SunnudagurSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er kominn sunnudagur...
Þessa dagana er mikið að gera í vinnunni sem er að sjálfsögðu mjög skemmtilegt. Næstu tvo dagana er ráðstefna á vegum NPP hér á Höfn. Við á Háskólasetrinu erum að sjálfssögðu þátttakendur í henni þar sem að NEED verkefnið "mitt" (litla barnið mitt sem mér finnst ég eigi ein... þó það það sé að sjálfsögðu alls ekki þannig) er að lang mestum hluta styrkt af NPP (Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins). Við munum koma til með að kynna verkefnið í bak og fyrir, enda hef ég setið sveitt alla síðustu viku að hanna bækling og plaggat fyrir verkefnið... Vissuð þið ekki örugglega að ég er graffískur hönnuður? Nei ekki ég heldur Wink

Um síðstu helgi kom hún Hera Björk hingað til Hafnar og leiðbeindi okkur í Skemmtifélaginu með sönginn... Rosalega skemmti ég mér vel. Hún er svo frábær einstaklingur og hæfileikarík. Eg hefði aldrei getað trúað því hversu mikið við breyttumst öll við meðferðina hjá henni. Eftir sönginn á laugardeginum fórum við svo öll inn í Hoffell og kíktum og jökulinn og fórum svo í pottinn í alveg frábæru veðri.

 

Stuðfólkið í útipásu


Nú eru æfingarnar hjá Skemtifélgainu á fullu, allir eru búnir að fá úthlutað lögum og hlutverkum. Í dag var sviðið sett upp (eða lagað eftir ballið sem haldið var á hótelínu í gær) og hljóðkerfinu komið fyrir. Nú verður það bara harkan sex og GEGGJAÐ stuð næstu vikurnar Cool

Nóg í bili
Sandy kveður

Athugasemdir

1
solla skrifar:
úlalla...hlakka til að sjá þig á föstud. skvís :D
svo styttist í frumsýninguna :D !!!!
love
21. september 2009 klukkan 20:46
2
Pálína skrifar:
Kvittos :O)

Good luck með frumsýninguna sæta
22. september 2009 klukkan 14:56
3
Pabbi skrifar:
Bara allt á fullu flugi... Kominn með smá skrekk fyrir þína hönd... hehehe
poj, poj, poj Heimsljósið mitt.
28. september 2009 klukkan 17:24

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur