yogaSandra Björg Stefánsdóttir

Ég mæli eindregið með jóga. Í kvöld gerðum við fullt af æfingum sem tengdust skjaldkirtlinum, m.a. til að styrkja hann og koma jafnvægi á hann. Hugsiði ykkur ef ég hefði lært þetta fyrir 5 árum, þá hefði líf mitt kannski orðið allt öðruvísi. Kannski hefði ég sloppið við allt þetta vesen og öll þessi óþægindi, og það sem meira er þá hefðuð þið kannski sloppið við sveiflurnar í mér! Þá hefði væri ég kannski altalandi á frönsku eftir veru mína í Genf, ég hefði kannski farið og unnið á Hawaii og hjálpað munaðarlausum börnum í Suður-Afríku. En sennilega var mér ekki ætlað að gera allt þetta, sennilega átti ég að koma á Hóla og læra það sem ég er að læra og kynnast öllu þessu frábæra fólki.
Þið verðið að fyrirgefa væmnina, það er bara svo yndislegt í jóga.
Sandra

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Jæja nú reyni ég aftur að kommenta, hitt birtist ekki marr ANDSK........

En ég hef líka verið geggjað að spá í svona röð tilviljana og ekki tilviljana og hvað lífið getur eiginlega bara verið skrítið og skemmtilegt og jú auðvita leiðinlegt líka heheh

okkur hefur bara verið ætlað á Hóla eins og þú sagðir áðan til að kynnast öllu þessu frábæra fólki og þessum frábæra stað..........

Hvernig ætli Spánn verði svo ???? Það er næsta spennandi
04. október 2006 klukkan 02:22

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur