Grill spillSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er kominn enn einn sunnudagurinn. Í gær var haldið rosalegt grillpartý hjá ferðamálaliðinu, reyndar vorum við ekki mörg en fámennt og góðmennt. Við Villý og Stjáni byrjuðum á því að fara á Krókinn og versla og það var sko ekki keypt neitt slor. Rjómasósur og fetaostur á salatið og svo ís og rjóma súkkulaði heit sósa. Ef ég hefði ekki vtað betur þá hefði ég haldið að jólin væru komin
Eftir matinn hófust miklar umræður og ég kynntist algjörlega nýjum hliðum á fólki sem ég umgengst nokkuð mikið, alltaf lærir maður eitthvað nýtt
en svo var haldið niður á Krók til Pöllunnar. Vígalegt stuð á henni eins og alltaf. Pínu hrædd um að Villý og Stjáni hafi fengið menningarsjokk þegar þau hittu Pöllu, Gyðu og Sigrúnu í ham en ég veltist um af hlátri. Á Kaffi Krók var haldið eftir skamma stund og þar komst ég að því að mun fleira fólk les bloggið mitt en ég hafði gert mér grein fyrir, fólk sem ég hélt að kynni ekki baun á tölvur..... ég þarf víst aðeins að fara að ritskoða það sem ég skrifa
Áður en leið á löngu var dansinn hafinn og ég er með blá-marnar ristar sem geta vottað það. Þar sá ég svo hinn fræga Bigga löggu..... jiii dúdda mína, gaurinn er................ já við skulum segja að ég mun héðan í frá trúa öllu sem er sagt um þann mann. Áður en við vissum af var ballið búið og kominn tími til að koma sér heim. Þar sem ég hafði komið niðureftir á trillitækinu hans Stjána var mjög ákjósanlegt að ég keyrði heim annað trillitæki svo sá bílstjóri gætu hrunið í það. Við komumst samt klakklaust heim enda var þetta ekki í fyrsta sinn á ævinni sem ég keyrði stóran bíl.![]()
Hér eru nokkrar myndir frá gærkvöldinu.
ciao Sandra
p.s. 6 dagar í LAUFSKÁLARÉTT!!!!

gangi þér vel að læra skvís