Dagurin í dagSandra Björg Stefánsdóttir
Brjálaður dagur í dag. Byrjaði daginn á að ganga í bekki skólans og minna á nemendafélagsfundinn í kvöld, sem ég er n.b. með nettann fiðring fyrir. Fékk að vita að sumir væru að fara í læknisskoðun og kæmust ekki, full miklar upplýsingar en ókey
Nú eftir það lá leiðin í dæmatíma í rannsóknaraðferðum. Mér hefur sjaldan gengið eins illa síðan ég byrjaði í náminu hér á Hólum. Kannski var þetta sjálfri mér að kenna því ég hef solítið látið þetta fag sitja á hakanum en samt. Þetta verður hreinn og klár páfagaukalærdómur. Halla malla.
Góðu fréttir dagsins eru samt þær að bæði Viktor og Ingvar voru valdir í lið ársins í Landsbankadeildinni hjá Fréttablaðinu. Hugsiði ykkur æskuástin mín og Kale bara orðnir frægir
Maður fyllist bara stolti...!
Ef einhver á íslenska þýðingu á bókinni Investigating the social world þá vinsamlegast hafið samband ![]()
Sandra

2 dagar ERUM VIÐ EKKI AÐ FARA ÚR LIMINGUNUM AF GLEÐI HÉR
Hallelúja