Popp og kók - Hornfirska Skemmtifélagiđ 2009Sandra Björg Stefánsdóttir
Komið þið sæl öll sömul...Fyrir rúmri viku átti ég sjálf afmæli, þetta var ekkert stórafmæli því ég varð 26 ára þetta árið. Nú er ég bara hætt að vera "túttúguogfimm" ára! Ég verð að viðurkenna að í fyrsta sinn ævinni fannst mér ég verða gömul. Það er ekki vegna þess að ég sjálf hafi breyst eitthvað heldur vegna þess að ég fékk oftar en einu sinni spurninguna "Má spyrja hvað þú ert gömul?" Er það ekki klárt merki um það að ég er ekki unglamb lengur? Ég bara spyr?
Í tilefni dagsins fórum við nokkrar singles saman út að borða á Hótelið og gæddum okkur á humarpizzu, eða nei það er víst ekki rétt hjá mér... við fengum okkur hvítlauksolíu með smá pizzu, enda var kveikt á ilmkertum út um allt á Dalbrautinni þegar heim var komið svo að þeir sem á eftir komu féllu hreinlega ekki í yfirlið! Ég fékk margar fallegar og fyndnar afmælisgjafir en það sem skemmtilegra er að ég fékk enn fleiri knús og kossa. Það er yndislegt að eiga afmæli


Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar hét David Newsom kom frá Ástralíu og er einn af frumkvöðlum í þessum bransa, þ.e.a.s. geo tourism. Það eru algjör forréttindi að vera í vinnu sem gerir manni kleift að fara á svona ráðstefnur. 
Föstudagurinn var í raun algjör maraþon dagur, við vorum mætt upp í rútu kl.8 og héldum af stað í vettvangsferð. Dettifoss - Hljóðaklettar - Ásbyrgi og loks Skúlagarður í Kelduhverfi þar sem við hlustuðum á nokkra fyrirlestra í viðbót. Um klukkar 15.30 fengum við svo far aftur á Mývatn og héldum þaðan beina leið heim á Höfn. Við vorum komnar heim um kl.21.30 og á sama tíma og ég opnaði dyrnar á Dalbrautinni renndu mamma og Þorbjörn í hlað. Þau voru mætt í sveitina til að fara í afmæli hjá Gunnu vinkonu mömmu á laugardeginum. En kl.22 á föstudagskvöldinu vorum við mætt á Leiruna í hið árlega Garðpartý og skemmtum okkur aauðvitað fram undir morgun. Frissi veislustjóri fór að sjálfsögðu á kostum og þetta var bara æðislegt kvöld í alla staði eins og dagurinn allur. Þó verð ég að viðurkenna að ég var frekar mikið uppgefin á laugardeginum og vísa þá í upphaf þessarar færslu þar sem ég tala um aldurinn minn


Sýningin þetta árið heitir Popp og Kók og ég ætla ekki að segja ykkur meira frá henni nema að frumsýningin er 9. október... allir að tryggja sér miða!!!
Um næstu helgi kemur svo Hera Björk aftur með námskeið fyrir okkur söngfuglana og þá verður gaulað eins og mest við meigum.

Jæja gott í bili...
Endilega kvittiði nú hjá mér...
Pís át mæ frends...
Sandy
p.s. að sjálfsögðu er hellingur af myndum inni á myndasíðunni minni nú sem endra nær
Athugasemdir
2
Pabbi skrifar:
Heimsljósið mitt orðin 26 ung því varla ertu á miðjum aldri... það er ég. Svo ef þú ert ekki kominn á miðjan aldur getur þú ekki verið orðin gömul...:-) Hjartanlega til hamingju með ungaaldurinn. Frábært nafn á skemtuninni Popp og kók. Getur varla verið annað en kvikmyndatónlist. Það hlýtur að koma að því að við sjáum eina svona sýningu hjá þér. Varla samt í haust, nema þið sækið um styrk frá finnsk-íslenska sjóðnum og ráðið kallinn sem leikstjóra... hehehehe.
08. september 2009 klukkan 14:37
4
Pabbi skrifar:
Til er ég :-)
10. september 2009 klukkan 18:12
5
Ragna skrifar:
er ekki rétt að kvitt fyrir innlitið, alltaf gaman að skoða myndirnar hjá þér, þú ert svo ansi virk í að mynda :)
11. september 2009 klukkan 08:49

spá í að koma kannski bara á frumsýninguna??
KKV. Solla