Já þetta var svo sannarlega ótrúlegt :)
Hlakka ótrúlega til að fá þig enn og aftur í heimsókn :):):):)):):
Eldgos á FimmvörðuhálsiSandra Björg Stefánsdóttir

Eins og þeir sem hafa gengið Fimmvörðuháls vita þá var gangan sjálf ekkert sérstaklega erfið en það sem gerði þessa ferð pínulítið erfiðari en ella var að það var um 10° frost og um 15 m/s norðan átt, sem þýðir að vindurinn var í fangið á okkur alla leiðina upp.
En þegar við komum að gosinu var alveg logn og hiti... annað hvort það eða þá að við urðum fyrir svo miklum áhrifum af gosinu að við munum bara ekki eftir neinum leiðindum.
Þetta var bara alveg gjörsamlega ólýsanlegt! Það eru engin orð sem geta lýst því hvernir upplifun það var að standa og horfa á eldgosið og halda á vel heitum hraunmolum...
Þið verðið bara að skoða myndasíðuna til að reyna að ímynda ykkur hvernig þetta var, þó svo að myndirnar ná engan veginn að lýsa þessu nógu vel að mínu mati

Bless í bili
Sandra

sjáumst eftir 2 daga sæta vúúúúúhú!!!!!
xxxx