LaufskálaréttSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er Laufskálaréttarhelgin ógurlega liðin. Á föstudagskvöldinu var farið á sýninguna í Reiðhöllinni þar sem flugurnar fóru á kostum í bleiku nærbuxunum sínum Svalur Nú svo var að sjálfsögðu haldið á Ólafshús og djammað með honum Zorin. Agalegt stuð, sérstaklega þegar Ragginn mætti á svæðið. Reyndar var tekið nett geðveikiskast í lok kvöldsins, vona að þeir sem áttu ekki skilið að lenda í því erfi það ekki við mig. Óákveðinn 
Laugardeginum var svo eytt í sjoppunni í réttinni, missti þannig séð af réttunum og gamaninu en það var ágætt að græða pening... alltaf gaman af því þó svo að ég efist stórlega um að ég (ásamt stjórn nemendafélagsins) vinni fleiri svona sjálfboðaverk fyrir alla hina nemendurna. Um kvöldið logaði allt í partýum í Geitagerðinu. Partý í hverri íbúð og svo var bara gengið á milli húsa. Um kl 23.00 var kominn tími til að drattast niður á Krók og voru fengnar þrjú stykki rútur í að ferja mannskapinn. Geiri og Von voru alveg að meika það í Höllinni. Tók minn tíma í að komast í gírinn, mældi út hverjir voru líklegir til þess að vilja dansa, skammaði og dissaði þá sem voguðu sér að dansa (já eða eitthvað meira) við einhverjar aðrar en moi...! Fann svo að lokum Puma-kisuna mína og saman dönsuðum við fram í rauðan dauðann!!!
Pallan gisti svo á Hólum eftir að hafa farið í bilað eggjahrærupartý hjá hesta Steina Glottandi 
Í morgun kíkti ég svo til ömmu og afa á Krókinn og þar hittir maður nú ótrúlegasta fólk á ótrúlegustu tímum. Nett vandræðalegt móment þegar ég gekk inn í  húsið...... Ullandi
en jæja hér eru nokkrar myndir frá helginni
Sandra

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Takk fyrir mig sæta mín :)
Nú er sko löööönnnnngggg pása, því nú ætlum við að fara að einbeita okkur að lærdóm ekki satt :O):O):O)

SJáumst um jólin

Kv Pumi litli í jólafötunum
02. október 2006 klukkan 02:49

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur