Skautaćvintýri í ÓslandinuSandra Björg Stefánsdóttir

Í dag var alveg meiri háttar veður, hef bara sjaldan upplifað annað eins. Þess vegna fór ég í hádeginu upp í Ósland til að "skoða fjöllin" og kíkja á tjörnina. Það vildi þannig til að hún var alveg gadd freðin, ég fór út á ísinn og hoppaði aðeins (eins gott að enginn sá til mín) og viti menn, allt gaddfreðið. Ég hringdi beint í Rögnu og bað hana að hafa skautana tilbúna fyrir dæturnar um leið og þær voru búnar í skólanum. Ég var svo mætt í Fákaleiruna kl 14.30 og dreif píurnar nauðugar viljugar upp í Ósland. Ég veit ég vinn á frábærum vinnustað... get fengið frí ef veðrið er svona dásamlegt... vinn það bara upp seinna Smile 

Við frænkur skautuðum svo eins og við áttum lífið að leysa fram til myrkurs ásamt fleiri krökkum á öllum aldri sem bættust í hópinn þegar á leið.

Ég tók fullt af myndum og er búin að setja þær inn á myndasíðuna.... Endilega kíkiði og KVITTIÐI Smile

Sandra Pandra

Athugasemdir

1
Ragna skrifar:
Takk fyrir börnin:)
03. febrúar 2009 klukkan 20:11
2
solla skrifar:
ohh ég hefði sko viljað koma með!! ekkert smá fallegt veðrið, ónei ekki leiðinlegt að skauta í svona umhverfi, það eru hreinar línur :)

Sjáumst á morgun skvísípæ !!!

Sollz
04. febrúar 2009 klukkan 00:36

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur