Lífiđ í hnotskurnSandra Björg Stefánsdóttir

jæja ætli ég hendi ekki inn smá færslu hér á bloggið... þetta gengur ekki, ég fer að verða jafn öflug og Solla og Pálína að blogga Wink Reyndar skilst mér að það lesi varla nokkur lifandi maður blogg lengur því allt fer nú fram á andlitsbókinni ógurlega, ég viðurkenni það vel að ég er orðin alvarlega  háð þeirri vefsíðu. Held ég bloggi nú bara af því að hann karl faðir minn er svo ógurlega þrjóskur að hann neitar að fá sér feisbúkk... tel sjálfri mér trú um að hann fylgist með þessu bloggi og vil leyfa honum að gera það áfram Cool nei nei ég segi nú bara svona... við erum samt að tala um að hann faðir minn er enn með Nokia 3510... Hann hefur ákveðið að þetta sé besti sími í heimi og mun aldrei kaupa sér nýjan síma nema það sé útséð um það að ekki verði hægt að gera við þann gamla lengur. Fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hvernig sá forngripur lítur út þá er hér mynd af honum:

Nokia 3510



En jæja... hvað er að frétta?
Um síðustu helgi skellti ég mér til Reykjavíkur, jamms ég held það nú. Fór á málþing um Geopark sem var alveg einstaklega áhugavert og skemmtilegt.
Svo klifraði ég heil lifandis ósköp með henni Rannveigu skvísu. Það er alveg ótrúlegt hvað maður er fljótur að detta úr formi, þó svo ég reyni að gera allar mögulega æfingar heima hjá mér til þess að þurfa ekki að eyða dýrmætum tíma í að vinna aftur upp kraft og tækni o.s.frv.
Skemmtilegast af öllu var samt frænkukvöldið heima hjá Ingu Ósk. Ég hef bara ekki hlegið svona mikið lengi, við frænkurnar erum svo ótrúlega skemmtilegar að það er bara engu lagi líkt. Fórum í SingStar og þar var sko ekki haldið aftur af danssporunum... Takk fyrir mig skvísur, við verðum að endurtaka leikinn sem allra fyrst Smile

Singstar-frænku-kvöld


Nú framundan er ekkert nema skemmtilegheit. Í kvöld stendur útskriftar hópur FAS fyrir tónleikum í Nýheimum þar sem Hornfirskir tónlistarmenn fá að njóta sín. Haldiði ekki að hún Sandra ætli að láta ljós sitt skína og hann Frikki gitarhero fer hamförum í undirleiknum. Ég ætla að taka lagið Steppingstone með Duffy sem ég hef hlustað á daginn út og inn síðustu vikur. Klikkið á nafnið og njótið... snilldar lag og frábær texti.... amk að mínu mati Cool Í gærkvöldi sátum við Gulla, Nanna og Frikki uppi í stú og vorum eitthvað að gaula, þá gengur inn Haukur nokkur Þorvalds. Hann var mættur til að eiga nokkur orð við hana Nönnu um tónleikana en eins og alþjóð veit þá er hann helsti útvarpsmaður austurlands. Nema hvað, hann vildi endilega fá að taka upp lögin okkar Gullu (hún ætlar að sjálfsögðu að syngja líka við undirleik Frikka). Eftir smá hóst og stam hófst upptakan og svei mér þá ef þetta heppnaðist bara ekki ágætlega hjá okkur. Mér skilst að þessu verði útvarpað í svæðisútvarpi Austurlands milli kl 17.30 og 18 í kvöld. Þið ættuð að geta hlustað á það hér.

Jæja nóg af mér í bili
Sandy

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Gangi þér vel elskan


Væri sko emira en lítið til í að sjá þig taka þetta lag

Knús
12. febrúar 2009 klukkan 14:51
2
solla skrifar:
ohh missti af sæta!! En vá samt geggjað!! mín bara orðin celeb :D :D

Takk sömuleiðis fyrir mega skemmtilegt kvöld :)
Þín solla
12. febrúar 2009 klukkan 23:33
3
Sandra Björg StefánsdóttirÉg er búin ađ uppfćra linkinn á Svćđisútvarpiđ. Held ađ ţađ sé hćgt ađ hlusta á ţetta í um tvćr vikur, svo dettur ţađ út af vefnum :)
13. febrúar 2009 klukkan 09:08
4
Harpa Hrönn skrifar:
ertu að gera grín af símanum hjá pabba þínum??....þá um leið ertu að gera grín að mínum :o)ég var með nýjasta nýtt frá Nokia þegar ég var að vinna hjá KB og svo bilaði hann stuttu eftir að allt hrundi og viti menn....systir mín átti einn svona nákvæmlega eins og pabba þíns og ég fékk hann lánaðann og gengur fínt :o)og hefur aldrei bilað á 8 árum.

knús og kram
Harpa
16. febrúar 2009 klukkan 12:17
5
Ella skrifar:
Hæ gella
Ekki hætta að blogga ég kíki á þetta af og til. Er. Það eru nefnilega fleiri en pabbi þinn sem þjóskast við að skrá sig á fésbók.
Las það líka í blaði um daginn að það væri algjörlega út úr kú að ömmur væru þar. Jamm
Hafðu það sem best.
Kveðja Ella
17. febrúar 2009 klukkan 21:26
6
Sandra Björg skrifar:
hehe ég skal blogga þegar ég hef frá einhverju að segja ;)
og Harpa mín... þetta er fornaldarsími... þó hann virki þá er það staðreynd ;)
18. febrúar 2009 klukkan 09:09
7
Pabbi skrifar:
Hehehehehe... besti sími í heimi og bilaði aldrei. Þagnaði þó þegar ég missti hann í sjóinn í haust. Við Petra vorum að taka upp bátinn og þá hafnaði besti sími í heim á bólakaf. Hefði örugglega virkað ef ég hefði fundið hann í leirugum botninum. Nokia hætti að sjálfsögðu að framleiða síma sem endast og endast enda færi fyrirtækið þá á hausinn. Svo nú er ég kominn með síma með öllum græjum og borgaði alltof mikið fyrir. Þetta er jú bara sími. Ég á myndavél, útvarp og hvað það nú er sem á að létta manni lífið í gegnum SÍMA.
Annars bara allt gott að frétta, mín kæra.
Pabbsen í 20°frosti og fjöri.
18. febrúar 2009 klukkan 20:57
8
Sandra Björg skrifar:
Það er ekkert annað... aldrei hélt ég að þetta mundi gerast ;)
19. febrúar 2009 klukkan 09:27
9
Ragna skrifar:
Þetta er alveg eins sími og hún tengdó á. Virkar þrælvel en Anna Regína gerir nett grín af honum svo Gugga er að spá í að endurnýja. Sandra þú getur örugglega fengið hann fyrir lítið og gefið gamla hann í afmælisgjöf hehe.
23. febrúar 2009 klukkan 09:02
10
Sandra skrifar:
Hahahahhhahahha snilldar hugmynd ;)
23. febrúar 2009 klukkan 18:28

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur