muniđi eftir mér?Sandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ég mætt aftur. Ég veit ekki hvort nokkur kíkir á þessa síðu lengur þar sem ár og öld eru síðan ég tjáði mig síðast. Málið er einfalt, það er búið að vera geðveikislega mikið að gera í skólanum og stressið eftir því. Í gær kláraðist heilmikið þegar ég flutti tvo fyrirlestra, spennufallið  eftir það var raunar svo mikið að ég lá bara dæmd þegar ég kom heim úr skólanum. Nú eru einhverjar heilmiklar breytingar í gangi í tölvukerfinu sem krefst þess að maður er sífellt á skrá inn einhver lykilorð. Þetta á víst að gera kerfið öruggara o.s.frv. og ég hef enga ástæðu til að gruna Brodda um að vera að ljúga því.
Raunin er að ég er enn hálf andlaus eftir verkefnaskilin í gær og er því hálf ófær um að tjá mig.... vona að þið fyrirgefið það. Svalur 
Eitt get ég þó tjáð mig um! MAGNA BALL á Króknum 20. október! Þar verður sko tekið á því með rokkstjörnunni svakalega og sem fyrr eru ALLIR velknmir í Geitagerði 11b og djamma með mér og öllum hinum Brosandi Þið sem hafið djammað á Króknum vitið að það er svona um það bil þúsund sinnum skemmtilegra að djamma hér en í bænum. Hér þarf engar rannsóknir eða rökfærslur... þetta er bara staðreynd!
over and out
Sandra

Athugasemdir

1
Solla skrifar:
Flott nýtt útlit :)

Já djamm á Króknum...ertu þá að meina skokkið alltaf á milli 2ja skemmtistaða þar á bæ eða?? :Þ
Jújú náttúrulega sveitaball er alltaf sveitaball og þar kemst ekkert nálægt.
skemmtu þér vel sis :)
12. október 2006 klukkan 22:01
2
Sandra skrifar:
Heyrðu heyrðu... borgarmarnið mikla farið að tjá sig!!!! Má ég minna þig á gönguferðirnar þínar í kirkjugarinn hér forðum daga.... það var álitin hin svakalegata skemmtun svo ekkert tala illa um þessa 2 skemmtistaði hér í bæ ;)
12. október 2006 klukkan 22:12
3
Pálína skrifar:
heheh sammála þér Sandy mín. Það er þúsund sinnum skemmtilegra að tjútta hér en í Reykjavík !!!!!!!!!

Kv frá hinni andlausu konunni
12. október 2006 klukkan 22:22
4
Ragna skrifar:
Eitthvað rámar mig nú kirkjugarðsferð hjá Sollu, hún hefur lítið um djamm að segja. Aldrei að vita nema maður skelli sér einhvern tíma í Geitagerði 11b. Erum að fara á frumsýningu á hótelinu á laugardag.
Kveðja Ragna.
13. október 2006 klukkan 16:32

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur