Ekkert landsmótSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er það komið á hreint, það er búið að fresta Landsmótinu á Vindheimamelum um eitt ár. Ég er ekki sátt, þó ég skilji mjög vel ástæðurnar á bakvið þessa ákvörðun þá hlakkaði ég svo ótrúlega til að fara norður og hitta allt Hólafólkið mitt og alla vinina hinumegin á landinu að mig langaði til að gráta yfir fréttunum í gær. En svona er lífið og ekkert við þessu að gera. Ég verð þá bara heima hjá mér á Humarhátíð og fylli heimilið mitt af gestum og hef gaman, svo fer ég kannski bara norður eftir hátíðina Smile

Í Amaliuborg



Annars hefur margt á daga mína drifið, í síðustu viku fór ég óvænt til Kaupmannahafnar og hitti samstarfsfólkið okkar á Háskólasetrinu í NEED. Það var mjög gaman og mikið hlegið. Svo hitti ég að sjálfsögðu Sóleyjuna mína sem hugsaði um mig eins og ég væri prinsessan á bauninni. Ég áttaði mig fyllilega á því að það er ekki nóg að stoppa í tvo sólarhringa í Kaupmannahöfn, vil endilega drífa mig aftur og skoða meira Cool

Hekla sæta



Nú svo fékk ég óvænt gesti til mín á Höfn, Hekla litla sæta og eigandinn hennar hann Jónas bónas komu austur og voru hjá mér yfir Hvítasunnuhelgina. Við tókum túristann á þetta og fórum út á fjörur, upp í Hoffell og upp á jökul. Reyndar brunnum við Jónas svo laglega í andlitinu að okkur verkjaði og það var eiginlega ekki sjón að sjá okkur lengi á eftir. Amk. var eins og ég væri með flösu í andlitinu í nokkra daga meðan ég bókstaflega skipti um ham... Gaman að þessu... Mér til varnar þá ætluðum við bara að vera stutt uppi á jökli en urðum óvart í um 5 klst og engin sólarvörn... En þetta er nú allt að koma og ég er hætt að þurfa að bera feitan handáburð í andlitið á mér Cool

Núna er ég stödd í Reykjavík city því hún Solla megabeib er í sveinsprófinu sínu og spurði mig hvort hún mætti sauma á mig kjól. Það var náttúrulega ekki spurning og ég tók bara hálft háskólasetrið með mér suður og hef plantað mér í eldhúsið í Álfatúninu þar sem ég þykist vinna á milli þess sem ég skýst niður í Iðnskóla og máta flotta fína kjólinn minn. Smile Á föstudaginn verður svo heljarins útskriftarveisla hjá pæjunni þar sem tjúttað verður fram á nótt.

Enn og aftur bendi ég á myndasíðuna mína og svo megið þið endilega kvitta Cool

En jæja segjum þetta gott í bili
Sandy

Athugasemdir

1
Sóley Ösp skrifar:
Takk fyrir síðast skvís. Það er nú gott að þú ert búin að skipta um ham og að þú sérst hætt að bera handáburð á brunablettina ;)
Já tveir sólahringar eru algjörlega ekki nóg fyrir Köben! Þú veist að þú ert alltaf velkomin í sófann minn þegar þú vilt skoða meira hérna ;)
Góða skemmtun á föstudaginn!
01. júní 2010 klukkan 19:07
2
Sandra skrifar:
Takk elsku Sóley mín :)
02. júní 2010 klukkan 08:48

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur