Halló hallóSandra Björg Stefánsdóttir
Hæ hó allir saman,já nú er bara komin önnur helgin hér á Hólum, það er nú meira hvað tímin líður hratt..... styttist óðum í jólin og þá þarf að kveðja alla aftur
Síðustu tvo dagana er ég búin að vera á fullu ásamt Rósu í mötuneitinu að færa nemendaaðstöðuna og búa líka til litla kaffiaðstöðu fyrir okkur inni á fatlaðaklósetti....! Þetta hefur verið notað sem geymsla í fjölda mörg ár svo saurgerlarnir ættu að hafa yfirgefið svæðið
En mál málanna í dag! ROCKSTAR SUPERNOVA ! Ég verð bara að segja það að ég er mjög sátt við að hann Lucas hafi unnið þetta. Hann var virkilega flottur og átti þetta bara skilið. Það var líka gott á monthænuna hana Dilönu að vinna ekki..... hún var aaaaaaaaaaaaaallt of góð með sig. Við Hólanemar sameinuðumst á Kaffi Krók sem opnaði salinn sérstaklega fyrir okkur. Voða kósí en sumir voru alls ekki sáttir við það að við Pálína héldum ekki með Magna. Auðvitað héldum við með Magna en eins og ég sagði um daginn þá er ekkert endilega jákvætt að missa hann í hljómsveit með einhverjum "has been's". Minn maður var samt flottastur og það var hann Toby. Orðið á götunni segir að hann sé að hefja nám í ferðamálafræði Hólaskóla! Örfáar myndir
Jæja nóg í bili
Sandra
p.s. allir að taka frá laugardaginn 30. september því þá er LAUFSKÁLARÉTT
