Frumsýning og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er ég að spá í að blogga smá í tilefni að því að nú er aðeins farið að róast um á þessu heimili.Síðustu vikur hafa verið alveg geðveikislegar, brjálað að gera bæði í vinnu og utan vinnu... fullt af skemmtilegu fólki og lítill svefn...! Þannig á þetta að vera

Í fyrsta lagi var tólf manna hópur að fara á vegum NEED verkefnisins til Noregs á ráðstefnu, þetta var samskonar ráðstefna og ég fór á úti í Finnlandi í vor. Alveg viss um að þau skemmtu sér konunglega. Eins og gefur að skilja fór ég ekki með í þetta skiptið en engu að síður hélt ég utan um alla skipulagninguna eins og áður.

Aðal málið síðustu vikurnar hefur nú samt sem áður verið annað en vinnan. Jú mikið rétt.... POPP OG KÓK.... Skemmtifélagið frumsýndi showið síðasta föstudag. Það hafa verið æfingar öll kvöld og allar helgar undanfarnar vikur og eins og í fyrra hefur þetta verið óendanlega skemmtilegt. Þetta árið voru margir nýjir sem tóku þátt og líka einhverjir gamlir sem voru samt ekki með í fyrra. Þannig að enn og aftur kynntist ég helling að nýju fólki og finnst það ekki leiðinlegt.
Solla sys saumaði á mig búning... rosa flottur... tók reyndar nokkra klukkutíma í að mana sjálfa mig upp í að mæta í honum á æfingu en það hafðist á endanum
Ég fékk nokkrum sinnum að heyra það á æfingum að ég yrði að vera meira sexy og daðra við áhorfndur fyrir allan peninginn... það tók smá tíma að ná því en þegar Solla sendi mér svipu til að leika mér þá fór þetta allt að smella... heheh... þið getið þá rétt svo ímyndað ykkur hvernig mér leið á generalprufunni þegar áhorfendur voru allt saman 4-6 ára börn í bænum...!!! Þetta var svo vandræðlegt og pínlegt að ég held að ég hafi aldrei skammast mín eins mikið 

Frumsýninginn gekk samt ágætlega, fyrir utan aðeins of mikið stress í fyrra laginu... seinna lagið gekk alveg ágætlega og svo ég tali nú ekki um djammið sem fylgdi frumsýningunni...
Eitthvað er hálsinn á mér samt búinn að gera uppreisn því ég hef ekki komið upp orði síðan á laugardagsmorgni. Í dag hef ég þess vegna reynt að segja ekki orð (auðvitað ekki tekist nógu vel) og vona að þetta verði allt komið á morgun. Einhver sagði að ég væri kannski komin með svínaflensuna ógurlega en ég held ekki, hef ekki tíma í þannig núna


Solla skvís kom og var hjá mér í viku, hún fór heim í morgun með Nönnu og Frikka. Því miður var ég ekki eins mikið með henni og ég hefði viljað vegna æfinga en það er bara svona. Mamma og Þorbjörn komu svo á fimmtudaginn og voru um helgina. Mættu að sjálfsögðu á frumsýningu hjá stelpunni sinni

Framundan eru svo fjórar sýningar næstu fjóra laugardaga, skipulagning 2ja daga ráðstefnu á Höfn eftir rúma viku, landsfundur í NEED ofl...
Kreisí að gera hjá Sandy í Firðinum Fagra.
Endilega kommentið þið og kíkiði á myndasíðuna mína.
Ætli þetta sé ekki gott í bili
yassou
Sandy
