Heimsókn á DalbrautinaSandra Björg Stefánsdóttir

Góða kvöldið góðir hálsar,
Í síðustu viku voru mamma og Þorbjörn hjá mér. Þau voru í heila viku því að Þorbjörn fékk vinnu hjá henni Rögnu í Foss. Þetta var alveg æðislegur tími, ég tók mér frí eftir hádegi alla vikuna svo við mamma gætum brallað eitthvað skemmtilegt... og hvort við gerðum. Mamma fór meðal annars með okkur Rögnu og Heiðar í göngu um Skálafell. Ég man ekki eftir að hafa komið að Vestari bænum síðan á ættarmótinu þegar ég var 6 ára, sem er í sjálfum sér ekkert skrítið en samt svolítið leiðinlegt. En nú fengum við að heyra alls kyns sögur og minningar frá mömmu frá því að hún var lítil.
Við mæðgur gengum líka inn á Bergárdal og tíndum ber... ó já þið lásuð rétt, það eru komin kolsvört og safarík ber inni við fossinn.

ég og mamma


Ég verð að viðurkenna að það er frekar tómlegt í kofanum nú þegar gömlu eru farin, en þetta var samt æðisleg vika og vonandi koma þau bara fljótt aftur. Reyndar hafði Þorbjörn nú orð á því að hann gæti alveg hugsað sér að búa hér á Höfn. Það er svo góður andi hér og allir svo viðkunnalegir, sem er ekkert skrítið. Það er auðvitað allt annað andrúmsloft hér heldur en fyrir sunnan enda ekkert atvinnuleysi og þess háttar leiðindi. Veit nú ekki hvort gömlu hjónin taki sig til og flytji... Þorbjörn hefur aldrei búið annarsstaðar en í Kópavoginum... veit samt að mamma hefði ekkert á móti því. Svona til að byrja með þá vona ég bara að heimsóknirnar verið fleiri og lengri.

Um næstu helgi er Bræðslan á Borgarfirði eystri, mér skilst að undan farin ár hafi hálfur Hafnarkaupstaður farið þangað og skemmt sér saman. Ég vil nú meina að ég sé Hornfirðingur þannig að sjálfsögu ætla ég að fara! Fæ að fljóta með Nönnu mega skvísu og rauða ljóninu hennar! Alltaf gaman að gera eitthvað skemmtilegt með frábæru fólki. 

Amma og Solla ætla svo að koma til mín á mánudaginn í næstu viku og vera í nokkra daga. Þá held ég að ég taki mér bara sumarfrí og stjani við pæjurnar mínar. Ég hlakka svo til. Sumarið er svo skemmtilegur tími, þá vilja allir koma og heimsækja mann! 

Jæja þetta er orðið gott í bili
Endilega kíkiði á myndasíðuna mína, fullt af myndum þar og KVITTIÐI Smile
Over and out
Sandy

Athugasemdir

1
solla skrifar:
hæhæ skvís ... hlakka til að sjá þig eftir 2 daga :)
Verður svaka fjör

Bless á meðan.
Solla
25. júlí 2009 klukkan 22:52
2
Ragna skrifar:
KVITT KVITT
30. júlí 2009 klukkan 09:25

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur