helginSandra Björg Stefánsdóttir
Já góðan daginn.
Nú er helgin liðin í aldanna skaut eins og einhver sagði. Eftir að hafa hámað í mig ís og fínerí hjá Stjána og Gumma á fyrsta ári kíkti ég í hestapartý, sem endaði að sjálfsögðu á Króknum

Reyndar var það kannski ekki mjög góð hugmynd því ég þurfti að vera komin í Fellstúnið kl 8.30 morguninn eftir. Það tókst nú samt þótt ótrúlegt sé. Ferðinni var heitið á Akureyri city og þar var sko peningum eytt sem aldrei fyrr. Skelltum okkur í 66°N þar sem ég sá aftur flottustu úlpu sem framleidd hefur verið, hún er rándýr en ótrúlega flott. Ætla að rannsaka peningamálin aðeins

Nú svo kíktum við á körfubolta leik Stólanna en það var opinber ástæða fyrir ferðinni. Sakkinn var að spila en við ræðum ekkert um stig hér í dag. Fyndið að síðast þegar ég fór á körfuboltaleik þá hafði ég ekki hugmynd um hver drengurinn var, kannaðist bara við ákveðinn Hvítan Fák og Rautt hárband (sem hefur by the way yfirgefið liðið og var sárt sakanað, allavega af minni hálfu) en nú er maður bara sófadýr hjá Sakkanum og Pöllunni

Um kvöldið var að sjálfsögðu djammað á nýjan leik. Samt var það pínu spes því ákveðnar manneskjur voru bara edrú og ekkert til í að djamma. En Pallan var nú illa hress og kom mér frítt inn á Sixties ball og bjargaði þar með kvöldinu.
Þetta var nú helgin í hnotskurn,
bleee í bili Sandurinn