Jóhann Ţorsteinsson - Jói VakriSandra Björg Stefánsdóttir

Afi minn


Nú hefur hann elsku besti afi minn yfirgefið þetta jarðneska líf. Hann kvaddi okkur mánudaginn 15. júní 2009. Mér finnst alveg ofsalega erfitt að hugsa til þess að hann afi minn sé farinn en ég veit að honum líður vel þar sem hann er núna. Hann getur farið í útreiðartúra á uppáhalds hestunum sínum eins oft og lengi og hann vill. Margar fallegar minningargreinar birtust um hann afa minn í Morgunblaðinu og þær má finna á vef morgunblaðsins

Ég fór að sjálfsögðu suður til að vera viðstödd kistulagninguna og jarðaförina. Á svona tímum er gott að eiga góða að. Ég stoppaði oft á leiðinni suður hjá vinum sem sýndu ótrúlegan stuðning. Skvísurnar í Skaftafelli, löggan á Klaustri og svo besti gaurinn hann Örn við Sólheimajökul. Eitt traust og þétt faðmlag getur gert svo ótrúlega margt fyrir mann þegar manni líður illa. Það að einhver vilji taka utan um mann og gefa manni þannig allan sinn styrk... það jafnast á við þúsund orð að mínu mati. Takk takk takk...

Kistulagningin var mér mjög erfið en þetta var falleg athöfn og við amma reyndum að vera sterkar saman. Afi minn var svo jarðaður föstudaginn 26. júní. Veðrið var yndislegt og athöfnin var persónuleg og falleg. Fjórir hvítir hestar tóku á móti kirkjugestum, þar á meðal hann Faxi kallinn. Álftagerðisbræður sungu og allt var þetta svo fallegt, þó það hafi vissulega verið erfitt. Aftur studdum við amma hvort aðra. Fjöldinn allur af fólki vottaði afa virðingu sína með því að koma og deila þessum degi með okkur í Fossvogskirkju. Margir hestamenn allstaðar af landinu, enda var verið að kveðja mikinn mann, einn af þeim allra mestu, hann Jóa Vakra í Miðsitju, afa minn.

Bless elsku afi minn og takk fyrir mig kæru vinir.

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur