Páskar...Sandra Björg Stefánsdóttir

Jæja nú er alveg að koma páskafrí. Því miður náðist ekki að klára skýrslu um NEED verkefnið í dag svo ég verð að mæta fyrir hádegi á morgun og klára hana en að er allt í lagi því þegar skýrslan er búin er ég komin í frí Smile
Mamma ætlar að brunahingað í sveitina til mín og svo koma Solla, Haffi og Þorbjörn þegar líður á vikuna. Hlakka ótrúlega til að fá þau öll.  Enda ekki eins og það sé eitthvað lítið að gerast í stórfjölskyldunni, heilar þrjár fermingar, Anna Regína, Kiddi og Sigga... þeir voru samtaka í þessu frændurnir Cool

Svo á Anna Regína afmæli á morgun, 14 ára pæja... ekki það hún er svo þroskuð pæja að hún gæti vel komið með mér á Víkina einhverja helgina... pott þétt fullorðinslegri en margar gellurnar þar. En ég efast um að ég fengi að stíga fæti inn í Fákaleiru 8c aftur ef ég tæki píuna með mér... En bara til að hafa það á hreinu þá var ég sennilega ekki nema 14 ára þegar Ragna fór með mig á öll böll bæjarins á Humarhátíð.. svo veriði bara viðbúin kæru hjón... aldrei að vita hvað gerist á næstu humarhátíð Wink
Annars er það að frétta að næsta þriðjudag verður fyrsti fundur undirbúningnefndar Skemmtifélagsins... þá á að ákveða hvað við munum taka fyrir næsta haust og ég get bara ekki lýst því hvað ég hlakka til... MAÐUR LIFANDI!!! Þetta var náttúrulega ólýsanlega skemmtilegur tími síðasta haust og engin ástæða til að ætla að hlutirnir verði neitt öðruvísi núna... ég fæ bara fiðring í magann við tilhugsunina.

Jæja ætli þetta sé ekki nóg í bili
Gleðilega páska og borðiði nú ekki yfir ykkur af páskaeggi.... hehe eins og það sé hægt!

ó já ég gleymdi einu... ég er búin að fá mitt fyrsta páskaegg þetta árið... ég var eitthvað að væla um að mig langaði svo í páskaegg en maður kaupir ekki svoleiðis sjálfur, eggin bragðast ekki eins vel ef maður kaupir þau sjálfur, það vita það allir. Allavega ég var að farast úr sjálfsvorkun inni á skrifstofu þegar hann Jóhann Bergur kemur færandi hendi með eitt stykki páskaegg... Ég átti engan veginn von á þessu og því smakkaðist eggið að sjálfsögðu betur en öll páskaegg sem ég hef nokkur tíman fengið.

Adios amigos
Sandy

Athugasemdir

1
solla skrifar:
hæ sæta,,,,nú styttist í að við komum :)
Verður svaðalegt fjör :)

Luv, Solla
05. apríl 2009 klukkan 11:30
2
Ragna skrifar:
Anna Regína verður send í sveit á næstu Humarhátið mín kæra Sandra Björg
14. apríl 2009 klukkan 09:35
3
Sandra skrifar:
Hahaha Ragnamín já já ;)
14. apríl 2009 klukkan 22:08

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur