Frumsýningu lokiđ og Írland framundanSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er frumsýningu á Söngur um lífið lokið og þvílík skemmtun. Ég held svei mér þá að sýningin í ár sé best af þessum þrem sem ég hef tekið þátt í, mér líður að minnsta kosti þannig.

Það sem var þó öðruvísi í þetta skipti var að salurinn var rúmlega hálfur af fólki sem ég þekkti ekki. Nei reyndar þetta er ekki satt því í Bítlashowinu þá þekkti ég náttúrulega nánast ekki neinn því ég var svo nýflutt. En það var samt sem áður pínulítið skrítið að þekkja ekki flesta sem sátu fremst. Það bendir þó til þess að við séum að gera góða hluti, fyrst aðkomufólk hópast á sýningarnar okkar. Reyndar er komið upp nokkurskonar lúxus vandamál" en þrátt fyrir að uppselt sé á allar sýningar þá er enn alveg gífurlegur fjöldi á biðlista, raunar svo mikill að við næðum ekki að tæma listann þó við myndum bæta við sýningu. Þetta er nú bara skemmtilegt og ákvörðun um framhaldið verður tekin á morgun.

Eftir frumsýningu dansaði ég svo mikið í fína prinsessukjólnum frá Sollu að ég gat eiginlega ekki stigið í fæturna á sunnudeginum, en það mætti nú líka kalla hálfgert lúxusvandamál. Bjartmar og Hansína buðu svo í frumsýningarpartý eftir sýningu og eins og áður voru konunglegar veitingar á borðum, sem voru að sjálfsögðu vel þegnar því Skemmtifélagsmeðlimir glorhungraðir.

Nú eru aðeins þrír dagar í næstu sýningu sem hún mamma ætlar að koma á. Að sjálfsögðu verður hún jafngóð og fyrsta sýningin, ef ekki bara betri.

Það eru svo bara fimm dagar að ég og 16 aðrir förum til Írlands. Ég fékk góðar fréttir í dag, en hún Sigrún Inga bumbulína fékk fararleyfi frá ljósmóðurinni þannig að þetta verður frábær vika í alla staði, hugsanlega síðasta skiptið sem við munum gista á hóteli saman þar sem það er stutt í að skvísan yfirgefi Háksólasetrið. En ég vil ekki hugsa um það strax.

Við erum sem sagt að fara til Írlands og verðum þar í heila sex daga. Dagskráin er vægast sagt spennandi, auk áhugaverðra fyrirlestra munum við fara í margar vettvangsferðir, t.d. skoðum við Cliffs of Moher (www.cliffsofmoher.ie/) en það verður draumur að rætast af minni hálfu. Nú svo er okkur lofað dá góðum slatta af "menningartengdri ferðaþjónustu" á kvöldin.... Spennandi í meira lagi.

Jæja gott í bili
Sandra

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur