Humarhátíđ - Skaftafell citySandra Björg Stefánsdóttir

Nú held ég að það sé kominn tími til að skrifa smá línu hér á þetta blogg.
Margt hefur á daga mína drifið síðasta mánuðinn Smile

Skrúðgangan á Humarhátíð


Um þar síðustu helgi var Humarhátíðina mikla hér á Höfn. Þetta var ein allra skemmtilegasta humarhátíð sem ég hef upplifað og eru þær nú komnar all margar hjá mér Smile Við hófum leikinn á miðvikudag þegar ég fékk að fljóta með Rögnu og Heiðari á djass tónleika í Pakkhúsinu, formlega hófst hátíðin á mánudeginum en ég var löt fyrstu tvo dagana. Á fimmtudaginn var svo aftur tjúttað í Pakkhúsinu þegar Rökkurbandið sló í gegn enn á ný. Við grúppíurnar Ragna fórum og skemmtum okkur konunglega og fylgdumst með Heiðari og nýju rauðu græjunni hans!  Eftir það hitti ég Gullu, já og bara flestar skvísurnar í bænum og við fórum á Víkina. Eins og Hornfirðingum sæmir voruð við að langt fram eftir morgni enda veðrið dæmalaust gott og fólk sat úti á stétt og spjallaði í langan tíma eftir að Víkin lokaði. Á föstudaginn fóru svo gestirnir að streyma að. Hrefna og Solla voru fyrstar í hús, svo Sóley og Rafn (sem þó vildu endilega gista í tjaldi...?!?!?!) og loks Rut og Helgi. Pörin tvö voru eiginlega svona óvænt ánægja því ég vissi ekki fyrr en eftir hádegi á föstudeginum að þau ætluðu að koma. Aftur var dæmalaus blíða í firðinum fagra og heppnaðist dagskráin því með eindæmum vel. Heiðar hafði tekið að sér að skipuleggja dagskrá á sviðinu föstudagskvöld, laugardag og laugardagskvöld og reyndi ég aðeins að hlaupa undir bagga með honum. Hann var náttúrulega að spila í nánast hverju einasta atriði þannig að ég var þarna fyrir neðan og reyndi að sjá til þess að allir væru tilbúnir og allt gengi snurðulaust fyrir sig, sem það og gerði. Eftir að dagskránni lauk á sviðinu skelltum við okkur í Sindrabæ á Hornafjarðarkvöld þar sem dansinn dundi langt fram á morgun!!

Vinkonurnar á Hornafjarðarkvöldi

Áfram var haldið á laugardeginum söngvakeppni barnanna og fleira yfir daginn og svo enn betri dagskrá um kvöldið. Eitthvað var veðrið ósamvinnuþýtt um kvöldið því það rigndi eins og hellt væri úr fötu á meðan á skemmtiatriðunum stóð... en um miðnætti þegar brennan hófst var komið fínasta útihátíðarveður. Um það leiti kom heil rúta af skaftfellingum í bæinn sem voru kannski heldur illa klædd fyrir útiveru... ég veit að það er þversögn í þessari setningu þar sem við erum að tala um landverði og fjallaleiðsögumenn... en þetta var nú svona samt Smile Ég skaut sum sé yfir þeim húsaskjóli í rúman klukkutíma eða þangað til haldið var í íþróttahúsið á ball. Það eru engar ýkjur þegar talað er um heila rútu því þegar mest var taldi ég milli 25 og 30 mans í litlu sætu íbúðinni minni... En öll dýrin í skóginum voru vinir svo þetta fór bara vel fram... helltist ekki einu sinni niður úr glasi Smile Þá var komið að ballinu!!! Mínu fyrsta Parket balli... Þvílíkt og annað eins ball !! Þeir eru alveg jafn ótrúlega góðir og ég hafði heyrt!! Þessum blessuðu pjökkum hef ég djammað með í nánast heilt ár og hafði ekki hugmynd um að þeir væru hluti af einni allra bestu ball hljómsveit sem komið hefur fram á Íslandi. Kannski eigum við bara að vera fegin að þeir eru logandi hræddir við Reykjavíkina því annars sæjum við þá sennilega ekki meir...! Eftir að ballinu lauk var hinni stórkostlegu Humarhátíð 2009 formlega lokið. Gestirnir fóru heim hver á eftir öðrum uppúr hádegi á sunnudag og þá tók við hið daglega líf á nýjan leik. 

Mikið stuð á Parket balli

Reyndar fundum við Gulla okkur nokkuð skemmtilegt áhugamál um miðja vikuna, þannig er að hópur frá National geographic var staddur hér á Höfn og spjallaði ég heilmikið við þau. Við fórum að skoða efni frá þeim og við skulum segja að eftirfarandi jafna gæti alveg ræst einn daginn:

Gönguferð + Nepal + 2010 = Sandra + Gulla
SmileSmileSmileSmileSmile

Þá er komið að nýliðinni helgi en þá skelltum við Gulla og Bára okkur í Skaftafell city. Aftur var blíða í sveitarfélaginu Hornafirði eins og reyndar um allt land. Við mættum á svæðið á föstudagskvöldi, þrumuðum upp tjöldunum og grilluðum svo hamborgara eins og við ættum lífið að leysa. Um kvöldið fengum við ökkur göngutúr í Lambhaga og ég vona að stelpurnar hafi orðið jafn ástfangnar af þeim stað og ég Smile Við vöknuðum eldsprækar á laugardeginum og skelltum okkur í göngu um þennan fallegasta stað veraldar, nú eftir það var haldið í sund og svo grill eins og gefur að skilja. Við reyndum að læra af reynslunni frá kvöldinu áður og nú tók það aðeins um 20 mín að hita kolin en ekki rúman klukkutíma. Við höfum sennilega allar grillað marg oft áður en einhverra hluta vegna gekk allt á afturfótunum hjá okkur á föstudeginum. En þetta seinna kvöld  vorum við með svo mikinn mat að við hefðum sennilega getað fætt helminginn af gestunum í Skaftafelli en samt gerðum við það nú ekki Smile Amk datt okkur ekki í hug að gefa neikvæða frakkanum af matnum okkar, eftir að hann hafði vælt á næsta borði í hálftíma! Sumt fólk ætti bara að vera heima hjá sér ef það er svona erfitt fyrir það að ferðast... hehehe... Núhhh... eftir matinn brunuðum við á Hnappavelli því þar var aðalstuðið. Klifurmaraþon og því eitthvað af gorgeus liði. Svo var slegið upp dansleik í tjaldi á svæðinu og því var stuð laaaangt fram eftir morgni. Ég var stórkostlega ánægð með þessa helgi því hún var nákvæmlega eins skemmtileg og ég hafði vonast eftir og vonandi eru skvísurnar sammála mér í því. 

Nú eru enn á ný komnir gestir á Dalbrautina því mamma og Þorbjörn ætla að vera hjá mér þessa vikuna. Kallinn er að fara að vinna hjá Rögnu í Foss og við mamma ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman Smile

Síðast en ekki síst... myndir!!! Það er alveg hellingur á myndum á myndasíðunni og fleiri munu bætast við á allra næstu dögum.

Bless í bili Sandra

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur