3ja sýning Popp og KókSandra Björg Stefánsdóttir

Mynd frá Sollu skvís


Jæja þá er sýningu þrjú lokið hjá Skemmtifélaginu en það þýðir að við erum rúmlega hálfnuð. Nú eru tvær laugardagssýningar eftir og tvær skólasýningar eftir. Svo er það slútt á Smyrla strax þar á eftir eða um miðjan nóvember. Næsta vika verður góð þar sem það verður sýning fimmtudag, föstudag og svo auðvitað laugardag.

Ég er búin að átta mig á því að áhorfendur skipta bara öllu máli þegar kemur að svona skemmtunum. Nú eru eins og áður sagði búnar þrjár sýningar af Popp og Kók, á frumsýningunni var ég ekkert sérstaklega ánægð með mína frammistöðu því ég fylltist af einhverju óútskýranlegu stressi sem gerði það að verkum að ég gat eiginlega ekki sungið. Þar af leiðandi fannst mér sýningin ekkert sérstök þó svo að auðvitað hafi verið geggjað stuð eins og alltaf. Sýning tvö var svo vægast sagt sérstök, áhorfendur voru slakir og sennilega bara að njóta þess að horfa og hlusta á okkur. Það var svo gott sem enginn sem stóð upp eða söng með. Þannig að sú sýning var allt öðruvísi en maður á að venjast. Svo kom að sýningunni í gær. Allir voru á nálum því nú er svínaflensan í hámarki og mikið um veikindi en það var bara einn aðili sem var veikur í gær og það var hann Eymundur trommari. Undir venjulegum kringumstæðum væri það alveg ótrúlega slæmt að missa trommarann en þar sem við erum í Mekka tónlistarinnar á Höfn Hornafirði þá gátum við kippt inn nýjum trommara með litlum fyrirvara sem skilaði sínu 100% og eiginlega miklu meira en það. Hann Biggi Reynis í Parket kom sá og sigraði þetta kvöldið.
En aftur að áhorfendunum, þau voru í svo miklu stuði að það er engu lagi líkt... Gugga og Steini (sem ég leigi hjá) sátu fremst og þau voru svo eeeeeeendalaust hress og brostu hringinn og sungu með aaaaallan tíman. Þar af leiðandi fannst manni vera besti söngvari í heimi og þorði að sleppa sér fullkomlega. Mér skilst að ég sé svo óendanlega meðvirk í þessum efnum svo eflaust hefur það spilað vel inn í. Reyndar var salurinn fullur af svona hressu fólki, Ragna, Inga og Halldór, Sigga og Steini og Bára voru þarna með klapplið fyrir okkur Heiðar. Ballið á eftir var svo að sjálfsögðu eitt það besta í sögunni og ég er svo fegin að ég hafði dregið fram pollíönu skónna mína því annars hefði ég ekki getað staðið í fæturna. Elsku besta Ragna mín sagði mér í gær að ég ætti að vera ég sjálf því það væri stelpan sem allir elskuðu og ekki að breyta mér fyrir einhverja aðra. Þess vegna er ég ánægð með að hafa verið ég sjálf og í mínum skóm en ekki killer hælum og svaka skvísa því ég er bara ekki þannig. Ragna var reyndar kannski ekki akkúrat að tala um skófatnað í þessu samhengi en samt...

Hvað vinnuna varðar þá vorum við á Háskólasetrinu í samvinnu við Ríki Vatnajökuls með málþing um sjálfbæra ferðaþjónustu - umhverfis og skipulagsmál í síðustu viku. Það gekk mjög vel, fengum marga frábæra fyrirlesara úr öllum áttum og héldum svo vinnuhópa þar sem niðurstöður verða nýttar við gerð Sjálfbærni stefnu Ríkisins. Við vorum á heildina séð mjög ánægð með málþingið. Einn af fyrirlesurunum var Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins. Hann hafði meldað sig á ráðstefnu hjá okkur í fyrra en afboðaði sig á síðustu stundu því það var um það leiti sem hann datt inn í pólitíkina. Nú kom hann austur sem skipulagshagfræðingur og það sem fyrirlesturinn hans var góður. Síðasta árið hef ég oft pirrað mig á honum sem stjórnmálamanni, finnst hann ekkert sérstaklega skemmtilegur sem slíkur, en þarna á miðvikudagsmorguninn féll ég alveg fyrir honum aftur. Hann á bara að vera í þessu, fyrirlesturinn hans var áhugaverður, vel skipulagður, á mannamáli og skildi mann eftir með fuuuuullt af spurningum um efnið. Gæti séð hann fyrir mér sem kennara í háskóla einhversstaðar og ég er viss um að hann yrði allra vinsælasti kennarinn í þeim skóla.

Jæja ætli þetta sé ekki að verða gott í bili...
Minni á myndir á myndasíðunni og svo að sjálsögðu væri vel þegið ef þið mynduð kvitta..!

Bless kex ekkert stress...

Sandy kveður...

Athugasemdir

1
Sćdís Ósk skrifar:
Kvitt kvitt. Frábært að það hafi verið gaman í gær... Verst að hafa misst af þessu svaka balli... mæti bara næst eða þar næst :)
25. október 2009 klukkan 13:32
2
Sandra skrifar:
Já sæta, vonandi mætir þú næst... þá verður stuð :)
25. október 2009 klukkan 13:56
3
Eva Bjarnadóttir skrifar:
Hæ sæta.. datt inn á bloggið þitt af facebook og gaman að sjá að það hafi verið gaman í gær :) Er einmitt viss um að áhorfendur skipta ótrúlega miklu máli upp á að geta sleppt sér og sýnt það sem í manni býr.... vildi óska ég gæti skroppið til ykkar, held samt ekki (ENN sjáum til ;) Gangi ykkur vel áfram!! og heilsur austur....
25. október 2009 klukkan 17:23
4
Ragna skrifar:
Skórnir eru flottir eins og sú sem í þeim var hehe, takk fyrir frábæra skemmtun.
26. október 2009 klukkan 09:03
5
Pabbi skrifar:
Já mín kæra, margir hafa ort um þetta "vertu þú sjálfur". Leikritið Bangsaleikur fjallar um þetta, popparar hafa sungið þennan texta, ljóðskáld hafa látið þessi orð falla en það sem skiptir mestu máli í lífinu er að "vera þú sjálf og hlusta á aðra". Það er nefnilega ekki það sama að vera "þú sjálfu" og að "vera bara þú sjálf". Svo skipta skórnir alveg rosalega miklu máli. Þar hvílir allur þunginn... af manni sjálfum... :-)
30. október 2009 klukkan 07:56

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur