Hólar eins og viđ ţekkjum ţáSandra Björg Stefánsdóttir
Nú er skólinn að hefjast fyrir alvöru... loksins mundi einhver segja. Reyndar fór gærdagurinn ekki svo vel af stað. Dagurinn allur var eiginlega ömurlegur. Ég (ásamt nokkrum samnemendum mínum) urðum svo endalaust pirruð á ákveðnum kennara að það lág við sprenguárásum. Einhvernveginn á óskiljanlegan hátt tókst mér í sumar að gleyma því hvað maðurinn væri pirrandi en það voru ekki liðnar nema kannski tíu mínútur þegar þetta kom allt til baka. Þetta er kannski ágætis grey.... en stundum vel pirrandi
Það var rétt um kvöldmatarleitið sem ég varð viðræðuhæf aftur, þá var boðið í kaffi í aðra kommúnuna á svæðinu en þar sem ég drekk ekki kaffi raðaði ég bara í mig kökum! Við þetta lagaðist sálarlífið aðeins.
Dagurinn endaði samt jafn skemmtilega og hann hófst ömurlega! Það er nefnilega þannig að hestarnir mínir eru komnir aftur! vúhúúúúúúúú!!!!!! Að sjálfsögðu var partý og þar sem ég hef ekki enn afsalað mér titlinum Ferðamálahesturinn þá tróð ég mér með í partý
Það var svo gaman að hitta þau öll aftur að ég fór næstum því að gráta. Ekki versnaði það í morgun því Binni og Auður fengu að gista hjá mér og ég fékk þess vegna þvílíkt nostagígjukast við að borða morgunmatinn með þeim.
Nú er ég komin á fullt í nemendafélags dót, tildæmis búin með tvo fundi í dag. Geri aðrir betur....... Veit ekki hvort Laufey kennari verði mjög ánægð þar sem það hefur ekki farið mikið fyrir heimalestrinum hjá mér
En nú í ár mun enginn komast upp með að vera með einhvern ferðamála vs hesta móral..... ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA! Við erum EINN skóli með EITT nemendafélag og við verðum bara að gjöra svo vel að haga okkur eins og þroskaðir einstaklingar! OG HANA NÚ!!!!
Jæja ætli ég verði ekki að læra smá fyrir morgundaginn
ciao Sandra
