desember - janúarSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja góðir hálsar, nú eru liðnir nokkrir sólarhringir frá því að ég skrifaði síðast og eru margar ástæður fyrir því. Hins vegar ætla ég ekkert að hrella ykkur með því að fara út í þá sálma heldur frekar segja ykkur frá því sem á daga mína hefur drifið.

Eins og flestir aðrir Íslendingar hélt ég jólin hátíðleg í lok desember. Ég skelli mér suður á bóginn og dvaldi í góðu yfirlæti á hótel mömmu, bæði yfir jól og áramót. Fljótlega eftir hátíðirnar snéri ég aftur hingað austur því vinnan bíður víst ekki baun.

Það má kannski orða það þannig að það sé brjálað að gera hjá Sandy því síðustu vikuna haf ég bara ekki verið eitt kvöld heima hjá mér og það sem verra er þá hef ég ekki heldur verið á Leirunni. Ég hef komið mér í hinar ýmsu nefndir og verkefni og er þar að auki orðinn meðlimur í Kvennakór Hornafjarðar sem hann Heiðar stýrir af sinni alkunnu snilld.

Nú er að hefjast verkefni hér á Höfn sem snýst um að fá ungt fólk til að taka meira þátt í því sem er að gerast í samfélaginu og fá það til að átta sig á því að einstaklingarnir sjálfir geta vel haft áhrif á það sem er að gerast og mun gerast í framtíðinni. Reyndar er verkefnið mjög óformað ennþá en við erum búin að hittast 3-4 sinnum og láta hugann fljúga. Ég sit svo í nefnd ásamt nokkrum yfirgengilegum snillingum sem er að skipuleggja Blúshátíð. Það gengur náttúrulega eins og í sögu! Bið ykkur öll vinsamlegast um að taka frá FYRSTU HELGINA Í MARS (4. - 7. mars) því þá mun hátíðin eiga sér stað.

Þá hef ég skráð mig í fjallafélag Hornafjarðar, sem er reyndar nýtt félag, n.t.t. stofnfundur í kvöld. Þar með kemst ég vonandi á fullt í fjallamennskuna sem mig hefur nú lengi dreymt um. Fyrsti liðurinn í því er fjallamennska I og II sem eru námskeið á vegum Landsbjargar. Fyrra námskeiðið er eftir rúma viku og það seinna eftir um 3 vikur. Ég hlakka mikið til.

Framundan er svo ráðstefna á Írlandi á vegum NEED en það er fjórða og síðasta ráðstefnan. Mig hefur alltaf langað til Írlands þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig stemmarinn er á þessu heimili.

Annars er það aðallega að frétta héðan af Dalbrautinni að hann Þorbjörn er fluttur til mín. Reyndar tímabundið enda ætla ég að vona að mamma taki við honum aftur þegar dvöl hans hér lýkur. Þannig er mál með vexti að hann var fenginn hingað austur í smá verkefni hjá Foss, hér mun hann því verða amk. fram að mánaðarmótum. Nú get ég því loksins farið að taka til hendinni í eldhúsinu en eins og ég hef marg oft sagt þá nenni ég alls ekki að standa í því að elda fyrir mig eina (en vil ég meina að það sé eina og skársta ástæðan fyrir því að ég hef gert mig fullkomlega heimakomna á Fákaleiru 8c... fyrir utan þá staðreynd að heimilisfólkið þar er svo frábærlega yndislegt).

Jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili... kíkiði svo endilega á myndasíðuna mína, ég er mun duglegri að setja inn myndir en að blogga.
Ciao í bili
Sandra

Athugasemdir

1
Pabbi skrifar:
Þú ert nú bara frábærust, elsku Heimsljósið mitt. Væri gaman að fá þig á frumsýnigu 20. febrúar í Vasa... hehehehehe.
Þinn vinur pabbi
23. janúar 2010 klukkan 18:51

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur