostum. Ég tók margar myndir af þeim félögunum en því miður eru þær ekki allar birtingarhæfar á veraldarvefnum.
Nokkrar má þó finna á myndasíðunni minni Cool

Kvöldverður í Lóninu

Fjórhjólaferð

Verslunarmannahelgar brenna

Á sunnudaginn héldum við Ragna og Heiðar í mikla menningarferð um mýrarnar... þetta byrjaði þannig að við Ragna vorum að velta því fyrir okkur hvernig ölkelduvatn væri og hann Heiðar vildi ólmur sýna okkur ölkelduna inni í Nesjum. Þá var ekki aftur snúið og við heimsóttum Borgarklett, Þurrubrú, Heinabergssvæðið, "Smartafoss" og loks Árbæ þar sem við gæddum okkur á ljúffengum ís. Frábær dagur í alla staði.

Menningarferð á Mýrarnar

Ég ákvað að taka mér sumarfrí í gær og í dag og nýtti gærdaginn í alsherjar útivist. Um morguninn fór ég í sund og synti alveg eins og ólimpíufari (einmitt....) og fór svo í göngu upp Bergárdalsheiðina í blankalogni og amk 18 stiga hita!!! Wink Svo fór ég bara aftur í sund til að skola af mér svitann.... svona á að gera þetta!

Nú fer að líða að því að Skemmtifélagið fari af stað aftur. Næstu viku ætla ég að vera í Reykjavíkinni og svo byrja bara æfingar. Hún Hera kemur austur og verður aftur með söngnámskeið helgina 28-30 ágúst og þá fer allt á fullt. Nú svo á ég líka afmæli bráðum og það er aldrei að vita hvað verður gert þá Smile

Jæja gott í bili kæru vinir
Sandra

Heimsókn á DalbrautinaSandra Björg Stefánsdóttir

Góða kvöldið góðir hálsar,
Í síðustu viku voru mamma og Þorbjörn hjá mér. Þau voru í heila viku því að Þorbjörn fékk vinnu hjá henni Rögnu í Foss. Þetta var alveg æðislegur tími, ég tók mér frí eftir hádegi alla vikuna svo við mamma gætum brallað eitthvað skemmtilegt... og hvort við gerðum. Mamma fór meðal annars með okkur Rögnu og Heiðar í göngu um Skálafell. Ég man ekki eftir að hafa komið að Vestari bænum síðan á ættarmótinu þegar ég var 6 ára, sem er í sjálfum sér ekkert skrítið en samt svolítið leiðinlegt. En nú fengum við að heyra alls kyns sögur og minningar frá mömmu frá því að hún var lítil.
Við mæðgur gengum líka inn á Bergárdal og tíndum ber... ó já þið lásuð rétt, það eru komin kolsvört og safarík ber inni við fossinn.

ég og mamma


Ég verð að viðurkenna að það er frekar tómlegt í kofanum nú þegar gömlu eru farin, en þetta var samt æðisleg vika og vonandi koma þau bara fljótt aftur. Reyndar hafði Þorbjörn nú orð á því að hann gæti alveg hugsað sér að búa hér á Höfn. Það er svo góður andi hér og allir svo viðkunnalegir, sem er ekkert skrítið. Það er auðvitað allt annað andrúmsloft hér heldur en fyrir sunnan enda ekkert atvinnuleysi og þess háttar leiðindi. Veit nú ekki hvort gömlu hjónin taki sig til og flytji... Þorbjörn hefur aldrei búið annarsstaðar en í Kópavoginum... veit samt að mamma hefði ekkert á móti því. Svona til að byrja með þá vona ég bara að heimsóknirnar verið fleiri og lengri.

Um næstu helgi er Bræðslan á Borgarfirði eystri, mér skilst að undan farin ár hafi hálfur Hafnarkaupstaður farið þangað og skemmt sér saman. Ég vil nú meina að ég sé Hornfirðingur þannig að sjálfsögu ætla ég að fara! Fæ að fljóta með Nönnu mega skvísu og rauða ljóninu hennar! Alltaf gaman að gera eitthvað skemmtilegt með frábæru fólki. 

Amma og Solla ætla svo að koma til mín á mánudaginn í næstu viku og vera í nokkra daga. Þá held ég að ég taki mér bara sumarfrí og stjani við pæjurnar mínar. Ég hlakka svo til. Sumarið er svo skemmtilegur tími, þá vilja allir koma og heimsækja mann! 

Jæja þetta er orðið gott í bili
Endilega kíkiði á myndasíðuna mína, fullt af myndum þar og KVITTIÐI Smile
Over and out
Sandy

Humarhátíđ - Skaftafell citySandra Björg Stefánsdóttir

Nú held ég að það sé kominn tími til að skrifa smá línu hér á þetta blogg.
Margt hefur á daga mína drifið síðasta mánuðinn Smile

Skrúðgangan á Humarhátíð


Um þar síðustu helgi var Humarhátíðina mikla hér á Höfn. Þetta var ein allra skemmtilegasta humarhátíð sem ég hef upplifað og eru þær nú komnar all margar hjá mér Smile Við hófum leikinn á miðvikudag þegar ég fékk að fljóta með Rögnu og Heiðari á djass tónleika í Pakkhúsinu, formlega hófst hátíðin á mánudeginum en ég var löt fyrstu tvo dagana. Á fimmtudaginn var svo aftur tjúttað í Pakkhúsinu þegar Rökkurbandið sló í gegn enn á ný. Við grúppíurnar Ragna fórum og skemmtum okkur konunglega og fylgdumst með Heiðari og nýju rauðu græjunni hans!  Eftir það hitti ég Gullu, já og bara flestar skvísurnar í bænum og við fórum á Víkina. Eins og Hornfirðingum sæmir voruð við að langt fram eftir morgni enda veðrið dæmalaust gott og fólk sat úti á stétt og spjallaði í langan tíma eftir að Víkin lokaði. Á föstudaginn fóru svo gestirnir að streyma að. Hrefna og Solla voru fyrstar í hús, svo Sóley og Rafn (sem þó vildu endilega gista í tjaldi...?!?!?!) og loks Rut og Helgi. Pörin tvö voru eiginlega svona óvænt ánægja því ég vissi ekki fyrr en eftir hádegi á föstudeginum að þau ætluðu að koma. Aftur var dæmalaus blíða í firðinum fagra og heppnaðist dagskráin því með eindæmum vel. Heiðar hafði tekið að sér að skipuleggja dagskrá á sviðinu föstudagskvöld, laugardag og laugardagskvöld og reyndi ég aðeins að hlaupa undir bagga með honum. Hann var náttúrulega að spila í nánast hverju einasta atriði þannig að ég var þarna fyrir neðan og reyndi að sjá til þess að allir væru tilbúnir og allt gengi snurðulaust fyrir sig, sem það og gerði. Eftir að dagskránni lauk á sviðinu skelltum við okkur í Sindrabæ á Hornafjarðarkvöld þar sem dansinn dundi langt fram á morgun!!

Vinkonurnar á Hornafjarðarkvöldi

Áfram var haldið á laugardeginum söngvakeppni barnanna og fleira yfir daginn og svo enn betri dagskrá um kvöldið. Eitthvað var veðrið ósamvinnuþýtt um kvöldið því það rigndi eins og hellt væri úr fötu á meðan á skemmtiatriðunum stóð... en um miðnætti þegar brennan hófst var komið fínasta útihátíðarveður. Um það leiti kom heil rúta af skaftfellingum í bæinn sem voru kannski heldur illa klædd fyrir útiveru... ég veit að það er þversögn í þessari setningu þar sem við erum að tala um landverði og fjallaleiðsögumenn... en þetta var nú svona samt Smile Ég skaut sum sé yfir þeim húsaskjóli í rúman klukkutíma eða þangað til haldið var í íþróttahúsið á ball. Það eru engar ýkjur þegar talað er um heila rútu því þegar mest var taldi ég milli 25 og 30 mans í litlu sætu íbúðinni minni... En öll dýrin í skóginum voru vinir svo þetta fór bara vel fram... helltist ekki einu sinni niður úr glasi Smile Þá var komið að ballinu!!! Mínu fyrsta Parket balli... Þvílíkt og annað eins ball !! Þeir eru alveg jafn ótrúlega góðir og ég hafði heyrt!! Þessum blessuðu pjökkum hef ég djammað með í nánast heilt ár og hafði ekki hugmynd um að þeir væru hluti af einni allra bestu ball hljómsveit sem komið hefur fram á Íslandi. Kannski eigum við bara að vera fegin að þeir eru logandi hræddir við Reykjavíkina því annars sæjum við þá sennilega ekki meir...! Eftir að ballinu lauk var hinni stórkostlegu Humarhátíð 2009 formlega lokið. Gestirnir fóru heim hver á eftir öðrum uppúr hádegi á sunnudag og þá tók við hið daglega líf á nýjan leik. 

Mikið stuð á Parket balli

Reyndar fundum við Gulla okkur nokkuð skemmtilegt áhugamál um miðja vikuna, þannig er að hópur frá National geographic var staddur hér á Höfn og spjallaði ég heilmikið við þau. Við fórum að skoða efni frá þeim og við skulum segja að eftirfarandi jafna gæti alveg ræst einn daginn:

Gönguferð + Nepal + 2010 = Sandra + Gulla
SmileSmileSmileSmileSmile

Þá er komið að nýliðinni helgi en þá skelltum við Gulla og Bára okkur í Skaftafell city. Aftur var blíða í sveitarfélaginu Hornafirði eins og reyndar um allt land. Við mættum á svæðið á föstudagskvöldi, þrumuðum upp tjöldunum og grilluðum svo hamborgara eins og við ættum lífið að leysa. Um kvöldið fengum við ökkur göngutúr í Lambhaga og ég vona að stelpurnar hafi orðið jafn ástfangnar af þeim stað og ég Smile Við vöknuðum eldsprækar á laugardeginum og skelltum okkur í göngu um þennan fallegasta stað veraldar, nú eftir það var haldið í sund og svo grill eins og gefur að skilja. Við reyndum að læra af reynslunni frá kvöldinu áður og nú tók það aðeins um 20 mín að hita kolin en ekki rúman klukkutíma. Við höfum sennilega allar grillað marg oft áður en einhverra hluta vegna gekk allt á afturfótunum hjá okkur á föstudeginum. En þetta seinna kvöld  vorum við með svo mikinn mat að við hefðum sennilega getað fætt helminginn af gestunum í Skaftafelli en samt gerðum við það nú ekki Smile Amk datt okkur ekki í hug að gefa neikvæða frakkanum af matnum okkar, eftir að hann hafði vælt á næsta borði í hálftíma! Sumt fólk ætti bara að vera heima hjá sér ef það er svona erfitt fyrir það að ferðast... hehehe... Núhhh... eftir matinn brunuðum við á Hnappavelli því þar var aðalstuðið. Klifurmaraþon og því eitthvað af gorgeus liði. Svo var slegið upp dansleik í tjaldi á svæðinu og því var stuð laaaangt fram eftir morgni. Ég var stórkostlega ánægð með þessa helgi því hún var nákvæmlega eins skemmtileg og ég hafði vonast eftir og vonandi eru skvísurnar sammála mér í því. 

Nú eru enn á ný komnir gestir á Dalbrautina því mamma og Þorbjörn ætla að vera hjá mér þessa vikuna. Kallinn er að fara að vinna hjá Rögnu í Foss og við mamma ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman Smile

Síðast en ekki síst... myndir!!! Það er alveg hellingur á myndum á myndasíðunni og fleiri munu bætast við á allra næstu dögum.

Bless í bili Sandra

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur