Dagurinn í dagSandra Björg Stefánsdóttir

 Þá er þorrablóti Hafnarbúa lokið en það var haldið síðasta laugardag. Við dömurnar í kvennaklúbbnum Kidda mættum í okkar fínasta pússi til hennar Gullu um kl. 18. Nokkru seinna drifum við okkur niður í íþróttahús og þar tóku á móti okkur eintómir sjóræningjar. Í fyrstu fattaði ég ekki þemað, fannst þetta bara rosalega flott en þegar skemmtiatriðin hófust þá kviknaði á ljósaperuni hjá ljóskunni Söndru. Trailerinn frá pirates of the carabbean var blastað uppi á tjald og inn á var búið að klippa mynd af Skinney og Þóri. Eftir það var spilað lag sem var eitthvað á þá leið að sjóræningjarnir hefðu ekkert í íslensku víkingana Magga svarta og Ingvald mikla... eða eitthvað álíka. Skemmtiatriðin í heild sinni voru líka frábær. Mjööög fast skotið á marga en flestir áttu þetta alveg skilið og meiri hlutinn er fólk sem getur alveg gert grín af sjálfum sér. Þetta var bara alveg fínasta skemmtun.

Í kvöld eldaði ég í fyrsta sinn á æfinni gæsabringur. Ég er ekki einu sinni viss um að ég hafi smakkað svoleiðis fyrr en í kvöld enda er ég ekki sérstaklega mikið fyrir villibráð. Hann Gústi samstarfsmaður Þorbjörns í Foss gaf honum nokkrar bringur sem við reyndum að kokka í kvöld. Þetta var svo mikið kjöt að ég ákvað að bjóða Fákaleiru settinu báðumegin götunnar að borða með okkur. Auðvitað tók ég mikinn séns en var búin að vista númerið á Ósnum inn í símann ef það þyrfti að panta pizzur í massavís. Þetta slapp allt fyrir horn og flestir fengu sér meira að segja tvisvar, þannig að ég er sátt.

Eftir matinn fór ég á fund með Evrópu unga fólksins... þar er mjög spennandi verkefni að fara í gang. Ungt fólk hér í sveitarfélaginu að vinna með enn yngra fólki til að virkja sem flesta í samfélaginu. Fá ungt fólk til að vilja gera eitthvað, taka þátt í því sem er í boði og reyna þannig að auka líkur á að fólk beri sterkar taugar til samfélagsins, vilji búa hér og skapi sér atvinnutækifæri í framtíðinni. Að sjálfsögðu er þetta á algjöru grunn stigi ennþá en mér finnst þetta spennandi og tala nú ekki um ef ég fæ að vinna dálítið með krökkum.

Um næstu helgi er svo Fjallamennsku námskeið nr. 1. Það verður vonandi ótrúlega gaman. Hef reyndar ekki séð neina dagskrá ennþá og veit því ekki hvort það stendur til að gista á fjöllum eða hvort við komum hingað heim á nóttunni. Kemur allt saman í ljós.

Jæja þá er þetta orðið gott í bili

Yassou
Sandra

Athugasemdir

1
Pabbi skrifar:
Bra, bra... segi ég nú bara... (upp á sænsku... hehehehe)
26. janúar 2010 klukkan 17:04
2
Sandra Björg StefánsdóttirNúúú meintirđu ekki "Nei Úlli, ţú átt ađ gefa brabra brauđiđ" ;)
26. janúar 2010 klukkan 20:41
3
Pabbi skrifar:
ahahahahaaaaa Ég var alveg búinn að gleyma þessu gullkorni...
29. janúar 2010 klukkan 17:22
4
solla skrifar:
hahaha :D

Flottar myndir - glæsileg eins og alltaf :D
31. janúar 2010 klukkan 16:02

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur