Borg óttannsSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er ég stödd í Reykjavík city á nýjan leik. Tupperware kynningin var SVAKALEG! Ef ég væri svona sirka..... miklu ríkari en ég er núna þá hefði keypt helling þarna. Margt ótrúlega sniðugt. Það má svo ekki gleyma veitingunum.... ég held hreinlega að ég hafi bara ekki borðað svona mikið í háa herrans tíð. Rosalega gott... súkkulaðikökur, ostasalöt, rabbabarapæ með rjóma.... ég fæ bara vatn í munnin af að hugsa um þettaNú erum við sum sé stödd í Reykjavíkinni í vettvangsferð. Skóli og skemmtilegheit allan daginn og svo mega dagskrá á kvöldin.... annaðhvort bíó eða út að borða með bekknum... jafnvel hitta skinkurnar ef tími gefst... en aðallega samt læra... FRÍ HVAÐ ER ÞAÐ?????
Jæja gott í bili
Sandra
Ísland RússlandSandra Björg Stefánsdóttir
Greyið strákarnir mínir í Þýskalandi. Orkan er bara búin. Þessir fjárans Danir kláruðu þá bara alveg. En svona er lífið.... handbolti er jú bara leikur (sorry Sóley). Við getum nú alveg verið sátt.... Keppum við Spánverja um 7 sætið og þeir eru nú hvorki meira né minna en meistararnir! Það er bara ekki svo auðvelt að skilja hversu erfitt það var fyrir strákana að tapa svona Dana-leiknum.... get ekki á nokkurn hátt sett mig í þeirra spor. En ég get sagt ykkur það að spennan yfir Dana-leiknum var þvílík. Jónas og Helga voru hér og horfðu á hann með mér og við vorum á yfirsnúning. Ég nagaði allar fínu neglurnar mínar niður í kviku og á endanum stóðum við öll á öskrinuEn eigum við eitthvað að vera að ræða um HÁRGREIÐSLU Rússanna??? HORROR! Við erum að tala SÍTT AÐ AFTAN... BARA HAIRY MÆTTUR.... Þetta setti mig svo út af laginu að ég gat lengi vel ekert fylgst með leiknum
Nú er það bara Reykjavík city aftur annaðkvöld, eða á laugardagsmorgun.... og rúm vika í borginni. Verðum alla næstu viku í vettvangsferðum út um allar trissur.
En núna eftir nákvæmlega tvær klst fer ég upp í Nátthaga á mína fyrstu Tupperware kynningu... ég get ekki beðið því mér skilst að þetta sér rúmlega svakalegt
Bless í bili Sandra
Helgin í ReykjavíkSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er nýjasti nágranninn minn farinn í fýlu út í mig.... það er víst ekki við hæfi að segja að fólk hrjóti og að það sé lúði... en maður lærir af mistökunumNú er ég sem sagt komin í sveitasæluna á Hólum enn á ný. Helgin var áður mjög góð og gott að komast aðeins í bæinn. Hitti Snælóskvísurnar í frábæru partýi hjá Lilju. Ég bara verð að hrósa nýju íbúðinni hennar.... ég á bara ekki orð yfir hvað hún er flott, hátt til lofts og frábært útsýni þó ég hafi ekki séð mjög mikið af því í myrkrinu
Svo horfði ég að sjálfsögðu á landsleikinn í Álfatúninu. Skemmti mér svona líka vel með honum Alexander Mána sem þó var ekki alveg með eins mikla einbeitingu og við hin
Ég gerði þu mistök að plana Stúdentaráðsfund annaðkvöl... en af augljósum ástæðum verður honum frestað því það er ekki inn í myndinni að missa að Dana leiknum
Nóg í bili
Sandra
Little miss SunshineSandra Björg Stefánsdóttir
Nú sit ég hér í Álfatúninu með nýskrifaðan disk með TAKE THAT í eyrunum... gerist vart betraLeiðin suður var nú svona lala til að byrja með enda fólki heitt í hamsi eftir leikinn ógurlega við Pólland. Ég verð nú að viðurkenna að á tímabili munaði ansi litlu að ég færi yfir um... þvílíkur dómaraskandall... Ég veit að þið horfðuð öll á leikinn og því algerlega óþarfi að tjá sig um þetta mál. Strákarnir eiga samt hrós skilið því mörg önnur lið hefðu hreinlega gefist upp eftir svona dómgæslu en ekki strákarnir okkar, nei ó nei... þeir eru VÍKINGAR! Vonandi að hann Guðjón Valur jafni sig almennilega í tæka tíð og svo tökum við Slóvenana og vonum bara að þessir ömurlegu dómarar hafi fengið að heyra það og verið sendir heim.
Ég skellti mér í bíó í gær. Sá Little Miss Sunshine. Ég hlæ nú ekkert ofsalega oft upphátt og sára sjaldan gerist það í kvikmyndahúsi... en ég hreinlega veinaði úr hlátri á þessari mynd. Hún er svo eðlileg en hreinlega pínleg að í lokin var ég farin að þurrka tárin því hláturinn var svo mikill. Ég mæli svo sannarlega með þessari mynd.
Þetta er hún Olive sem þráir ekkert heitar en að verða fegurðardrottning og er sennilega eitt krúttlegasta barn sem til er í bíómyndum
jæja nóg í bili
Sandra
hilluuuuu ReykjavíkSandra Björg Stefánsdóttir
Góðan dag góðan dag... glens og grín það er mitt fag.... osfrvNú er ég að fara til Reykjavíkur :) Ég ákvað að nenna ekki að vera ein hér á Hólum aðra helgi og snýkti mér þess vegna far í bæinn. Ég veit alveg að ég þarf ekki að vera ein hér, en afþví að ég var lasin um síðustu helgi og komst ekki út úr húsi í 4 daga þá held ég að ég þurfi bara aðeins að skipta um umhverfi.. svo er bara miklu skemmtilegra að horfa á landsleikina í Álfatúninu með alvöru skapstóru fólki ;) Vinsamlegast athugið samt að ég ætla mér ekki að missa af leiknum í kvöld heldur verður ekki lagt af stað fyrr en leiknum er lokið... við skulum bara vona að við sigrum þennan leik til að það verði líft í bílnum á leiðinni suður.
En ég er sérstaklega ánægð í dag þar sem það var verið að bjóða mér vinnu. Vúhúúú ég get reyndar ekki þegið hana þar sem ég verð á Spáni næsta sumar en vúhúúú. Mér var sem sagt boðið að vera hótelstjóri á Áningu
jæja best að fara að gera vettvangsrannsókn í matsal Hólaskóla
Sandra
Ísland - FrakklandSandra Björg Stefánsdóttir
ERTU AÐ GRÍNAST????Ég er svoooooo stolt af strákunum mínum að ég er að springa! VIÐ RÚSTUÐUM FRÖKKUM!!! Tókum þá bókstaflega í bakaríið... það bjóst auðvitað enginn við því... allavega enginn utan Íslands... þetta átti bara að vera tapaður leikur fyrir okkur en NEI við erum VÍKINGAR!!!!
Nú er kátt í höllinni minni :)
Sandra
Ísland - ÚkraínaSandra Björg Stefánsdóttir
Vonbrigði????Já vægast sagt. Ég vonaði svo innilega að við ynnum þennan leik. En svona er lífið, handbolti er bara leikur sem á að hafa gaman af. Strákarnir stóðu sig samt mjög vel. Ég er ekki að segja það að þeir hafi ekki gert helling af mistökum því það gerðu þeir, en engu að síður styð ég þá í gegnum súrt og sætt eins og við í www.ibliduogstridu.is segjum. Auðvitað hefðum við átt að vinna en eins og ég segi stundum þá er ástæða fyrir öllu ;) Kannski eigum við bara að brjóta stoltið hjá Frökkum og vinna þá ;) Ekkert er ógerlegt.
Ég fékk nú samt svolítiðáfall í leiknum, eiginlega í gær líka.... ÉG ER ORÐIN GÖMUL! Ókey, það hafa stundum verið nokkrir strákar í landsliðinu sem eru kannski ári eða tveim eldri en ég. En núna í þessari heimsmeistarakeppni eru strákar sem eru YNGRI en ég! Úfff þetta er ástæða fyrir taugaáfalli. Reyndar fékk ég annað áfall fyrir leikinn en það var þegar ég spurði ágæta samnemendur mína í Hólaskóla hvort það ætti ekki að horfa á leikinn. Svarið var þá bara NEI, það var frekar farið á Krókinn til að horfa á Man United leik! Þetta ætti nú að vera bannað með lögum!!!!!
En jæja, nú verðum við bara að byggja upp stemmninguna fyrir leik morgunsins og trúa því að strákarnir standi sig betur.
Sandra
Ísland - ÁstralíaSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja, þetta var nú góður leikur. Lítið spennandi en alltaf gaman að sjá stælta, myndarlega karlmenn stripplast ;) Ég verð nú að viðurkenna að ég var ekki nógu sátt við hversu margi virtust halda með Ástralíu. Það var sífelt verið að fagna með þeim... en kannski eru menn bara svo góðhjartaðir að hvetja litla manninn ;)
Sáuði Fúsa minn...? ;) OG SÁUÐI KAUPÞING AUGLÝSINGUNA???? halla malla
Sandra
HlíðarfjallSandra Björg Stefánsdóttir
Góðan daginn dömur mínar og herrar og til hamingju með bóndadaginn allir bændur ;)Nú er fyrstu skólavikunni lokið og viti menn hún var bara ágæt. Get alveg hugsað mér að lifa af þennan hluta annarinnar. Alþýðulist, Stjórnun og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Vúhúú!
En á miðvikudaginn fórum við Villý og Jónas í Hlíðarfjall, við Villý fórum á bretti og Jónas á skíði. Þeir sem þekkja mig vita sjálfsagt að þessa íþrótt hef ég aldrei stundað, raunar er brun á snjóþotu það eina sem ég hef stundað af vetraríþróttum og eru komin nokkur ár síðan ég lagði þotuna á hilluna. Á leiðinni norður (eða austur) n.t.t. við Hraundranga tilkynnti Villý mér að ég mundi fara strax í Stólalyftuna. Ég hélt í alvöru að lífi mínu væri lokið og mælti varla orð fyrr en á fjallið var komið. Þetta var alveg ótrúlega gaman, þó svo að það hafi tekið mig góðan hálftíma að komast niður fyrstu ferðina þar sem ég rúllaði hvern metrann æa eftir öðrum. Raunar hef ég örugglega farið lengra á rassinum og maganum en á brettinu sjálfu, og eru þó nokkrir marblettir því til sönnunar. Reyndar var fyrsta ferðin í lyftunni fremur skondin þar sem ég skalf náttla bara og titraði yfir framhaldinu og var raunar svo stressuð að þegar kom að því að fara úr lyftunni neitaði líkaminn að hreyfa sig, endaði með því að ég hoppaði einhvernveginn út og tók Jónas með mér og svo rúlluðum við einhverja metra ;) En þetta var geggjað gaman þó ég hafi vissulega verið þreytt þegar ég kom heim, og mér skilst að ég eigi eftir að fara aftur á bretti á þessari önn, jafnvel strax í næstu viku :)
Hér eru örfáar myndir frá ævintýrinu
óver and át Sandra
Komin í sveitinaSandra Björg Stefánsdóttir
Nú er ég loksins komin í almennilega tengingu og búin að setja inn allar myndirnar frá Finnlandi, brúðkaupinu og gamlárskvöldi.Á föstudaginn fórum við Solla og Haffi á Apocalypto. Mig var búið að langa til að sjá hana frá því að ég vissi að Mel Gibson væri að búa til nýja mynd. Myndin var ofsalega flott, það vita það sjálfsagt allir að myndatakans hans er sennilega sú besta nú til dags. Hann hefur svo gott auga. Ég veit samt ekki alveg með söguþráðinn... ég varð alls ekki fyrir vonbrygðum, alls ekki misskilja en það var eitthvað sem truflaði mig. Ádeilan var gífurleg... eins og búast mátti við. Ég mæli með að allir sjái þessa mynd og hugsi svolítið um hana og jafn vel reyni að læra af henni. Ef þið hafið ekki áhuga á ádeilu og einhverjum djúpum pælingum þá ættuð þið samt að sjá myndina því það er svo sætur lítill strákur í henni, kannski svona 3ja ára og er eins sætur og hugsast getur, alltaf að hjálpa mömmu sinni og er svo hugrakkur og fyndinn ;)
En þá er ég komin í sveitina aftur! Keyrði í gær. Alveg merkilegt hvað veðurspáin á ruv og stöð 2 getur verið ólík. Ég elska náttla Sigga Storm eins og sönnum MKingi sæmir en því miður þá held ég að hann og þessar bjútíbollur sem hann er með í vinnu ættu aðeins að fara að hugsa sinn gang, það er nánast undantekning að spárnar þeirra rætist! (Nú verð ég afhöfðuð af frk. Pálínu) Ég sem sagt keyrði í gær og færðin var bara mjög fín, það var náttúrulega hálka en logn og fínerí. Þegar ég kom á Blönduós var ég nokkuð tvístíga um hvort ég ætti að fara Þverárfjallið, síðast þegar ég fór það þá var það nánast ófært. Framkvæmdirnar voru svo miklar og hjólförin í drullunni svo djúp og frosin að Litli Rauður festist nánast á maganum en afþví að það var aðeins farið að rökkva þá ákvað ég samt að fara bara Fjallið og sé sko ekki eftir því. Vegurinn hefur bara aldrei verið svona sléttur og fínn... allavega man ég ekki eftir því. Auðvitað voru holur en samt ekkert rosalegar. Ég sem sagt mæli eindregið með því að þeir sem eru á norðurleið fari Þverárfjallið.
Á leðinni hlustaði ég á geisladiska sem urðu eftir í einhverju partýinu hér á síðustu önn. Diskarnir voru merktir Geiri 2 og Geiri 3. Ég hafði ekki hugmynd um hver þessi Geiri er! Hugsaði fyrst Geirmundur en neeee þetta var ekki alveg tónlist í hans stíl. Þá mundi ég allt í einu að Friðgeir kom með einhverja diska hingað um daginn. Það leið dá góð stund áður en ég fattaði Friðgeir= Geiri! Svona getur maður verið dofinn.... mér finnst Geiri bara vera svona gamall kall! Reyndar er Friðgeir náttla soldið þannig ;) Allavega þessir diskar eru hreinasta snilld... nema allt í einu á miðjum diski nr 2 kemur eitthvað geggja píkupopp! Annars hafði þetta verið svo fín tónlist Oasis, Smashin Pumkin, System og a down osfrv.... Greinilegt að kallinn er að verða elliær ;)
Skólinn hefst svo á morgun og alvara lífsins, þess vegna ætla ég ekki að gera neitt í dag ;) kannski fara út að labba í snjónum og fá Pölluna í heimsókn... gott plan ;)
ciao Sandra
