Fjallanámskeiđ og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja nú hefur talsvert margt á daga mína drifið síðan síðast.

Hef ég nú lokið tveimur námskeiðum í Fjallamennsku frá Landsbjörgu og það finnst mér alveg frábært. Ég skemmti mér mjög vel á þessum námskeiðum og fann hvað ég nálgaðist aftur manneskjuna sem ég vil vera þegar ég verð stór.
Á fyrra námskeiðinu fórum við svolítið almennt í það hvernig það er að vera á fjöllum og hvernig menn bera sig að á jöklum en á seinna námskeiðinu var eingöngu horft á ísklifur og það fannst rúmlega brillíant. Á fyrra námskeiðinu voru tveir leiðbeinendur en annar var Leifur hjá Fjalló sem fór með okkur Gullu á Hnjúkinn í fyrra og hinn var Arnar Felix hennar Örnu. Fyndið hvað þetta er lítið land. Á seinna námskeiðinu bættust við tveir leiðbeinendur og þá vorum við í fjögurra manna hópum. Við Björg Sigurjóns vorum í hópi með Hauki Inga og Óskari Ara og leiðbeinandinn var enginn annar en hann Áki úr Skaftafelli. Ég er ekki í nokkrum vafa um að við vorum í besta hópnum, við vorum svo óendanlega fyndin og skemmtileg að ég er viss um að strengirnir í maganum á mér dagana á eftir námskeiðið höfðu ekkert með príl að gera heldur vegna hlátursins. Mér tókst á undraverðan hátt að valda sjálfri mér og öðrum líkamlegum skaða með því að missa gjörsamlega fótana þar sem ég stóð vandlega tryggð í sling og átti ekkert að vera hreyfa mig. Er ég enn fallega blá niður allan fótlegginn þrátt fyrir að það sé rúm vika frá þessum klaufaskap mínum. Það sem verra er að ég olli Björgu alveg ómældum skaða í leiðinni og sá verulega á henni greyinu. En þetta voru frábær námskeið í alla staði og ég skemmti mér konunglega. Nú er málið að finna aur til að fjárfesta í frekari græjum svo ég geti farið að gera eitthvað skemmtilegt alveg sjálf og á eigin vegum.

Sandra Við Fláajökul



Milli námskeiðina skellti ég mér suður til Reykjavíkur í langa helgi, það var mjög skemmtilegt. Ásamt almennri endurnæringu og verslunarferð með STÓRUM stöfum með henni systur minni þá fórum við á Þorrablót Hornfirðinga í Reykjavíka ásamt allri stórfjölskyldunni. Þar voru Gugga og Siggi heiðurshjón.  Við systur dösuðum og trölluðum að sjálfsögðu við mann og annan eins og okkur er einum lagið.
Í þessari Reykjavíkurferð skoðaði ég líka nýjasta Skinkuafkvæmið en Hadda Hrund og Doddi eru búin að eignast alveg gullfallegan lítinn prins.

Við systur á þorrablóti Hornfirðinga í RVK



Hvað vinnuna varðar þá er alveg fullt að gera þar. Í lok apríl munum við halda til Írlands, 20 manns og sé ég um alla skipulagningu... panta flug, benda fólki á hvers konar styrki það getur sótt um og allt klabbið. Ég fer að verða ansi reynslu mikil í þessu þó ég segi sjálf frá, skipulagning hópaferðalaga erlendis, skipulagning ráðstefna og vettvangsferða í Ríki Vatnajökuls.... bara name it og ég er viss um að ég get gert eitthvað til að aðstoða þig. En að sjálfsögðu er ég alls ekki að kvarta því þetta er jú það sem mér finnst skemmtilegt að gera.

Ég náði mér líka í aukavinnu þar sem ég tek um 30, klukkutímalöng viðtöl við valda einstaklinga hér í bænum. Þetta er rannsókn á vegum Hugvísindadeild HÍ og ég er nokkurs konar verktaki hjá þeim og spyr fólk spjörunum úr. Flestir taka nú vel í þetta og þar sem það er alltaf gaman að fá auka aur þá er þetta bara skemmtilegt. En skiljanlega fer eiginlega allur minn aukatími í þetta þar sem viðtölunum þarf að vera lokið fyrir mánaðamótin febrúar-mars.

Þá er það blúshátíðin... skipulagningin gengur bara alveg ljómandi vel og samstarfið við undirbúningshópinn enn betur. Allir að muna eftir fyrstu helginni í mars... 4. til 7. mars er skyldumæting á Höfn í Hornafirði...!

Norðurljósablús



Jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili, og munið að skoða myndirnar mínar á myndasíðunni.
Adios Amigos
Sandy

Athugasemdir

1
Dísulingur skrifar:
Skemmtilegt blogg! :) tekur þig vel út með klifurbúnaðinn!
21. febrúar 2010 klukkan 10:31
2
solla skrifar:
Alltaf flottust stóra sys :D
Já þorrablótið var mega gaman!!

Hlakka svo til 1.helgar í mars...styttist styttist :D

Love. Solla
21. febrúar 2010 klukkan 10:49
3
solla skrifar:
haha vá!! var að skoða myndirnar og svaka bólga!! verður að passa þig skvís :)
21. febrúar 2010 klukkan 10:51
4
Sandra skrifar:
Takk Dísa mín,
og Solla.... þú manst hvernig ég var í verslunarleiðangrinum.... ég var ekkert skárri í klifrinu þannig að þú getur ímyndað þér aðstæðurnar ;)
21. febrúar 2010 klukkan 10:55
5
Sóley Ösp skrifar:
Ævintýrastelpa!
Þetta hefur verið ekkert smá ævintýri! Vá hvað ég vildi að ég væri svona mikill adrenalínfíkill eins og þú, það væri dásamlegt! :)
Flottar myndir, slæmur fótur... vona að þú sérst að jafna þig!
Gott að þú ert að verða þaulreynd í skipulagningu utanlandsferða... fel þér það verkefni að skipuleggja ferð hingað til mín ;)
Knús frá DK
21. febrúar 2010 klukkan 11:19

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur